Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.11.2018, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir stuttu kom út ljóðabók Dags Hjartarsonar sem hann nefnir Því miður og vitnar þar í setningu sem hljómar flestum setningum oftar (kemur kannski næst „hvar ertu“): „Því miður eru allir þjónustu- fulltrúar okkar uppteknir …“ og svo framvegis. Dagur sendi frá sér fyrstu ljóða- bókina, Þar sem vindarnir hvílast, 2012 og hreppti fyrir Bókmennta- verðlaun Tómasar Guðmundssonar. Skáldsaga hans, Síðasta ástarjátn- ingin, sem kom út 2016, var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópu- sambandsins. Síðasta bók hans fram að Því miður var ljóðabókin Heila- skurðaðgerðin, sem kom út á síðasta ári og fékk góða dóma. Dagur segir að hugmyndin að bókinni hafi kviknað þegar hann var einu sinni sem oftar að hringja í fyrirtæki og panta sér mat og fékk þá meldingu að því miður væru allir þjónustufulltrúar uppteknir. „Á því andartaki kom hugmyndin til mín og öll bókin. Það opnaðist leið inn í einhverjar pælingar sem hafa kraumað undir niðri hjá mér í dálít- inn tíma. Pælingar til dæmis um hvernig fyrirtæki og markaðsöfl eru alltaf að sækja af meiri grimmd inn á þetta persónulega svið, hvernig fyrirtæki eru að reyna að verða að manneskjum á samfélagsmiðlum og í símsvörun. Svo fór ég líka að hugsa um fólkið, um samfélagið sem býr til þennan veruleika og þjónustufulltrúana sem eru uppteknir og okkur sem erum líka þjónustufulltrúar þessara fyrir- tækja í raun og veru. Þetta varð þannig allt mjög órætt, sem ég næ kannski ekki utan um, en í þessari yrðingu, sem eru þjónustufulltrúar okkar, fannst mér felast einhver leið inn í þessar pælingar.“ – Þegar maður hringir í fyrirtæki mætir manni oft viðmót sem er jafn- vel smeðjulegt. „Já, þú færð betri viðtökur en þegar þú hringir í vini þína. Svo er það hitt sem fylgir stund- um í kjölfarið að símtölin kunni að vera hljóðrituð, þessar kafkaísku óbeinu hótanir. Við erum komin inn í þessa amer- ísku kurteisi, eða hvað sem við vilj- um kalla það, kapítalisminn fletur allt út. Ef við förum út fyrir þetta sjáum við hvernig kapítalisminn flet- ur út tungumálið, til dæmis þegar maður gat keypt sér frelsi á símana. Svo var ég að horfa á sjónvarps- þátt um daginn þar sem verið var að tala um áhrifavalda á samfélags- miðlum. Hér áður fyrr voru áhrifa- valdar þeir sem hvöttu fólk til að hugsa hlutina upp á nýtt eða gera eitthvað annað en núna eru áhrifa- valdar þeir sem hvetja til fullkomins aðgerðaleysis, í raun og veru tæki til að spenna upp munninn á fólki og láta það gleypa við öllu. Í þessum þætti um markaðssetningu meðal áhrifavalda var kona sem starfar hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í þessu og hún sagði að áhrifavaldar þyrftu að hafa fullkomið listrænt frelsi í mark- aðssetningu,“ segir Dagur og hlær að þversögninni. „Listamenn verða að veita stöðugt viðnám til að halda tungumálinu lif- andi og berjast gegn þessari vana- notkun á frösum sem fletur allt út. Ég er menntaskólakennari og ef ég myndi spyrja nemendur mína, kannski ég geri það á eftir, hvað orð- ið áhrifavaldur þýðir og hvort þau viti að einhvern tímann hafi þetta orð verið notað yfir Mozart eða Hall- dór Laxness myndi það koma þeim á óvart. Ég held að sú vitneskja sé eiginlega að hverfa úr tungumálinu.“ – Tunglið gefur bókina út, hvað kom til að þetta varð Tunglbók? „Tunglið gefur hana út en hún er samt ekki gefin út í 69 eintökum, hún er fyrir utan Tunglbókaseríuna. Ég vildi í raun og veru hafa, eins og áhrifavaldar, fullkomið listrænt frelsi. Það var samt enginn ágrein- ingur, ég gef út mínar bækur hjá Forlaginu, er með skáldsöguhandrit sem Forlagið gefur út á næsta ári og bar þessa bók ekki einu sinni undir þau þar. Mér fannst orkan í þessari bók bara vera á einhverjum Tunglkvarða og vildi gera hana nákvæmlega eins og ég vildi gera hana. Svo finnst mér líka gaman að gefa út bækur og ég held að ég verði kannski á nokkurra ára fresti að gefa út bók sem ég geri alveg sjálfur.“ Morgunblaðið/Hari Frelsi Degi Hjartarsyni finnst gaman að gefa út bækur og finnst hann verða að gefa út bækur sem hann gerir alveg sjálfur á nokkurra ára fresti. Kapítalisminn fletur út tungumálið  Í ljóðabókinni Því miður veltir Dag- ur Hjartarson því fyrir sér af hverju allir þjónustufulltrúar séu uppteknir The Guilty Morgunblaðið bbbbn Metacritic 82/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 18.00, 22.00 Cold War Metacritic 90/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 18.00, 20.00 Mæri Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 20.00 Mandy Metacritic 81/100 IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 22.00 Kler IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 17.30 Blindspotting Metacritic 76/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 20.00, 22.00 Hunter Killer 12 Metacritic 39/100 IMDb 6,6/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 22.10 Sambíóin Akureyri 22.20 Bohemian Rhapsody 12 Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.30 Sambíóin Álfabakka 16.30, 16.45, 19.15, 19.30, 21.55, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 19.10, 22.00 Smárabíó 15.50, 16.20, 19.00, 19.30, 22.00, 22.30 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.40 Lof mér að falla 14 Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,8/10 Smárabíó 19.40 Bad Times at the El Royale 16 Metacritic 60/100 IMDb 7,5/10 Smárabíó 22.40 Háskólabíó 20.30 Undir halastjörnu 16 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,8/10 Háskólabíó 18.20, 20.50 First Man 12 Myndin er byggð á ævisögu James Hansen; First Man: A Life Of Neil A. Armstrong, og segir söguna af fyrstu ferð- inni til tunglsins, með sér- stakri áherslu á geimfarann Neil Armstrong. Metacritic 84/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Kringlunni 19.00 Venom 16 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 17.30, 20.00, 22.40 Borgarbíó Akureyri 17.30 Night School 12 Metacritic 43/100 IMDb 5,5/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 17.30 The Nutcracker and the Four Realms Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 17.50, 20.00, 21.50 Sambíóin Akureyri 17.20, 19.30 Sambíóin Keflavík 19.30 Háskólabíó 17.50, 20.40 Smáfótur Snjómaðurinn Migo segir sögur af kynnum sínum af áður óþekktri goðsagna- kenndri dýrategund, mann- inum Percy. Metacritic 60/ 100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Kringlunni 16.45 Sambíóin Akureyri 17.20 Grami göldrótti IMDb 5,5/10 Smárabíó 15.10, 17.20 The House with a Clock in Its Walls Metacritic 57/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.30 Laura Strode og Michael Myers hittast enn og aftur, fjórum áratugum eftir að hún slapp naumlega frá honum fyrst. Metacritic 68/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 19.50, 22.00 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 21.40 Smárabíó 19.50, 22.20 Borgarbíó Akureyri 22.00 Halloween 16 A Star Is Born 12 Kvikmyndastjarna hjálpar ungri söngkonu og leikkonu að slá í gegn. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.20 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30, 21.40 Johnny English Strikes Again Leyniþjónustumaðurinn Johnny English þarf að bjarga heim- inum rétt eina ferðina. Metacritic 36/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.30, 20.00, 22.10 Smárabíó 15.20, 17.30 Háskólabíó 18.10 Borgarbíó Akureyri 20.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.