Morgunblaðið - 26.10.2018, Side 20

Morgunblaðið - 26.10.2018, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 Söngskólinn íReykjavík Næsta 7 vikna námskeið vetrarins hefst 29. október og lýkur 14. desember Einnig er hægt að fá einkatíma í söng - fjöldi tíma samkomulag SÖNGNÁMSKEIÐ Nánari upplýsingar www.songskolinn.is /  552-7366 Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi! • Fyrir fólk á öllum aldri: Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk • Kennslutímar:Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar • Söngtækni:Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur • Tónmennt:Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur fatnaði til að byrja að stunda göngu- skíðaíþróttina. „Þeir sem iðka sport- ið af fullri alvöru eiga vitaskuld al- vöru spandex-galla og bæði skíði og stafi úr laufléttum koltrefjaefnum, en fyrir alla hina er alveg nóg að vera í þægilegum útivistarfatnaði og á einföldum skíð- um.“ Rétt er að gera greinarmun á ólíkum und- irgreinum gönguskíða- sportsins. „Fjallaskíði og gönguskíði eru sitt hvor hluturinn, þó hvort tveggja feli í sér að ferðast gangandi á skíðum,“ út- skýrir Hilmar. „Hefð- bundin gönguskíði not- ar fólk í troðnum brautum eins og má t.d. finna uppi í Bláfjöllum. Síðan eru til ferða- gönguskíði sem eru breiðari og með stálköntum og notuð þar sem ekki eru troðnar brautir, s.s. til að ferðast upp í Landmannalaugar eða á Hellis- heiði, eða til að þvera hálendið og heilu jöklana.“ Fjallaskíðin eru síðan þannig hönnuð að það má nota þau til að bæði ganga upp töluverðan bratta og S umir halda að þegar vet- urinn gengur í garð sé ekki lengur hægt að stunda útivist, nema í besta falli bruna niður brekkurnar í Bláfjöllum og Hlíðar- fjalli þegar færi gefst. Hilmar Már Aðalsteinsson segir þetta viðhorf þó óðum að breytast eftir því sem fleiri uppgötva hve gaman það er að skoða landið á göngu- og fjallaskíðum. Hlynur er útivistarmaður í húð og hár og leiðsögumaður í fjallaskíða- ferðum Ferðafélags Íslands. Hann ólst upp í skátunum, starfaði lengi með björgunarsveit og vann það m.a. sér til frægðar að vera hluti af þriggja manna hópi sem ferðaðist í fyrsta skipti í einni ferð á skíðum yfir Vatnajökul, Hofsjökul og Langjökul að vetri til. Hann segir það útbreiddan mis- skilning að göngu- og fjallaskíðaiðk- un sé ekki nema fyrir hraustustu íþróttamenn. „Það má líkja þessu við sund, þar sem annars vegar er hægt að iðka sundið sem keppnisgrein og synda mörg þúsund metra á fullri ferð í viku hverri, eða gera eins og allur þorri fólks gerir og synda nokkrar ferðir sér til heilsubótar en fara svo í heita pottinn. Á gönguskíð- um er hægt að velja flatar og þægi- legar leiðir og skíða um á viðráðan- legum hraða á fallegum vetardegi eða fara alveg yfir í hinn endann og fjárfesta í fullkomnasta og dýrasta búnaði og ganga bæði hratt og langt eftir krefjandi leiðum.“ Auðvelt að byrja Segir Hilmar að það þurfi ekki einu sinni að fjárfesta í sérstökum síðan skíða tiltölulega þægilega niður aftur. „Á þeim er hægt að festa niður hælinn og eru fjallaskíðin ekki ósvip- uð svigskíðum en þau eru þó þannig hönnuð að spenna er í skíðunum svo að þegar þau eru lögð niður snertir miðjuhlutinn ekki jörðina. Þar er borið á klístrað efni, n.k. kertavax, sem grípur í undirlagið þegar þungi líkamans liggur á öðru skíðinu svo að spyrna má áfram. Einnig er hægt að fá skíði með hreistri eða rifflum og þekkist líka að festa skinn undir skíð- in til að ná gripi.“ Sigrast á vitlausu veðri Það sem hrífur Hilmar við göngu- og fjallaskíðamennskuna er m.a. hvað landið getur verið fagurt og friðsælt í vetrarskrúða og fjallaloftið tært. Skemmtilegast af öllu þykir honum þó að takast á við náttúruöflin og halda af stað í vonskuveðrum. Hann varar lesendur við að þeir sem fari óvarlega á göngu- og fjallaskíð- um séu að bjóða hættunni heim og fólk verði m.a. að huga að veður- spánni og gæta að möguleikanum á snjóflóðum. Ef skíðað er yfir jökla bætist síðan við hættan á að falla of- an í sprungu. „En með rétta bún- aðinn, þjálfunina og reynsluna, og eftir að hafa lesið í veðurspána, er hægt að bjóða náttúruöflunum birg- inn og ganga á skíðum í brjáluðu veðri.“ Er gott að byrja á námskeiði fyrir byrjendur til að læra undir- stöðurnar og í fram- haldinu stunda æf- ingar á öruggum slóðum. Nefnir Hilmar að gönguskíða- ferð um Heiðmörk eigi að vera á allra færi og síðan megi slást í för með reyndara fólki í meira krefjandi göngur og læra betur á sportið og öryggis- atriðin. Bendir hann líka á að gönguskíðafólk hafi það umfram hina sem eru háðir skíðalyftum og brekk- um að það þarf ekki að vera þykkt lag af snjó á jörðu til að taka megi gönguskíðin fram. Eru gönguskíða- leiðir oft færar þegar brekkurnar eru lokaðar vegna snjóleysis: „Svo fremi sem undirlagið er gott – mosi og gras frekar en úfið hraun – þarf gönguskíðafólk ekki mjög þykkt lag af snjó.“ Gönguskíði eiga erindi við alla Fólk þarf ekki að vera með takmarkalaust þrek til að geta notið útiveru að vetri til á göngu- og fjallaskíðum. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Það er hægt að vera á gönguskíðum víða og þarf ekki mikla fönn. Hilmar Már er göngu- skíðakempa með meiru. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Í Kjarnaskógi á Akureyri er gaman að leika sér á gönguskíðum og njóta töfra og rómantíkur vetrarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.