Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 6

Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 6
Nokkrir sóttu um allan kvótann Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikil umframeftirspurn var eftir greiðslumarki í mjólk á síðasta inn- lausnardegi ársins. Þannig var ósk- að eftir rúmlega tveggja milljóna lítra kvóta sem er 15 faldur mjólk- urkvóti ársins. Nokkrir framleið- endur báðu um að fá allan mjólk- urkvóta ársins keyptan. Fram hefur komið að vegna þess hversu lítill framleiðsluréttur er í boði sækja bændur um ótrúlega mikið magn til að reyna að fá smá bita af kökunni sem verið er að skera. Matvælastofnun úthlutar lausum kvóta hlutfallslega, miðað við umsóknir, þó þannig að enginn getur fengið meira en 15% úthlut- aðs kvóta. Búist við breytingum á reglum Matvælastofnun innleysti fyrir hönd ríkisins greiðslumark 5 fram- leiðenda 1. nóvember, samtals tæp- lega 176 þúsund lítra, og greiddi fyrir tæpar 21,5 milljónir kr. Helm- ingnum var endurúthlutað til for- gangshópa, það er að segja til ný- liða og þeirra sem framleitt hafa mikið umfram greiðslumark á und- anförnum árum. Þá eru eftir tæpir 88 þúsund lítrar til úthlutunar úr almennum potti sem aðrir njóta með forgangshópunum. Ákaflega lítið magn er til skipt- anna til almennra bænda í ljósi þess að alls óskuðu 116 framleið- endur eftir alls tæplega 2,2 millj- örðum lítra. Til samanburðar má geta þess að greiðslumark ársins er 145 milljónir lítra. Samkvæmt upp- lýsingum búnaðarstofu Mat- vælastofnunar sóttu nokkrir um all- an kvóta ársins. Jón Baldur Lorange, fram- kvæmdastjóri Búnaðarstofu, segir að óskað hafi verið eftir því við at- vinnuvegaráðuneytið að reglugerð verði breytt þannig að sett verði hámark á það hverju hver og einn getur óskað eftir á hverjum inn- lausnardegi og fyrir árið í heild. Hann segir að málið sé einnig til umfjöllunar við endurskoðun bú- vörusamninga í nautgriparækt og hjá framkvæmdanefnd um búvöru- samninga. Á Jón Baldur von á breytingum á næsta ári.  Mikil eftirspurn en lítið framboð á framleiðslurétti í mjólk  Breytinga von Morgunblaðið/Styrmir Kári Kýr Lítið fæst fyrir umframmjólk og margir bændur vilja bæta við kvóta. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 Framleitt úr vistvænum virkum efnum sem brotna hratt niður í náttúrunni. UNDRAVÖRUR fyrir bílinn þinn Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fjölveikindi eru algeng og eru af sumum nefnd ein stærsta áskorun læknisfræðinnar á 21. öldinni. Skilgreiningin er sú að fólk sé samtímis með tvo eða fleiri lang- vinna sjúkdóma. Meðal heimilis- lækna er þekkt að oft fer saman flókin sjúkdómsmynd og erfið lífs- reynsla,“ segir dr. Margrét Ólafía Tómasdóttir heimilislæknir Í síðustu viku voru Fræða- dagar heilsugæslunnar haldnir undir yfirskriftinni Listin að eld- ast vel – alla ævi. Dagskrá þessi er vettvangur fagfólks í heilsugæsl- unni til að miðla þekkingu, kynna nýjungar, rannsóknir og verkefni svo sem það sem Margrét Ólafía flutti. Yfirskrift þess var Fjölveik- indi fullorðinna í ljósi streitu og áfalla. Vísindin sýna tengslin „Ég skoðaði stöðu fólks á milli 45 ára og sjötugs sem þjáist af langvinnum sjúkdómum. Sem dæmi mætti nefna konu um fimm- tugt með vefjagigt, langa sögu um þunglyndi og kvíða, offitu, asthma, bakflæði og slæma tann- heilsu. Eða þá karlmann um sex- tugt með langvinna bakverki, slit í hnjám, sögu um hjartaáfall, há- þrýsting og áfengissýki. Algengt er að fólk með birtingarmynd í líkingu við þessa eigi til viðbótar sögu um ýmis áföll og erfiðleika, allt frá barnæsku og fram á full- orðinsár,“ segir Margét Ólafía. Hún bætir við að fyrir heimilis- læknum sé ekkert nýtt að áföll geti leitt af sér alvarleg veikindi. Hins vegar hafi skort vísinda- legan grunn til að sýna fram á tengslin þar til á allra síðustu árum. „Heilbrigðisvísindin hafa lengi vel lagt sig eftir að smækka einstaklinginn niður einingar, svo sem líffæri, líffærahluta, frumur og gen, í leit sinni að svörum. Þá er gjarnan horft framhjá stóru heildarmyndinni, það er samspili líffæra og einstaklingsins og svo umhverfis. Það var fyrst um síð- ustu aldamót sem að gerðar voru rannsóknir sem sýndu tengsl áfalla í æsku og veikinda. En nú hefur orðið vitundavakning að þessu leyti sem er vel. Þar koma til m.a. mál eins og #metoo og opnari umræða um erfiðleika og áföll, þar sem þolendur eru til að hvattir til að skila skömminni.“ Langvinnir sjúkdómar þróast með tímanum Margrét Ólafía segir að um 15-20% af þeim sem leiti til heim- ilislækna óski aðstoðar vegna and- legra vandamála. Það sé hins veg- ar aðallega á síðustu tveimur árum eða svo sem fólk sé almennt reiðubúið að opna á sögu sína um áföll og erfiðleika áður á lífsleið- inni sem sé svo oft orsök fjölveik- inda. Þar sé langvinn líffræðileg streita sterkur orsakaþáttur. „Ein helsta orsök lang- vinnrar eitraðar streitu eru endurtekin áföll í æsku og stöðug hræðsla, svo sem vegna ofbeldis. Samspil mismunandi kerfa í lík- amanum raskast og þó röskunin hvers kerfis sé ekki nægilega mikil til að framkalla sjúkdóma strax geta langvinnir sjúkdómar þróast með tímanum. Erfiðleikar seinna á lífsleiðinni geta líka haft áhrif. Langvarandi kulnun í starfi sem ekki er brugðist við getur sett streitukerfið úr jafn- vægi, en einnig félagsleg ein- angrun, fjárhagserfiðleikar, lág félagsstaða og ofbeldi í nánu sambandi svo eitthvað sé nefnt.“ Heilsugæslan er tilbúin Heilsufarsvandi eins og að framan er lýst er algengur og raunar daglegt viðfangsefni starfsfólks heilsugæslunnar; lækna, hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks. „Heilsugæslan ætti og er að fullu tilbúin að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heil- brigðiskerfinu. Því miður hafa verið fordómar gagnvart heilsu- gæslunni; það er vanþekking á því hvaða vandamálum við getum leyst úr. Það er á færi heimilis- lækna að greina og meðhöndla alla algengustu sjúkdóma og sér- fræðiþjónustan nýtist best ef þangað fara fyrst og fremst sér- tækari tilfelli. Ég held raunar og vona að nú sé að verða breyting á viðhorfi í samfélaginu gagnvart heilsugæslunni og þjónustunni þar – og ég minni á að víða er talið til helstu mannréttinda að fólk hafi sinn fasta heimilis- lækni.“ Langvinn líffræðileg streita sterkur orsakaþáttur fjölveikinda Morgunblaðið/Sigurður Bogi Læknir Oft fer saman flókin sjúkdómsmynd og erfið lífsreynsla, segir dr. Margrét Ólafía Tómasdóttir. Áföll í æsku hafa áhrif  Margrét Ólafía Tómasdóttir fæddist í Reykjavík 1981. Hún útskrifaðist úr læknadeild Há- skóla Íslands 2007 og sem sér- fræðingur í heimilislækningum 2014. Lauk doktorsprófi í heimilislækningum og lýð- heilsuvísindum frá HÍ og NTNU í Þrándheimi 2017.  Starfar á heilsugæslunni í Efstaleiti og er lektor við læknadeild HÍ. Situr í stjórn Fé- lags íslenskra heimilislækna og starfaði á tímabili sem að- stoðarkennslustjóri sérnáms í heimilislækningum á Íslandi. Hver er hún? Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er alveg ljóst að þetta getur orð- ið snúin staða þegar nær dregur jól- um,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. Jólabókaflóðið er nú hafið af fullum þunga og nýjar bækur rata í hillur bókabúða á hverjum degi. Vinsæl- ustu bækurnar seljast gjarnan upp og þá þurfa forlögin að panta endur- prentanir til að anna eftirspurn. Nú ber hins vegar svo við að möguleikar útgefenda til að prenta innbundnar bækur á Íslandi eru litlir sem engir eftir að prentsmiðjan Oddi seldi fyrr á árinu tækjabúnað úr landi. „Það þýðir einfaldlega að við útgefendur þurfum að leita til erlendra aðila með alla prent- un á innbundnum bókum. Það hefur verið fylgifiskur jóla- bókaflóðsins að vinsælustu bækurnar hefur þurft að end- urprenta, einu sinni og jafnvel tvisvar. Við höfum pantað end- urprentanir nokkrum dögum fyrir jól og jafnvel fengið upplag afhent á Þor- láksmessu. Sá leikur verður ekki endurtekinn í bráð og alveg ljóst að það þarf að taka tillit til þessa þegar upplag er ákveðið,“ segir Egill sem telur að það taki aldrei undir þremur vikum að fá bók úr endurprentun frá Skandinavíu eða Norður- Evrópu sé hún flutt hingað með skipi. „Það þýðir að síðasti möguleikinn til að panta endurprentun er um næstu mánaðamót.“ Dögg Hjaltalín, útgef- andi hjá Sölku, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þar á bæ hefði þessi þróun ekki mikil áhrif, þar eð for- lagið gæfi ekki út neina skáldsögu í ár. Þær bækur sem Salka gæfi út yrðu einfaldlega prentaðar aftur ef þær seldust upp og í versta falli þyrfti fólk að bíða aðeins eftir þeim. „Það er hægt að fá bækur á al- veg þokkalegum tíma en svo er mað- ur þá bara djarfari í upplögum og tekur stærri sénsa,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti/Ver- öld. „Við tökum Ragnar Jónasson til dæmis í 11 þúsund eintökum, Horn- auga Ásdísar Höllu í 11 þúsund ein- tökum og Yrsu hátt í 20 þúsund ein- tökum. Maður hefur borð fyrir báru,“ segir Pétur. „Maður sér það fljótt á viðbrögðum í hvað bók stefnir, hvort það er stemning eða ekki. Og þá bíð- ur maður ekki eftir að salan sé ljós, maður verður að taka ákveðna sénsa.“ Óvissa með endurprentanir jólabóka  Allar innbundnar bækur prentaðar erlendis fyrir jólin  Útgefendur verða að taka sénsa í upplögum Egill Örn Jóhannsson Dögg Hjaltalín Pétur Már Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.