Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 16

Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Segja trúnaðarbrest ástæðu … Anna tekur við sem framkvæmda … Fjögur átakaár hjá VÍS Óþekkt kona í stjórn tekjuvefsfélags Úr fluginu í uppbyggingu Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Fyrirtækjaráðgjöf Kviku metur kaup HB Granda á Ögurvík sem hagfelld fyrir félagið að því gefnu að forsendur stjórnenda HB Granda um samþættingu félaganna séu raunhæfar. Þetta kemur fram í áliti bankans um kaupin sem kallað var eftir samkvæmt tillögu lífeyrissjóðs- ins Gildi sem á 8,62% hlut í félaginu. Sjóðurinn taldi þörf á frekara áliti vegna fyrirliggjandi tengsla félag- anna. Guðmundur Kristjánsson er eigandi Útgerðarfélags Reykjavík- ur, sem á Ögurvík, en Útgerðarfélag Reykjavíkur er einnig langstærsti eigandi HB Granda þar sem Guð- mundur er jafnframt forstjóri. „Þetta kemur mér ekki á óvart,“ segir Guðmundur í samtali við Við- skiptaMoggann. Í álitinu kemur fram að stjórnendur HB Granda telji að EBITDA-framlegð á hvert kíló aflaheimilda muni batna á milli ára vegna hagfelldari markaðs- aðstæðna og ytri skilyrða ásamt lækkun kostnaðar vegna samþætt- ingar og hagfelldari nýtingar eigna samþætts félags. „Það þýðir ekkert að vera í útgerð ef þú átt ekki afla- heimildir,“ segir Guðmundur Krist- jánsson inntur eftir frekari við- brögðum. Samkvæmt upplýsingum Kviku er kaupverðið lægra en markaðsvirði eigna Ögurvíkur. Sé tekið tillit til mats stjórnenda HB Granda á vænt- um samlegðaráhrifum í kjölfar kaupanna er niðurstaða verðmats- líkans að áætlaður ávinningur HB Granda af viðskiptunum, m.v. gengi evru við gerð kaupsamningsins, sé á bilinu 19,2 til 38,2 milljónir evra eða sem samsvarar 19,4% til 38,6% af kaupverði Ögurvíkur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrirtækjaráðgjöf Kviku metur kaup HB Granda á Ögurvík sem hagfelld fyrir félagið og nemur ávinningurinn skv. matinu 19,2 til 38,2 milljónum evra. „Kemur mér ekki á óvart“ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Samkvæmt áliti eru kaup HB Granda á Ögurvík met- in sem hagfelld fyrir félagið að því gefnu að forsendur stjórnenda þess haldi. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Furðuleg neikvæðni virtist allt íeinu búa um sig í íslensku sam- félagi nú í haust. Sífellt fleiri virtust sannfærðir um að kreppa væri í nánd og að hún yrði síst grynnri en sú sem reið yfir landið 2008. Gíf- uryrði hafa verið látin falla um meint „fall“ íslensku krónunnar og þeir sem lengst og mest hafa óskað þess að Ísland gengi í ESB gátu ekki haldið lengur í sér og bentu á að nú væri allt að fara í sama gamla farið. Það var óþverraleikur enda ekk-ert sem bendir til að flökt á ís- lensku krónunni gefi Íslendingum ástæðu til að ganga inn í þau veikl- uðu samtök. Íslenska krónan er um þessar mundir á pari við það sem hún var sumarið 2016. En kreppuviðbrögðin sem minnstvar á hér að ofan benda til þess að ákveðin einkenni áfallastreit- uröskunar (e. post traumatic stress disorder) séu enn að hrjá fólk sem varð fyrir verulegu og alvarlegu áfalli í hruninu 2008. Eitt helsta einkenni slíkrar rösk-unar er það að sá sem fyrir áfalli verður sannfærist um að slíkt muni henda aftur, jafnvel þótt ekk- ert gefi ástæðu til að ætla að svo verði. Fólk verður að minna sig á að bankaáfallið 2008 var einstakt í hag- sögu þjóðarinnar og skýrðist bæði af veikleikum innanlands og alþjóðlegri lánsfjárkreppu. Þær aðstæður sem leiddu til þess eru víðsfjarri íslensku hagkerfi og almenningi í dag. Einkenni áfallastreituFádæma góðæri er lýsing sem not-ast mætti við til að lýsa uppgangi síðustu ára. Kaupmáttur fólks hefur aukist meira á síðustu árum en nokkru sinni fyrr í hagsögu þjóðar- innar. Síðustu þrjú árin hefur kaup- máttur að jafnaði aukist um 20% og um 25% þegar litið er til lægstu launa. Þessi þróun hefur leitt til þess að jöfn- uður mælist nú meiri en á öðru byggðu bóli í heiminum og dregið hef- ur úr ójöfnuði í hagsveiflunni, þvert á það sem ýmsir leyfa sér að halda fram. Þessi jákvæða þróun, sem haldamætti á lofti í stað þess að gera lítið úr, líkt og virðist mjög í tísku nú um stundir, hefur komið til vegna þess að innan hagkerfisins hefur framleiðslan aukist. Ferðaþjónustan hefur vaxið með ógnarhraða og hjól atvinnulífsins hafa snúist nær snurðulaust. Á fyrri helmingi þessa árs var þjónustujöfnuður við útlönd t.d. jákvæður sem nam 90 milljörðum króna. Á síðasta ári var hann jákvæð- ur um 271 milljarð króna! Á sama tíma hefur vöruskiptajöfnuðurinn verið neikvæður en það er til marks um þróttmikla fjárfestingu og hún mun til lengri tíma styðja við þjón- ustujöfnuðinn og þau tækifæri sem í hagkerfinu búa. Þessa einstöku stöðu verður aðverja og vernda. Takist það ekki má gera ráð fyrir því að misskipting aukist og að sú mikla kaupmáttar- aukning sem tryggð hefur verið fuðri upp. Tryggja verður að fyrirtækin í landinu geti risið undir þeim launum sem greidd eru. Nýlegar tölur sem greiningardeild Arion banka birti varpa ljósi á að þar gætu verið blikur á lofti. Í nær öllum atvinnugreinum hefurlaunakostnaður sem hlutfall af tekjum aukist verulega frá 2014. Það á við í sjávarútvegi þar sem hlutfallið hefur farið úr 25% í 28%, í verslun og þjónustu úr 11% í 15% og í ferðaþjón- ustunni úr 19% í hvorki meira né minna en 26%. Það er aðeins í bygg- ingastarfsemi sem hlutfallið hefur lækkað, farið úr 26% í 25%. Sé at- vinnulífið skoðað í heild hefur hlut- fallið farið úr 19% í 22%. Laun vaxið umfram tekjur Bréf í flugfélaginu Ice- landair hafa hækkað um 8,4% það sem af er degi í 503 milljóna viðskiptum. Bréf í Icelandair rjúka upp 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.