Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 við stíf lyfjagjöf og læknisskoð- anir og lengi vel leit út sem Kjart- an hefði í fullu tré við þennan skæða óvin. Kjartan lagði eftir sem áður hart að sér við vinnu og sinnti fjölskyldu og vinum óháð sjúkdómnum. En baráttan tapað- ist að lokum eins og búast mátti við. Þessi síðustu misseri í lífi Kjartans lýsa honum vel. Hann talaði alltaf tæpitungulaust, var djarfur og hreinskilinn, sinnti sínum skyldum gagnvart vinnu, fjölskyldu og vinum og lét engan eiga neitt hjá sér. Kjartan var bæði rafvirki og raftæknifræðingur að mennt og var af kollegum sínum mikils metinn í því fagi. Hann hafði ódrepandi áhuga á íþróttum og lagði drjúgt til málana á þeim vettvangi, einkum á sviði hand- bolta. Hann starfaði mikið í dóm- aramálum innan handboltans og var um árabil formaður alheims- sambands handboltadómara. Það tók að sönnu mikinn tíma en með- fram þeim önnum rak hann fyrir- tæki sitt og félaga síns „Afl og orku“ með miklum myndarbrag. Og áhugamálin voru mörg. Fyrir utan hefðbundnar íþróttir spilaði Kjartan m.a. brids og skák af miklum áhuga. Kjartan var gleði- maður, mannblendinn og átti marga vini og kunningja. Við sem minnumst Kjartans með þessari grein nutum þeirrar gæfu að hafa alist upp með Kjart- ani á Birkimel 8. Við höfum hald- ið hópinn alla tíð og hist reglulega í árlegum matarboðum auk þess sem strákarnir úr hópnum hafa hist af og til á hverju ári og teflt. Í þessum hópi var Kjartan oftar en ekki miðpunkturinn. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, sem hann hélt fast á lofti. Kjartan hélt gjarnan utan um skákmótin okkar og færði úr- slitin í töflu og hélt saman frá móti til móts. Kjartan var leiftrandi greind- ur, fljótur að hugsa og skjótur til ákvarðana. Hann átti það til á stundum að vera örlítið fljótfær sem kom þó sjaldnast að sök. Það sem Kjartan tók að sér var gert af fullum huga. Hann var atorku- maður til allra verka. Kjartan átti auðvelt með að læra tungumál og það hjálpaði honum að starfa á al- þjóðavettvangi. Hann var mikill vinur vina sinna og á hann var alltaf hægt að treysta. Við fráfall Kjartans er hugur okkur hjá fjölskyldu hans, Mörtu, börnunum þremur og barnabörn- um hans. Þeirra missir er mestur þótt margir eigi eftir að sakna Kjartans K. Steinbach. Birkimelsfélagarnir, Pétur Bjarnason. Ég kynntist Kjartani fyrir rúmum 50 árum. Við vorum þá bekkjarbræður í MR. Frá upp- hafi kunni ég vel við strákinn; hann var glaðlyndur grallari og var ekki að gera mál úr hlutun- um. Hann var þá á kafi í íþrótt- um, og vegna þess að ég var það ekki, þá voru samskiptin ekki mikil utan skólans. Hann komst síðar til æðstu metorða í alþjóða- handboltahreyfingunni, var for- maður dómaranefndar IHF, átti sæti í framkvæmdanefnd HM í handbolta, o.fl. Eftir menntaskóla skildi leiðir okkar Kjartans, en svo, 15 árum seinna, flytur hann ásamt fjöl- skyldu sinni í götuna okkar í Lágaberg 7, hús sem þau tóku við hálfbyggðu. Síðan þá hafa sam- skiptin verið mikil og ætíð frá- bær. Kjartan var alltaf glaðvær, góðlyndur, hjartahlýr og mjög greiðvikinn. Hann var ætíð hrók- ur alls fagnaðar þegar íbúar göt- unnar hittust, hvort sem var í götupartíi að sumri eða árlegum gamlársdagshittingi. Ákafi hans og gleði smitaði út frá sér enda kom ekki til greina að hóa saman í götupartí, ef Kjartan og Marta voru vant við látin. Hann hefur verið fundarstjóri götunnar frá upphafi og stýrt fundum af mik- illi röggsemi. Hafa sumir haft það Afl og orka stóðu á bak við mig og studdu mig alla leið. Þegar draga átti rafmagn í nýtt rými fyrirtæk- isins vorum við tækniteiknararn- ir látnir vinna sem handlangarar til að við fengjum tilfinningu fyrir því hvað við værum eiginlega að teikna alla daga. Þegar hins veg- ar kom að bridskennslu þraut Kjartan þolinmæðina og talaði um hvað ég væri vita vonlaus og treg, sem varð til þess að ég mun varla læra brids úr þessu. Á öðr- um sviðum vantaði ekki hólið og ég var þess alltaf fullviss að ég hefði óskoraðan stuðning Kjart- ans í öllu sem ég tæki mér fyrir hendur í lífinu þó hann skildi það ekki alltaf og væri þaðan af síður sammála því. Undir stundum hrjúfu yfirborðinu og þykjustu- látum um að vera kapítalisti ofar öllu sló hjarta úr gulli þó hann færi hjá sér þegar ég benti hon- um á það. Kjartan var einstakur maður; erfiður, sjálfmiðaður, skemmti- legur, örlátur, breyskur og gest- risinn. Það er þakkarvert að þessi stórkostlegi karakter hafi orðið á vegi okkar sem nutum samvista við hann og þær stundir eru dýrmætar. Ég votta Mörtu, Karólínu, Brynjari, Örvari og öðrum aðstandendum innilega samúð. Drífa Snædal. Fallinn er frá vinur minn Kjartan K. Steinbach eftir 2½ árs baráttu við erfiðan sjúkdóm. Leiðir okkar lágu saman á tán- ingsárunum þegar við æfðum báðir handknattleik og knatt- spyrnu hjá Þrótti sem þá átti rætur í vesturbæ Reykjavíkur. Báðir bjuggum við þá í foreldra- húsum í vesturbænum, hann á Birkimel 8a og ég á Reynimel. Jafnframt gengum við í sömu skóla, Melaskóla, Hagaskóla og MR. Eftir stúdentspróf hélt Kjartan til Danmerkur í nám í rafmagnstæknifræði. Kjartan þótti mjög efnilegur bæði í knatt- spyrnu og handknattleik og lék hann t.d. með unglingalandsliði í knattspyrnu. Það voru þó leik- reglur og dómaramál í hand- knattleik sem áttu hug hans allan og snéri hann sér fljótlega að dómgæslu í handknattleik og dæmdi m.a. í Danmörku þegar hann var við nám þar. Jafnframt lét hann félagsmál í handknatt- leik til sín taka og var um skeið framkvæmdastjóri HSÍ og sat síðar í stjórn HSÍ um áratuga skeið. Frá löngum vinskap er margs að minnast og þá ekki síst ferða- laganna sem við fórum saman. Fyrsta ferðin var með 3. flokki Þróttar í knattspyrnu 1965 en sú eftirminnilegasta var 1986 er við fórum til Úganda til að halda dómaranámskeið í handknattleik en sú ferð var á vegum HSÍ en styrkt af Þróunarsamvinnustofn- un. Þar sá ég ótrúlega þolmæði hjá honum og ástríðu fyrir leik- reglum þegar hann var að út- skýra þær niður í smáatriði. Sú ferð var ævintýri líkust og efni í mun lengri grein en þessi fátæk- legu minningarorð. Eins er eft- irminnileg ferðin sem við fórum saman ásamt eiginkonum okkar á ársþing IHF í Aþenu. Eftir að ég fluttist til Vestmannaeyja 1995 urðu samskipti okkar slitróttari en meðan hann gegndi for- mennsku í leikreglna- og dóm- aranefnd (PRC) IHF voru sím- tölin sem við áttum ófá þar sem hann greindi mér frá því sem var að gerast hjá IHF og leitaði álits, en þá sat ég sem varaformaður dómstóls EHF og því vel inni í því sem þar var að gerast. Kjartan var ákveðinn í skoð- unum og fylginn sér og þótti for- ystu IHF hann helst til óþægur ljár í þúfu þar sem hann var eng- inn jámaður. Því fór svo að hann hætti eftir átta ára setu í PRC þó viðurkennt væri að hann væri einhver mesti sérfræðingur og kunnáttumaður þegar kom að leikreglum og dómaramálum. Starf hans sem formaður PRC var mjög tímafrekt og var hann t.d. eitt árið erlendis í um hálft ár. Veit ég að Pétri, meðeiganda hans í Afli og orku, þótti ekki slæmt þegar hann hætti og gat snúið sér af fullum krafti að sinni aðalvinnu á verkfræðistofunni. Þegar ég horfi til baka yfir þau rúmlega 50 ár sem við vorum vin- ir eru þær ótrúlega margar stundirnar sem ég minnist er við sátum saman og ræddum alþjóð- legan handknattleik og hvað væri til ráða til að koma honum úr þeirri stöðu sem hann nú er í. Alltaf fundum við lausnir en framkvæmdin var erfiðari. Með fráfalli Kjartans er fallinn frá sá maður sem hafði hvað bestu og yfirgripsmestu þekk- ingu á leikreglum og dómaramál- um í heiminum. Hans verður sárt saknað. Að endingu viljum við Sigrún votta Mörtu og börnunum og fjöl- skyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Gunnar K. Gunnarsson. Skarð er fyrir skildi, hann Kjartan er allur eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm sem að lokum kom honum á kné, far- inn langt fyrir aldur fram og við félagarnir og makar Ellanna söknum góðs vinar sem við höf- um átt svo margar og eftirminni- legar stundir með í gegnum tíð- ina. Laugvetningar hafa alltaf haldið vel saman, 1970-árgangur- inn er þar engin undantekning. Úr þessum hópi kemur Ellu- klúbbur bekkjarsystra okkar og eiginkvenna sem hefur starfað með mikilli reisn á fimmta ára- tug. Við strákarnir höfum fengið að fljóta með við valin tækifæri í gegnum árin. Á þessum stundum naut Kjartan sín til fulls, góður drengur og alltaf tilbúinn til leiks hvort sem siglt var um Karíba- hafið eða teflt í októberfest, ákaf- ur og skemmtilegur, hrókur alls fagnaðar. Kjartan var góður í viðkynn- ingu, oft dálitið hrjúfur út á við en ljúfur drengur sem mjög gott og ánægjulegt var að vera með. Það sem einkenndi Kjartan var að hann gaf sig allan í verkefnin sem hann tók sér fyrir hendur þann daginn, hvort sem um starf eða leik var að ræða. Kjartan vann að framgangi handboltaíþróttar- innar, sinnti dómaramálum og komst þar til æðstu metorða á al- þjóðavettvangi. Hann var mikill keppnismaður og skipti þá litlu máli hvort um handboltaleik var að ræða eða tafl á þilfari í Karíba- hafinu. Kjartan var heljarmenni, staurakall í gamla daga og vann í háspennu á stofunni sinni sem rafmagnstæknifræðingur, á fjöll- um og við virkjanir landsins, vann fram undir það síðasta, allt- af mættur til vinnu þó að hann væri í erfiðri lyfjagjöf. Kjartan var maðurinn hennar Mörtu, bekkjarsystur okkar fé- laganna. Nú þegar við kveðjum vin okkar er hugurinn hjá henni og börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Gizur, Gunnar, Oddur, Ólafur E, Ólafur K., Rúnar og Sigmundur. Þegar Kjartan, æskufélagi okkar, greindist með alvarlegt krabbamein fyrir rúmum tveim- ur árum hringdi hann í okkur og sagði frá hvernig komið væri. Hann bað okkur ekki að auglýsa það sérstaklega, en þetta væri samt ekkert leyndarmál og við mættum alls ekki vorkenna hon- um. Hann myndi halda áfram að lifa lífinu eins og honum væri unnt og láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Í framhaldinu tók á orði að hann stjórni eins og um sé að ræða aðalfund Íslenskra aðalverktaka en ekki fund sjö einbýlishúsa! Við eignuðumst báðir börn 1993, ég stúlku og hann dreng. Þau ólust upp mikið hvort hjá öðru og voru frekar sem systkin heldur en tveir óskyldir krakkar. Samgangurinn milli okkar varð eðlilega enn meiri við þetta og alltaf var hægt að leita til Kjart- ans og Mörtu ef eitthvað var. Hann var meira að segja fenginn til þess að líta eftir skógarkett- inum Lubba eða tíkinni Skottu, ef við fórum af bæ. Honum þótti ekki verra að kötturinn sótti til hans, og hafði á því orð að Lubbi ætti alltaf griðastað hjá sér! Kjartan var í essinu sínu þegar til hans var leitað, hvort sem um var að ræða aðstoð eða að fá lán- aða hluti eða verkfæri. Oftar en ekki kom hann óumbeðinn og bauð fram aðstoð, ef hann hélt að maður þyrfti á henni að halda. Á gamlárskvöld breyttist Kjartan gjarnan í sprengjusér- fræðing götunnar; hann elskaði stóra flugelda og risatertur og nutum við hin góðs af því. Við munum líka enn eftir ýmsum skemmtilegum stundum þegar hann var í þessum ham; eins og þegar hann skaut Rambókarli sonarins upp með einni risaflaug- inni! Einu sinni, þegar kökum göt- unnar hafði verið safnað saman á planinu fyrir utan húsið okkar og sprengdar hver á eftir annarri, þá varð þetta gárum dótturinnar um megn svo þeir lágu eftir örendir. Þetta fannst Kjartani svo leiðinlegt að hann stóð fyrir söfnun á nýársdag til þess að kaupa nýja fugla handa dóttur okkar. Svona var Kjartan, hress og glaður en líka hlýr og nota- legur. Við höfum misst mikið við frá- fall hans og samkomur Lága- bergs verða ekki svipur hjá sjón með Kjartan fjarstaddan. Við munum hins vegar ætíð minnast hans sem geislandi persónu og þökkum fyrir að hafa kynnst honum. Við Hildur vottum Mörtu, Karó, Brynjari, Örvari, Fríðu og barnabörnunum innilegustu samúð. Sigurður R. Guðjónsson, Lágabergi 4. Komið er að kveðjustund, nú þegar Kjartan K. Steinbach er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Við Stefán þökkum honum fyrir samflotið í gegnum árin með Brynjari syni hans og Fríðu dóttur okkar og sameiginlegu barnabörnunum okkar, nú síðast í sumar sem leið, í sælureitnum þeirra Mörtu á Spáni. Við sendum Mörtu og krökkunum ásamt systkinum Kjartans, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Anna og Stefán. Það er með mikilli virðingu og söknuði að við kveðjum Kjartan félaga okkar í dag eftir áratuga starf fyrir handknattleikshreyf- inguna. Kjartan var fjölhæfur íþrótta- maður á yngri árum og lagði m.a. stund á handbolta, knattspyrnu og körfuknattleik með góðum ár- angri. Hann var einkum Þróttari en spilaði einnig körfuknattleik með KR. Kjartan meiddist rúmlega tví- tugur og varð að hætta keppni en fór þá að sinna dómgæslu í hand- knattleik. Það reyndist síðan verða eitt hans helsta áhugamál af mörgum. Segja má að hann hafi eiginlega tekið dómaramálin að sér, sinnti fræðslustörfum auk þess að leysa úr öllum helstu ágreinings- og álitamálum sem upp komu. Hann lagði mikið af mörkum til Handknattleikssambandsins, bæði sem framkvæmdastjóri til skamms tíma og einnig sem stjórnarmaður og varaformaður stjórnar til margra ára. Hann var alþjóðlegur eftirlits- maður og sinnti því í áratugi og tók þannig þátt í fjölmörgum stórmótum. Hann naut mikillar virðingar fyrir störf sín bæði hér heima og erlendis. Vegna yfirgripsmikillar þekk- ingar hans og reynslu komst hann til æðstu metorða innan Al- þjóðahandknattleikssambands- ins er hann varð formaður dóm- aranefndar á árunum 1996 til 2004 og fékk í kjölfarið heiðurs- viðurkenningu frá sambandinu fyrir sitt framlag. Kjartan var mjög virtur og vel liðinn í störfum sínum og auðvelt til hans að leita allt fram á síðasta dag. Kjartan fékk allar þær viður- kenningar sem hægt er að veita innan handknattleikshreyfingar- innar fyrir ómælda vinnu í þágu sambandsins og það var því okk- ur mikil ánægja er hann kom á síðasta árþing og veitti heiðurs- krossi ÍSÍ viðtöku fyrir frábært framlag til íþróttahreyfingar- innar. Mér er minnisstætt er hann var á sínu síðasta þingi Evrópska handknattleikssambandsins þeg- ar hann kynnti mig fyrir þing- fulltrúum. Við þurftum ekki að hreyfa okkur, allir komu til hans og fögnuðu komu hans. Þá áttaði ég mig á hve mikillar virðingar hann naut meðal félaga okkar. Það er mikill missir að Kjart- ani sem góðum félaga sem gott var að hafa í sinni návist en fyrst og fremst situr eftir þakklæti fyr- ir allt sem Kjartan gaf af sér til þróunar og eflingar íþróttarinnar sem var hvorki sjálfsagt né sjálf- gefið. Við sendum eiginkonu og fjöl- skyldu okkar samúðarkveðju. F.h. Handknattleikssambands Íslands, Guðmundur B. Ólafsson, formaður. Kjartan K. Steinbach Við fráfall elsku- legrar móðursystur okkar, hennar Fjólu frænku, er okkur pínu tregt um tungu um leið og margs er að minnast. Frá því að við öll ólumst upp á Öldunni var Fjóla ásamt móðursystkinum okkar einn af þessum föstu póst- um í tilverunni sem hægt var að halla sér að þegar á bjátaði og voru þau systkini mömmu okkar alltaf til staðar. Fjóla ólst upp í kreppunni miklu og á árum seinni heims- styrjaldarinnar og hefur það ef- laust markað hana sem og hennar kynslóð ásamt því að Fjóla bjó við líkamlega fötlun sem hún lét þó ekki hamla sér því hún sinnti hin- um ýmsu störfum um ævina og leysti vel af hendi. Lífsförunautur Fjólu var Guð- mundur Sigurjónsson, eða Mummi eins og hann var ætíð kallaður, og var frá Eskifirði, þau gengu í hjónaband 28. desember 1958 og eignuðust fjögur börn sem eru Ásta Jóna, Sigurjón Andri, Ingibjörg Sóley og Hildur Björk sem öll lifa foreldra sína. Um leið og við systkinin, börn Ingu Hrefnu og Jóhanns, kveðj- um Fjólu frænku með trega vott- um við elskulegum frændsystkin- um okkar og börnum þeirra ásamt eftirlifandi systkinum Fjólu, Ingu Hrefnu, Jóhanni, Ást- Fjóla Sveinbjarnardóttir ✝ Fjóla Svein-bjarnardóttir fæddist 11. júní 1935. Hún lést 29. október 2018. Útför Fjólu fór fram 3. nóvember 2018. rúnu Lilju og Árdísi Björgu okkar inni- legustu samúð. Von- um við að minningin um einstaka móður, ömmu og systur lífgi upp dimma daga og góðar minningar ylji. Einu sinni voru fjöll og fjörður sem fylgdu mér í þenn- an heim; fjörðurinn var djúpur og fjöllin há og fegurðin bjó yfir þeim Bærinn minn stóð undir bröttum hlíðum Með bryggjur og gömul hús; bátar fóru á sjóinn eins og siður er en sauðfé og menn voru dús. (Ingólfur Steinsson) Með þökk fyrir fallega sam- fylgd, elsku Fjóla frænka.Börn Ingu Hrefnu og Jóhanns, Óttarr Magni, Ásta Sif, Sveinbjörn Orri, Árdís Björg og Heiðbjört Dröfn. Þú ert mitt sólskin … Þegar ég fer með fyrstu línur þessa vinsæla dægurlags, dettur mér strax Fjóla mín í hug. Fjóla frænka eða Fjóla móðursystir sagði ég næstum alltaf þegar ég talaði um Fjólu. Hún var stór þáttur í lífi mínu á uppvaxtarárum mínum heima á Seyðis. Minningarnar ryðjast fram og ég klökkna við þær. Hver annarri ljúfari, hver annarri skemmtilegri og hver annarri dýrmætari. Hún var alltaf til staðar, gott dæmi er að þau Mummi bjuggu svo nálægt skólanum að þegar ég var komin í gaggó var ekki um annað að ræða en að fara til þeirra í löngufrímín- útunum og fá þar smurt brauð og mjólkurbland, sem var mjög vin- sælt í þá daga, en við urðum að spara mjólkina þar sem ófærðin yfir Fjarðarheiði gat haft veruleg áhrif á mjólkurbirgðirnar á heim- ilunum. Ég, börnin hennar og systkini mín höfum alltaf verið tengd afar sterkum böndum og ég er þess fullviss að hlýjan sem við mættum alltaf hjá Fjólu og fjölskyldu á þar stærstan hlut að máli. Mér eru í minni allar veislurnar sem hún galdraði fram fyrir stórfjölskyld- una á afmælum og í jólaboðum, þá var allt lagt í. Og þau hjónin léku á als oddi með fjölskyldu og vini í kringum sig. Fjóla var svona mamma númer tvö hjá mér og gat ég talað við hana tímunum saman í síma um allt og ekkert eftir að ég flutti í Hafnarfjörðinn. Þegar ég kom í heimsókn heim á Seyðis voru heimsóknir margar til hennar og gjarnan kominn nýr dagur þegar ég kyssti hana góða nótt. Hvort ég var ein á ferð eða mín stóra fjölskylda voru sömu yndislegu móttökurnar. Ég held enn upp á fallegu af- mæliskortin, sem hún sendi mér. Og gaman var þegar hún fór að læra skrautskrift, það lék í hönd- unum á henni eins og allt annað handverk. Hún var hörkudugleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, þrátt fyrir að ganga ekki heil til skógar líkamlega, þá lét hún aldr- ei neitt stoppa sig, enda með þrjóskugenin og með eindæmum ákveðin. Tilvera okkar verður snauðari án Fjólu minnar og síðustu fundir okkar í sumar sem leið geymast í minningunni. Við Hansi og börn þökkum henni af alúð samfylgd- ina og vitum að Mummi tekur fagnandi á móti henni með út- breiddan faðminn. Helena Mjöll Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.