Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 22
S
kíðaiðkun er vinsæl hvort
sem fólk er á fjallaskíðum,
gönguskíðum eða svigskíðum.
Það skiptir auðvitað máli að
vera á góðum skíðum en
það er alltaf betra að búa sig þannig
að fólk sé viðbúið öllum veðrum.
Það skiptir til dæmis máli að vera í
góðri úlpu, með húfu og lúffur eða
vettlinga og svo skiptir bakpokinn
miklu máli.
Í bakpokanum þarf að vera
nesti, eitthvað orkuríkt og gott
eins og hnetur eða ávextir. Auk
þess er nauðsynlegt að vera með
nægan vökva með sér, vatn eða
kaffi eða te. Vatnsflöskurnar
Aspen frá Eco Vessel fást í Eir-
bergi. Þær eru handhægar og gott að
drekka úr þeim. Þær eru út stáli og
búa yfir þeim eiginleika að brotna ekki.
Þær halda köldu í 100 klukkutíma og ef
þú setur heitt í flöskurnar helst kaffið eða
teið heitt í 20 klukkutíma. Svo má líka setja vín í
þær ef fólk er alveg í ruglinu.
Þessi jakki er úr Coco Neige línunni Chanel.
L
ínan heitir Coco Neige og er lúxuslína með afar eigulegum vetrarfötum. Það er nefnilega ekkert
samasammerki á milli þess að klæða sig vel og vera hallærislegur.
Litapallettan er einföld hjá Karl Lagerfeld, yfirhönnuði Chanel. Í þessari línu er aðallega unnið með svart og beige
eða þessa vinsælu Chanel-liti. Ef þú vilt vera flottust í Bláfjöllum eða Tindastóli þá eru flíkurnar úr þessari línu mikið
augnkonfekt. Það er leikkonan Margot Robbie sem er andlit línunnar og einhvern veginn lifna fötin við þegar hún er
komin í þau og fólk langar bara út í snjóboltakast eða að gera at hjá nágrönnum þegar þessar myndir eru skoðaðar.
Sérstök
vetrarlína
Chanel
Hjarta franska tískuhússins Chanel
slær í takt við tíðarandann. Vetrar-
íþróttir hafa sjaldan verið vinsælli
en akkúrat núna og því kemur
Chanel með sérstaka línu með
sportlegum vetrarfötum.
Marta María mm@mbl.is
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Rafhitun
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
Rafhitarar fyrir heita potta
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is
íslensk
framleiðsla
í 25 ár
Hiti í bústaðinn
FOSSBERG
IÐN A Ð A R V Ö R U R O G V E R K F Æ R I
Dugguvogi 6 - 104 Reykjavík - Sími 575 7600 - www.fossberg.is
Eitt besta úrval landsins af vönduðum
vetrarvettlingum
• Leðurhanskar
• Vetrarfóðraðir
• Thinsulate
• Vatnsheldir
• Styrktir fingur og þumlar
• Sérlega hlýir og sterkir
Lýsir upp allt sjónsviðið þitt
Hægt er að kveikja
og slökkva á ljósinu
með því að veifa
hendinni fyrir
framan ljósið,
skítugar hendur og
þykkir hanskar eru
ekki lengur fyrirstaða.
Framúrskarandi endurhlaðanlegt
ENNISLJÓS
Venjuleg
ennisljós
Lýsing
I-VIEW
Þessar vatns-
flöskur fást í Eir-
berg. Þær halda
vatninu köldu í
100 klukkutíma
og kaffinu heitu í
40 klukkutíma.
Þessi gönguskíði
fást í Fjallakofanum.
Marmot-bakpoki
frá Fjallakofanum.
Húfa frá Mar-
mot fæst í
Fjallakofinn.
Vertu klár í
brekkurnar
Úlpan
Dyngja frá
66° Norður er
mjög hlý.
Coco
Neige-línan
frá Chanel
er hönnuð
fyrir þá sem
elska
vetrarsport.