Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 12
FORRITIÐ
Fjarvinna er framtíðin. Stjórnendur
vita að til að halda í hæfasta starfs-
fólkið kemur varla annað til greina
en að leyfa þeim sem vilja að vinna
að heiman, eða jafnvel í útlöndum.
Ef rétt er haldið á spilunum græða
allir: starfsmaðurinn fær meiri
sveigjanleika til að samræma vinnu
og einkalíf, og vinnuveitandinn getur
nýtt sér krafta starfsmannsins á
dögum sem annars hefðu verið alveg
ónýtir, s.s. þegar hjúkra þarf veiku
barni eða standa vaktina heima
vegna starfsdags í skólanum.
En því er heldur ekki hægt að
neita að það getur verið snúið að
stjórna teymi fólks sem ekki er á
staðnum. Eitt er að hafa stöku
starfsmann í fjarvinnu, að sinna af-
mörkuðum verkefnum, og annað að
hafa heilan hóp fagfólks úti um allar
þorpagrundir.
Teamwatch (http://team-
watch.xyz) er nýtt forrit sem á að
leysa vandann og virkar bæði fyrir
OSX- og Windows-stýrikerfi.
Með Teamwatch á m.a. að vera
auðvelt að sjá á hvaða tímabelti
starfsmenn eru staddir og eins hægt
að sjá í einni svipan hver er við tölv-
una og hver er fjarverandi, veikur
eða einfaldlega í fríi þann daginn. Er
því engin hætta á að hringja óvart í
starfsmann í miðju matarhléi, eða
bíða í margar klukkustundir eftir
svari frá kollega sem er steinsofandi
hinum megin á hnettinum.
ai@mbl.is
Haltu betur utan
um fjarvinnufólkið
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018SJÓNARHÓLL
Deyr fé, deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír, deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Úr Hávamálum.
Warren Buffett hefur tjáð sig um orðspor við ýmis
tilefni og hann hefur meðal annars sagt eftirfarandi:
„Það tekur 20 ár að byggja upp gott orðspor en að-
eins 5 mínútur að rústa því.
Ef þú hefur þetta hugfast
temur þú þér breytt vinnu-
brögð“. Við annað tilefni
skrifaði hann: „We can
afford to lose money – even
a lot of money. But we can’t
afford to lose reputation –
even a shred of reputation“.
Mörg íslensk fyrirtæki og
stofnanir hafa nýlega lent í
alvarlegum orðsporsvanda.
Nýjasta dæmið er svokallað
braggamál. Ekki er svo
langt síðan Harpa var í kast-
ljósinu og enginn hefur lík-
legast gleymt máli kísil-
verksmiðjunnar United
Silicon í Helguvík.
Einkennandi fyrir öll þessi
mál var að viðbrögð hlut-
aðeigandi aðila virkuðu oft á
tíðum fálmkennd og gerðu
jafnvel illt verra. Ef marka má viðbrögðin ein og sér
virðist kunnáttu á sviði orðspors- og krísustjórnunar
vera áfátt hér á landi. Sjálfsagt hafa þessi fyrirtæki
leitað til ráðgjafa þegar vandinn kom upp en það
virðist ekki hafa lægt öldurnar.
En hvers vegna hefur tíðni slíkra mála aukist í nú-
tímanum og af hverju ná þau svona miklum hæðum í
umræðunni sem raun ber vitni? Hér koma hraðvax-
andi breytingar á landslagi upplýsingatækninnar og
samfélagsmiðlar inn í myndina, en þessir miðlar hafa
innleitt nýja ákefð, hraða og slagkraft í fjölmiðlun.
Í samfélagi nútímans ríkja tvenns konar fjölmiðlar
– annars vegar hefðbundnir, ritstýrðir miðlar sem
margir hverjir leggja áherslu á fagmennsku og hins
vegar samfélagsmiðlar. Nú getur hver sem er fram-
leitt efni, deilt því með öðrum notendum og dreift
efninu til stórra hópa notenda á örskotshraða, hve-
nær sem er sólarhringsins árið um kring. Þetta er
bylting í boðmiðlun sem jafnframt gerir notendum í
árásarhug fært að ráðast með miklu afli á ein-
staklinga og fyrirtæki.
Í þessu sambandi er rétt að
minnast orða Marks Zucker-
bergs, eins stofnenda Face-
book, sem sagði að tilgangur
Facebook væri að tengja sam-
an fólk og fyrirtæki víða um
heim með jákvæðum hætti.
Menn geta svo velt því fyrir
sér hvort þetta hefur gengið
eftir og hvort Facebook hefur
frekar verið til góðs eða ills.
Gott orðspor er gulls ígildi
en jafnframt getur það verið
mjög fallvalt. Einnig er ljóst að
laskað orðspor er mjög skað-
legt fyrirtækjum og stofn-
unum. Því er mikilvægt að orð-
spori sé stjórnað, það sé litið á
það sem hvern annan stjórn-
unarþátt sem ber að taka al-
varlega og því sé ekki einungis
sinnt þegar skaðinn er skeður.
Það snýst ekki bara um PR-mál sem tekið er á þegar
allt er komið í hnút.
Greining og forvarnir fyrirtækja og stofnana á
sviði orðsporsstjórnunar skipta hér mjög miklu máli
– þeim mun slakari sem þær eru, þeim mun erfiðara
getur reynst að slökkva eldana þegar allt fer í bál og
brand. Stjórnun orðspors þarf að flétta inn í stefnu-
mótunina frá byrjun, auk þess sem sá er stýrir al-
mannatengslum fyrirtækisins þarf að vera í nánum
tengslum við aðalstjórnendur og með á nótunum í
daglegri ákvarðanatöku.
MARKAÐSMÁL
Þorsteinn Þorsteinsson
rekstrarhagfræðingur (M.Sc.) og deildarstjóri
hjá Hagstofu Íslands
Orðsporsvandi
”
Í þessu sambandi er rétt
að minnast orða Marks
Zuckerbergs, eins stofn-
enda Facebook, sem
sagði að tilgangur
Facebook væri að tengja
saman fólk og fyrirtæki
víða um heim með já-
kvæðum hætti. Menn geta
svo velt því fyrir sér hvort
þetta hefur gengið eftir og
hvort Facebook hefur frek-
ar verið til góðs eða ills.
HARI
Miklu meira en bara
Loftdæla OMEGA
12V 30L
8.995ViAir 12V loftdælurí miklu úrvali
Öflugar
háþrýstidælur
165Bör
1800W
áþ
65
19 999
1/2 Topp
Viðgerðarbretti
4.895
frá 1.999 34.99
Verkfæraská
á hjólum
7.99
9 999
Hjólafesting á bíl
frá 3.995
Sonax hreinsivörur
á frábæru verði
Hjólatjakkur
2T m/tösku
3.795
Álskóflur