Morgunblaðið - 05.11.2018, Page 14

Morgunblaðið - 05.11.2018, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 e u or , r y uo nar, st r s nv rp, m nn s nv rp, soundbarir, bassabox og ýmislegt annað. 15% afsláttur af flestum SAMSUNG vörum* í nokkra daga LÁGMÚLA 8 - 530 2800 *Athugið að afslátturinn gildir ekki af öðrum sértilboðum sem eru í gangi. Ekki er afsláttur af símum, spjaldtölvum eða úrum. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Erfitt er að finna titil sem lýsir því nægilega vel hvað John Cohn fæst við. Sjálfur hefur hann gaman af að nota titilinn „hæstvirtur æsingamað- ur“, en segja má að John fái að leika lausum hala hjá bandaríska tækni- risanum IBM. Þar hefur hann komið víða við, sinnt því sem honum þykir forvitnilegast hverju sinni, og eftir fjögurra áratuga feril á John heiður- inn af mörgum tugum einkaleyfa. Hann varði t.d. mörgum árum í að þróa vélbúnað fyrir leikjatölvur sem í dag er nýttur í rafmyntaframleislu, og lengi vel fékkst hann við þróun hlutanetsins. Í dag er það gervi- greind sem á hug Johns allan en á hádegisverðarfundi Origo á fimmtu- dag ætlar hann hins vegar að tala um mikilvægi þess að leika sér í vinnunni. „Ef það er eitt sem ég hef lært öll þessi ár hjá IBM þá er það mikilvægi þess að líta á vinnuna sem leik: að nálgast viðfangsefnin með ákveðinni forvitni og tilhlökkun, og þeirri ástríðu sem fylgir því að leika sér með hlutina,“ segir John. „Það sem gerist þegar þessi eiginleiki hverfur er að við stífnum upp, verðum ekki eins sveigjanleg í hugsun og ekki eins frjó.“ Kennt að fylgja reglum Að mati Johns á þetta við um allar stéttir, ekki bara tölvunar- og verk- fræðinga eins og hann. Fólk sem fæst við tækni og tölur verði samt oft að leggja sig sérstaklega fram við að tileinka sér leikjaviðhorfið því í há- skólanámi þess var því innrætt allt önnur nálgun: „Verkfræði er t.d. kennd með mjög alvörugefnum hætti þar sem allt er stíft og strangt, aðeins ein rétt aðferð til að gera hlut- ina og bara eitt rétt svar. En þvert á móti eru vísinda- og stærðfræði- greinar í eðli sínu til þess gerðar að leika, gera tilraunir, grúska og sjá hvað kemur í ljós.“ Segir John að það sé ekki fyrr en við leyfum okkur að leika sem að okkur tekst að líta upp úr amstri hversdagsins og finna nýjar lausnir. Sá sem geri ekki annað en að fylla daginn af alls kyns skylduverkefnum og leysa úr þeim eftir sömu formúl- unni dag eftir dag stundi enga ný- sköpun. „Taka þarf meðvitaða ákvörðun um að taka frá tíma fyrir leik og tilraunastarfsemi því annars fyllist allur vinnudagurinn – og gott betur – af öllum mögulegum verk- efnum sem þola enga bið.“ Stjórnendur leyfi mistök Bendir John á að það sé einmitt í gegnum leik og tilraunir sem margar mikilvægustu uppfinningar mann- kynssögunnar urðu til, jafnvel fyrir algjöra heppni. „Nefna má útvarpið og fúkkalyf sem dæmi. Ef ég leitaði til kollega minna sísvona og bæði þau að reiða fram þrjár einkaleyfis- bærar hugmyndir þá myndi lítið ger- ast, en ef ég gæfi þeim tíma til að leika, prófa, fikta og fylgja eigin for- vitni er næsta víst að eitthvað nýtt og áhugavert kæmi í ljós.“ Bæði þarf fagfólk að reyna að temja sér þetta viðhorf og vinnu- brögð en John segir það ekki síst hvíla á stjórnendum að skapa vinnu- umhverfi þar sem hvatt er til leiks. „Fólk þarf að vita að það er í lagi að taka áhættu og gera mistök, og þó ekki sé hvatt til mistaka þá sé ekki heldur refsað fyrir þau en reynt að læra af þeim. Fagfólkið þarf líka að hafa það hugfast að flestir þeir sem tekist hefur að skara fram úr á sínu sviði hafa verið „óhlýðnir“ og þorað að gera hlutina ekki alveg eins og þeim var sagt – og einmitt þannig fundið betri lausnir.“ Leikur leiðir til nýsköpunar Tilviljanir John Cohn segir að leikur leiði til tilrauna og nýrra uppgötvana og að stjórnendur þurfi að skapa svigrúm fyrir mistök. Bendir hann á að ákveðin tegund óhlýðni einkenni flest það fólk sem skarar fram úr.  Einn af fremstu hugvitsmönnum IBM segir seint leiða til framfara ef fólk fylli daginn af verkefnum sem það leysi eftir forskrift  Vinnan á að vera leikur á kínverskan varning. Kvaðst hann reikna með samningi sem yrði sanngjarn fyrir bæði löndin og hagstæður fyrir Bandaríkin. Að sögn Reuters er fyrirhugað að Trump eigi kvöldverðarfund með Xi Jinping Kínaforseta á ráðstefnu leiðtoga G20-ríkjanna í Buenos Aires í lok nóvember og þar muni þeir ræða viðskiptasamband þjóðanna nánar. Það sem af er árinu hafa Bandaríkin hækkað tolla á kínverskan innflutning að andvirði 250 milljarða dollara og hafa Kínverjar svarað í sömu mynt með tollum á 110 milljarða dala virði af bandarískum varningi. ai@mbl.is Ráða má af ummælum Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta að það styttist í að ríkisstjórn hans ljúki gerð viðskiptasamnings við Kína og endi verði bundinn á tollastríðið sem þjóðirnar tvær hafa háð að undanförnu. „Kína er mjög áhugasamt um að semja,“ sagði Trump þegar hann ávarpaði blaðamenn í Wash- ington á föstudag. „Við höfum átt í ákaflega góð- um viðræðum og erum mun nær því að ná ein- hverri lendingu.“ Bætti hann við að vel hefði gengið að leysa úr ágreiningi þjóðanna. Varaði Trump jafnframt við að hann gæti engu að síður lagt frekari tolla Trump telur samning við Kína í sjónmáli  Segir von á sanngjörnu samkomlagi sem verði Bandaríkjunum hagstætt AFP Þíða Xi og Trump munu hittast í lok mánaðarins. 5. nóvember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.38 120.96 120.67 Sterlingspund 156.88 157.64 157.26 Kanadadalur 92.15 92.69 92.42 Dönsk króna 18.455 18.563 18.509 Norsk króna 14.468 14.554 14.511 Sænsk króna 13.349 13.427 13.388 Svissn. franki 120.59 121.27 120.93 Japanskt jen 1.0662 1.0724 1.0693 SDR 167.29 168.29 167.79 Evra 137.71 138.49 138.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.3659 Hrávöruverð Gull 1223.25 ($/únsa) Ál 1959.0 ($/tonn) LME Hráolía 76.28 ($/fatið) Brent Úrslit frumkvöðlakeppninnar Gull- eggsins voru kynnt um helgina og var það Flow VR sem stóð uppi sem sigurvegari. Morgunblaðið fjallaði fyrst um hugleiðsluforritið Flow árið 2016 en með Flow VR á að bjóða upp á „áhrifaríka hugleiðslu í alltumlykj- andi sýndarveruleika“ eins og það er orðað í tilkynningu. Í öðru sæti keppninnar hafnaði forritið Greiði sem skapar markað fyrir öll möguleg verk og viðvik, allt frá kennslu og viðgerðum yfir í garð- sláttu og gæludýrapössun. Þriðja sætið kom í hlut Eireium sem þróar dreifðan hugbúnað til að auka gegnsæi, traust og nýtni í fjár- magni sem varið er til hjálparstarfs, neyðar- og þróunaraðstoðar um all- an heim. Einnig hlutu viðurkenningar fjár- tæknisprotinn Ekki banka, Álfur brugghús og Värk, sem endurvinnur kaffikorg til að rækta ostrusveppi. Í ár gerðist það í fyrsta skipti að kynjahlutföll umsækjenda í Gullegg- inu voru hnífjöfn. Gulleggið á sér 11 ára sögu og seg- ir Icelandic Startups, sem skipulegg- ur viðburðinn, að af þeim fyrirtækj- um sem stofnuð hafa verið í kjölfar þátttöku í keppninni séu 76% enn starfandi í dag. ai@mbl.is Flow VR hreppti Gulleggið Kátar Tristan E. Gribbin og Þóra B. Elvarsdóttir stofnendur Flow VR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.