Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 11
Strax við fimmtán ára aldur má greina að stúlkur hafa mun minni áhuga á raungreinum en piltar og víða reyna stjórn-
völd að bæta úr því. Á myndinni er dr. Donna Strickland sem hlaut á dögunum Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði.
Það hve fáar konur og stúlkur leggja
stund á raungreinanám í bæði fram-
halds- og háskólum hefur valdið því
að hjá þróuðu hagkerfunum hefur
orðið til „stafrænt kynjabil“ hjá upp-
finninga- og hugbúnaðarfólki. Kemur
þetta fram í nýrri skýrslu OECD.
Skýrslan, sem fengið hefur titilinn
Bridging the Digital Gender Divide,
er fyrsta heildstæða rannsóknin á
hvernig kynin skipta með sér einka-
leyfaumsóknum á stærstu hugverka-
mörkuðum heims: Bandaríkjunum,
Evrópu, Japan, Suður-Kóreu og
Kína. Kom í ljós að á árunum 2010 til
2015 voru aðeins 9 af hverjum 100
einkaleyfum sem veitt voru í G20
löndunum veitt vegna uppfinninga
kvenna. Hlutfallið lækkar niður í 7 af
hverjum 100 þegar skoðuð eru einka-
leyfi vegna nýrrar upplýsinga- og
samskiptatækni.
Þó svo að hlutur kvenna í úthlutuð-
um einkaleyfum hjá G20-ríkjunum
hafi hækkað úr 5,6% árið 1994 upp í
8,4% árið 2014 varar Mariagraza
Squicciarini, höfundur skýrslunnar,
við því að ef þróunin heldur áfram
með sama hraða „megi vænta þess að
hlutur kynjanna í nýsköpun verði
ekki farinn að nálgast jafnvægi fyrr
en árið 2080.“
Dr. Squicciarini, sem er hátt settur
hagfræðingur hjá OECD, og meðhöf-
undar hennar hjá stofnuninni komust
að því að enn sjaldgæfara er að þau
uppfinningamannateymi sem standa
að baki einkaleyfaumsóknum hjá G20
ríkjunum séu eingöngu skipuð kon-
um, eða aðeins 4% tilvika frá 2010 til
2015. Á sama tímabili voru meira en
þrjú af hverjum fjórum uppfinn-
ingateymum einvörðungu skipuð
karlmönnum.
OECD skoðaði líka hvernig kynja-
skiptingin er í hugbúnaðargeiranum
og komst að því að af þeim opnu hug-
búnaðarpökkum sem þróaðir voru
með hugbúnaðarmálinu R frá október
2012 til desember 2017 voru þróunar-
teymin eingöngu skipuð karlmönnum
í þremur af hverjum fjórum tilvikum.
Bilið myndast snemma
Höfundar skýrslunnar telja að
„stafræna kynjabilið“ megi rekja til
þess hvernig menntun er háttað bæði
á grunn- og háskólastigi.
Samkvæmt tölum OECD mynda
konur aðeins fjórðung útskrifaðra
nemenda raungreinadeilda háskól-
anna í G20 löndunum, þ.e. á sviðum
vísinda, tækni, verkfræði og stærð-
fræði.
Squicciarini segir að af þeim sem
útskrifast með gráðu á þessum svið-
um „fara færri konur en karlar í störf
tengd sínu fræðasviði“.
En greina má mun í áhuga
kynjanna á raungreinum mun fyrr en
það.
Höfundar skýrslunnar segja að í
OECD-löndunum séu fimmtán ára
piltar líklegri til að vilja starfa í upp-
lýsinga- og samskiptatæknigeiranum
en stúlkur á sama aldri, alveg óháð
frammistöðu þeirra í námi. Þegar
OECD-löndin 35 voru skoðuð sem ein
heild kom í ljós að aðeins 0,5% stúlkna
á fimmtánda aldursári sögðust vilja
vinna við upplýsingatækni, en 5%
piltanna, samkvæmt alþjóðlegum
námsmannakönnunum OECD.
„Nemendur og kennarar virðast
ekki leggja eins hart að stúlkum og
piltum að mennta sig í raungreinum
og eru ýmsar ástæður fyrir því,“ segir
Squicciarini.
„Í tilviki stúlknanna gæti verið að
foreldrum þeirra hugnaðist betur að
þær stefndu á atvinnuferil sem fellur
betur að því að sjá um heimilið, sem
heilt á litið virðist reiknað með að
lendi á herðum kvenna,“ bætir hún
við.
Í sumum löndum hafa stjórnvöld
markað formlega stefnu sem miðar að
því að gera fleiri stúlkur áhugasamar
um nám í raungreinum. Árið 2011
hleypti ríkisstjórn Hollands af stokk-
unum verkefninu „Talent Viewer“ til
að fræða nemendur á aldrinum 9 til
12 ára um þau störf sem raungreina-
menntun opnar leiðirnar að. Í Mexíkó
á verkefnið „NiñaSTEM Pueden“ að
hvetja unga kvenkyns námsmenn til
að leggja raungreinarnar fyrir sig og í
Evrópu fjármagnar ESB verkefnið
„Mind the Gap“ sem á að bæta
frammistöðu stúlkna í raungreina-
fögum.
„Að minnka stafræna kynjabilið og
stuðla að því að konur verði virkari
þátttakendur á þessu sviði er ekki að-
eins til hagsbóta fyrir konurnar sjálf-
ar, heldur líka fyrir þeirra nánustu,
þar á meðal börnin þeirra, ættingja
og nærsamfélag,“ segir Gabriela Ra-
mos, starfsmannastjóri OECD og
fulltrúi samtakanna hjá G20 hópnum.
„Það leiðir, þegar upp er staðið, til
minni ójöfnuðar, aukinnar velferðar í
samfélaginu og kröftugri hag-
vaxtar.“
Færri konur leiða til
„stafræns kynjabils“
Eftir Valentinu Romei í London
Rannsókn OECD sýnir að
konur eiga sáralítinn hlut í
einkaleyfum vegna tækni-
uppfinninga.
AFP
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Að fjárfesta í Silicon Valley Bank
hefur reynst ágætis leið til að veðja
á velgengni tæknigeirans. Undan-
farin fimm ár hefur þetta veðmál
aldeilis borgað sig því eignasafn
bankans hefur tvöfaldast að stærð
og hlutabréfaverðið þrefaldast. En
náið samband Silicon Valley Bank
og bandarískra sprotafyrirtækja er
farið að valda vandræðum nú þegar
markaðurinn er í söluham. Senni-
lega á bankinn erfiða daga framundan, a.m.k. fram á næsta ár.
Flestir mælikvarðar benda til þess að SVB Financial, móðurfyrirtæki
bankans, vaxi hratt. Hagnaður félagsins hefur vaxið um nærri tvo-þriðju
miðað við síðasta ár. Bankinn nýtur góðs af því að tæknigeirinn er orðinn
viljugri en áður að taka lán til að geta ýtt því lengur á undan sér að fara á
hlutabréfamarkað eða þynna út eignarhaldið. Tæknigeirinn myndar
núna fimmtung af skuldsetningarvísitölu S&P, Leveraged Loan 100, og
er það tvöfalt hærra hlutfall en fyrir áratug. Á þremur áratugum hefur
bankinn byggt upp gott viðskiptasamband við tækniheiminn og er því oft
sjálfgefið að greinin leiti til hans eftir lánum.
En núna gæti það gerst að ekki yrði framhald á samfelldri tekjuaukn-
ingu hvern ársfjórðunginn á fætur öðrum. Á föstudag birti bankinn upp-
gjör þriðja ársfjórðungs sem sýnir að tekjur hafa aukist um þriðjung. En
samt lækkaði hlutabréfaverðið um 15%.
Finna má tvær mögulegar og óskemmtilegar skýringar á verðlækkun-
inni. Önnur er sú að hægt hefur á innlánum. Hin er að gæði lánasafns
bankans fer versnandi. Það er aðallega fyrra atriðið sem ástæða er til að
hafa áhyggjur af.
Það er rétt að afskriftahlutfall – það hlutfall lána sem sennilega tekst
ekki að innheimta – hefur hækkað upp í 22 punkta af heildarútlánum, en
var 15 punktar á sama tíma í fyrra. Það gæti verið áhyggjuefni fyrir
banka sem lánar fyrirtækjum í geira þar sem fáum eignum er til að dreifa
til að taka upp í skuldir ef ekki er staðið í skilum. En lánasafnið er í háum
gæðaflokki og þar sem bankinn hefur sérhæft sig í þjónustu við frum-
kvöðla, áhættufjárfesta, og framtakssjóði nær Silicon Valley Bank að
sópa upp innlánum geirans. Hlutfall innlána og útlána hjá SVB er 57%,
sem er lægra en hjá mörgum meðalstórum bönkum í Bandaríkjunum.
Samdráttur í vexti innlána – sem jukust aðeins um 2% á ársfjórðung-
num – veldur meiri áhyggjum. Til að auka innlán þarf bankinn að borga
hærri vexti og það myndi bitna á hagnaðinum. Silicon Valley Bank þarf
að endurhugsa vaxtarplön sín þar til kemur í ljós hvort bæði niður-
sveiflan á hlutabréfamarkaði og minnkandi eftirspurn eftir vörum
bankans verður tímabundin eða varanleg.
LEX
Silicon Valley
Bank: lánamörk