Morgunblaðið - 05.11.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.11.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2018 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 GLÆNÝJAR LÚÐUSNEIÐAR Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn SÍLDIN FRÁ DJÚPAVOGI ER KOMIN KLAUSTUR-BLEIKJA GLÆNÝ LÍNUÝSA Íbúar á Nýju-Kaledóníu, eyjaklasa í Suðvestur-Kyrrahafi, felldu tillögu um sjálfstæði frá Frakklandi með naumum meirihluta í þjóðar- atkvæðagreiðslu sem fór fram í gær. 56,4 prósent greiddu atkvæði gegn sjálfstæði þjóðarinnar og var kosn- ingaþátttaka 80,63 prósent. Niðurstaðan var ekki eins afdrátt- arlaus og búist var við en kannanir gáfu til kynna að á milli 63 og 75 pró- sent kysu gegn sjálfstæði frá Frökk- um. Þjóðaratkvæðagreiðslan er liður í samkomulagi franskra stjórnvalda við íbúa eyjanna frá 1998, en alls hafa heimamenn heimild til að halda þrjár slíkar til ársins 2022. „Við erum smáu skrefi frá sigri og við eigum eftir að kjósa tvisvar í við- bót,“ sagði Alosio Sako, formaður að- skilnaðarhópsins FLNKS, eftir að úrslitin voru kunngerð. Við annan tón kvað þó hjá Emm- anuel Macron Frakklandsforseta, sem sagðist stoltur yfir því að heima- menn hefðu ákveðið að taka þetta sögulega skref með Frökkum. Niðurstaðan væri til marks um traust við Frakkland, framtíð lands- ins og gildi þess. Macron hélt sig að mestu frá kosningabaráttunni en sagði þó í heimsókn sinni til Nou- méa, höfuðborgar Nýju-Kaledóníu, að Frakkland væri ekki eins fallegt án Nýju-Kaledóníu, þaðan sem fjórðungur alls nikkels í heiminum kemur. Þar að auki er landfræðileg lega eyjanna mikilvæg Frökkum af hernaðarástæðum og fiskimið Nýju- Kaledóníu eru sömuleiðis gjöful. Sjálfstæðistillaga felld með 56,4%  Atkvæðagreiðsla í Nýju-Kaledóníu AFP Sjálfstæði Frá kjörstað í Nouméa, höfuðborg Nýju-Kaledóníu. Meirihluti íbúa kaus gegn sjálfstæði frá Frökkum. Kjörsókn var rúmlega 80 prósent. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Bandaríkjamenn ganga til kosninga á morgun þegar mið-kjörtímabilskosn- ingar fara fram um allt landið. Alls staðar er kosið til fulltrúadeildarinnar en víða einnig til ríkisstjóraembættis eða öldungadeildar. Sums staðar er kosið um allt þrennt. Kosningabar- átta demókrata og repúblikana náði hámarki um helgina og tók Donald Trump virkan þátt í baráttu repúblik- ana enda eru mið-kjörtímabilskosn- ingarnar á morgun sagðar ákveðinn prófsteinn á fyrstu tvö ár hans í sæti Bandaríkjaforseta. Forveri hans í starfi, Barack Obama, sótti fundi með demókrötum í ríkjum þar sem mjótt er á munum. Skilaboð beggja til kjós- enda sinna voru að kjörsókn ætti eftir að ráða úrslitum á morgun. Kannanir benda til þess að repú- blikanar haldi meirihlutanum í öld- ungadeildinni en að demókratar nái að nýju meirihluta í fulltrúadeildinni. Sögulega tapar Bandaríkjaforseti þingsætum í fyrstu mið-kjörtímabils- kosningum sem hann fer í gegnum á fyrsta kjörtímabili, en einnig hefur, sögulega séð, uppgangur í efnahag þjóðarinnar aukið stuðning forsetans, sem hefur verið raunin í Bandaríkj- unum í forsetatíð Trumps. Þá segja skýrendur óljóst hvaða áhrif nýleg at- vik, skotárás á bænahús í Pittsburgh í lok síðasta mánaðar og bréfsprengj- urnar sem stuðningsmaður Trumps sendi á pólitíska andstæðinga hans, einnig í síðasta mánuði, hafi á niður- stöðu kosninganna. Andstæðingar forsetans segja glæpina afleiðingu þeirrar sundrungar sem orðið hefur í Bandaríkjunum frá því að Trump sigraði í forsetakosningunum 2016. Repúblikanar hafa aftur á móti beint sviðsljósinu að kröftugum hagvexti undanfarin misseri en Trump hefur á sínum fundum farið áfram mikinn í málefnum innflytjenda og landa- mæragæslu. Demókratar segjast ætla að standa vörð um þær umbætur sem gerðar voru á heilbrigðiskerfinu í for- setatíð Obama og átalið Trump fyrir ómannúðlegar aðgerðir í baráttunni gegn innflytjendum. „Meirihluti repúblikana þýðir fleiri störf og færri glæpir. Meirihluti demó- krata þýðir fleiri glæpir og færri störf, mjög einfalt,“ sagði Trump við kjós- endur í Belgrade í Montana, en Obama sagði við kjósendur í Georgíu, þar sem Stacey Abrams freistar þess að verða fyrsta svarta konan til að gegna emb- ætti ríkisstjóra: „Ég er hér af einni ástæðu, að biðja ykkur um að kjósa,“ sagði Obama. „Afleiðingarnar af því að gera það ekki eru djúpstæðar því land- ið okkar er á krossgötum. Karakter lands okkar er á kjörseðlinum.“ Spennan vex fyrir mið- kjörtímabilskosningar  Bandaríkjamenn ganga til mið-kjörtímabilskosninga á morgun AFP Kosningar Donald Trump Bandaríkjaforseti á „Make America Great Again“- kosningafundi á Yellowstone-alþjóðaflugvellinum í Montana á laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.