Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 9

Morgunblaðið - 05.11.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018             Eitt mesta urval landsins af t<Ekjum til lfkamsr<Ektar fyrir heimili, fyrirt<Eki, skip og lfkamsr<Ektarstoovar         l>rekhj6I .&. NordicTrack VR21 Recumbent Vandao prekhj61 sem tengist snjallsfma eoa spjaldtolvu meo Bluetooth. Moguleiki a iFit tengingu. Pulsm�lir handfongum.. Vero 179.990,- Fjol�jalfi Proform 450 LE ► Frab�r fjolpjalfi meo mjukum hreyfingum og miklum pyngdar­ moguleikum. Vero 139.990,- ◄ l>rekhj6I Proform 210CSX Einfalt og vandao prekhj61 sem hentar vel til heimilisnota. Vero 69.990,- ◄ Hlaupabraut Proform 3001 Frab�r braut fyrir hlaup, gongu og f heimanotkun, samanbrj6tanleg. Vero 149.990,-         !" #!$ % "&' $('$) #*( !" ! #!&" !+  *&$$ +) "$,-$!. R6cJravel NordicTrack RX800 ► Stillanleg loftm6tstaoa 20 �fingakerfi Auovelt ao f�ra, a hj61um Vero 129.990,- Vero 299.990,- Meiri hreyfing fyrir al/a fjolskylduna  STOFNAD 1925 Faxafeni 8, Sfmi 588 9890 Gerum tilboa - Eingongu toppmerki - Cybex - Matrix - Nordic Track - Proform Opi8 virka daga   Laugard.  -Visa-og Eurora5g - Netgfr6 -www.orninn.is Rútufyrirtækið Gray Line sendi á laugardag frá sér tilkynningu vegna nýrrar gjaldskrár Isavia fyr- ir hópferðabíla á fjarstæðum við Leifsstöð. Þar segir m.a. að hin nýja gjaldskrá brjóti gegn samkeppnis- lögum með sama hætti og fyrri gjaldskráin, en í sumar stöðvaði Samkeppniseftirlitið gjaldtöku Isavia á þessum sömu stæðum með þeim rökum að Isavia hefði misnot- að markaðsráðandi stöðu sína með óhóflegri verðlagningu við gjald- töku fyrir notkun á fjarstæðunum. Þá segir jafnframt í tilkynningu Gray Line: „Um er að ræða 1500% ofurálagningu á þann kostnað sem Isavia hefur á fjarstæðunum miðað við útreikninga Samkeppniseftir- litsins.“ Gray Line telur að fullyrð- ing Isavia um að gjaldtökunni sé ætlað að verja samkeppnislega hagsmuni og gæta jafnræðis stand- ist enga skoðun, þar sem Isavia inn- heimti mun lægri gjöld af einkabíl- um, bílaleigubílum og leigubílum en hópferðabílum. Telja Isavia brjóta lög enn á ný  „1500% ofurálagn- ing,“ segir Gray Line Hópferð Fyrirtækið segir fullyrð- ingu Isavia ekki standast skoðun. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Einfalda þarf umgjörð fjárhags- legra samskipta ríkis og þjóðkirkj- unnar þannig að greiðslur frá rík- inu sem í dag renna í ýmsa kirkju- sjóði fari einfaldlega til kirkjunnar sem sjálf ráðstafi þessum fjár- munum. Einnig á kirkjan að taka alfarið við eigin starfsmanna- málum. Sömuleiðis þarf að uppfæra greiðslur úr ríkissjóði til þjóðkirkj- unnar á grundvelli samkomulags um kirkjujarðir frá árinu 1997. Samkvæmt því greiðir ríkið laun presta en fékk í staðinn fjölda fast- eigna og jarða samkvæmt gang- gjaldi sem nú þarf að endurskoða. Þetta kom fram í máli Bjarna Bene- diktssonar fjármálaráðherra við setningu kirkjuþings á laugardag. Um greiðslur ríkisins til þjóð- kirkjunnar skv. kirkjujarða- samkomulagi segir Bjarni Bene- diktsson það þurfa að vera ótengt innri starfsemi þjóðkirkjunnar, svo sem launagreiðslum til einstakra stétta. Hann telur litla sanngirni í málflutningi þeirra sem hæst tala um aðskilnað ríkis og kirkju og að best sé að ríkið hætti afskiptum af fjármálum allra trúfélaga. „Oft virðist manni sem málflutn- ingur af þessu tagi stafi einkum frá mjög ungu fólki, sem ekki hefur lent í neinum áföllum og hefur ekki séð það starf sem kirkjan vinnur við sálusorgun og ýmiss konar félags- þjónustu. En jafnvel á Alþingi er töluverður hópur þingmanna sem virðist ekki tilbúinn til að viður- kenna að neinu leyti að þjóðkirkjan hafi hlutverk eða eigi erindi við samtímann. Ekki heldur til að virða samninga sem gerðir hafa verið,“ sagði Bjarni Benediktsson. Við upphaf kirkjuþings á laugar- daginn tók Drífa Hjartardóttir fv. alþingismaður við sem forseti kirkjuþings og er hún fyrst kvenna í því embætti. Á þinginu, sem stend- ur fram í líðandi viku, verður til umræðu sameining prestakalla og endurskoðun á sambandi ríkis og kirkju. Ganggjald fyrir kirkjujarðir verði endurskoðað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vídalínskirkja Þingstaður ársins.  Fjárhagsleg samskipti kirkju og ríkis einfölduð  Drífa Hjartardóttir nýr forseti kirkjuþings Þörf er á 200 milljónum króna á ári frá stjórn- völdum til að losna við biðlista á Vogi. Leggja þyrfti inn átta á dag í stað sex eins og nú er til að losna við biðlist- ann. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, en í Silfrinu á RÚV sagði Kári það ákaflega erfitt að fá fíknisjúkling til að þiggja meðferð og þegar hann loksins féllist á það þá entist sá vilji frekar skammt. Þess vegna væri biðlistinn, upp á 590 manns, „gjörsamlega ófær“. „Það er faraldur af fíknisjúk- dómum á Íslandi í dag og fólk er að deyja af þeim. Fíknisjúkdómar eru algengasti dauðdagi ungs fólks á Ís- landi í dag á milli 18 ára og fertugs,“ sagði Kári. Þörf á 200 milljónum frá stjórnvöldum Kári Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.