Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 11
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust™ Guðmundur Steingrímsson Í DAG Framlag Íslands í Júróvisjón í ár er hressandi. Það fær mann til að hugsa. Og hlæja. Og fara í stuð. Þetta er frábært atriði. Auðvitað er hægt að afgreiða lagið sem gjörning ungmenna, brosa pínulítið, hrista höfuðið og halda svo áfram að horfa á línulega dagskrá. Allt er þetta leikur. Afþreying. Eitthvað til að lyfta fólki upp í myrkrinu, yfir snakki og ídýfu. Kapítalisminn sigrar. En ég held að það sé meira í þessu en svo. Þetta er tundur- skeyti í hversdagsleikann. Upplyfting í amstrinu. Við erum semsagt að fara að senda lag í Júróvisjón um hatur. Tja, hví ekki? Það tístir í manni við tilhugsunina, að við skulum ætla að senda svona grallaraspóa inn í þessa glimmerveröld. Þetta verður álíka spennandi og fyrir vísindamenn í Sviss að horfa á árekstur tveggja einda í hraðli. Hvað gerist? Mun allt springa? Verður til svarthol? Hjálparsveit skáta í Kópavogi getur glaðst yfir vissum sigri BDSM-lífsstíls- ins og kannski fær hann byr undir báða vængi nú á næstu misserum. Krókar í loftum víða. Aðrar vangaveltur eiga þó hug minn. Eftir að hafa horft á úrslita- kvöldið í tölvunni með fjölskyldunni í útlöndum og við höfðum nokkurn veginn sameinast í fylgispekt okkar við Hatara, fór ég að velta fyrir mér spurningunni sem yngsti fjölskyldu- meðlimurinn — ekki jafn reyndur í hótfyndni og kaldhæðni og við hin — lét falla í einlægni sinni: Hvað eiga þeir við? Af hverju mun hatrið sigra? Atlaga að útskýringu Ég, sem heimspekimenntaður, rýk alltaf til þegar svona spurningar gera vart við sig meðal afkvæma minna og lít á það sem heilaga skyldu, sprottna af hæfni, að útskýra vel og vandlega flóknari hliðar tilverunnar, þegar minnsti vottur af áhuga á slíku gerir vart við sig. Það er merkilegt hvað mér mistekst þetta oft. Eiginlega alltaf. Á því var engin breyting nú. Ég gat ekki útskýrt almennilega hvað þeir eiga við, þessir menn. Mun hatrið sigra? Stund- um, sonur sæll, segir fólk hið þveröfuga á við það sem það vonar samt sjálft innst inni að gerist, skilurðu. Maður sem vonar að ástin muni sigra getur talið það góða leið til þess að vekja aðra til umhugsunar að klæða sig í þröngt plast og reipi og öskra að hatrið muni sigra. Eða eitthvað. Samskipti fólks eru flókin. Listin er margbrotin. Nú skulum við bursta tennurnar. Kafað dýpra Hver er þá hin mikla undirliggjandi heimspekilega sögn Hatara? Mér finnst hið bitastæða vera þetta: Svartsýnis- spámaðurinn Matthías tekur sér stöðu á goðsagnakenndu sviði og hrópar hið fornkveðna, eins og ótal bölsýnisspá- menn fyrri tíma hafa gert, að heimur- inn muni kollsteypa sér í hörmungar og myrkur, að allt sé fánýtt gagnvart eyðingarmætti hatursins. Mót- söngvarinn — með hárgreiðslu sem ég reyndi einu sinni að fá mér sjálfur með ömurlegum afleiðingum — er svo táknmynd hins eilífa og viðkvæma blóms fegurðarinnar, sem er fórnað á eyðingaraltari myrkursins. Þetta er sterk mynd. Þetta öskur hefur oft verið hrópað. Það sem blasir við í mínum huga er hins vegar sú niðurstaða, að þrátt fyrir máttugt öskur hatursins, þá mun hatrið aldrei sigra. Það má sín líka lítils, eins og fegurðin og ástin. Af hverju? Jú, vegna þess að veröldin heldur alltaf áfram. Tíminn stoppar ekki. Hatrið sigrar einu sinni. Ástin næst. Og svo endalaust, koll af kolli. Ekkert mun sigra. Ekki einu sinni dauðinn, því af honum sprettur líf. Í texta Hatara er þetta viðurkennt. „Rísið úr öskunni,“ hrópar spámaður- inn. „Sameinuð sem eitt.“ Í þessu felst vonin. Í áframhaldinu — svo lengi sem það slokknar ekki á sólinni (sem yrði bömmer) — felst alltaf von. Mann- kynssagan, eins og margir magnaðir heimspekingar hafa bent á, er barátta andstæðna, sem hættir aldrei. Spurning laganna tveggja En hvað ef tíminn er afmarkaður, eins og í tilviki einstaklinga? Manni er skaffað eitt líf. Innan þess ramma getur hatrið vissulega sigrað, ekki satt? Lögin tvö sem kepptu til úrslita mynduðu þannig spurningu sem er mjög umhugsunarverð: Hvað ef ég get ekki elskað og hatrið mun sigra? Barátta kærleika og haturs þar sem annað aflið getur í raun og veru unnið fullnaðarsig- ur á sér stað í hjörtum manna. Í hinni einstaklingsbundnu baráttu fólks við sjálft sig og kringumstæður sínar. Þess vegna er frábært að senda þetta lag til Ísrael. Í Ísrael býr fullt af góðu fólki, en manni sýnist stundum að þar sé líka þónokkuð af áhrifafólki sem hefur ákveðið að láta hatur ráða ákvörðunum sínum. Framlag Íslands er einhvers konar öfug sálfræði inn í þessar kringumstæður, svipað og maður notar stundum á börn. Farðu þá bara ekki að sofa! Látið þá bara hatrið sigra! Kannski vakna einhverjir til umhugsunar og skynja ádeiluna, beiðnina, sem í þessu felst. Þetta er nefnilega ekki bara grín. Hvað mun sigra? Lögin tvö sem kepptu til úrslita mynduðu þannig spurningu sem er mjög umhugsunar- verð: Hvað ef ég get ekki elskað og hatrið mun sigra? S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M Á N U D A G U R 4 . M A R S 2 0 1 9 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 8 -B F D 8 2 2 7 8 -B E 9 C 2 2 7 8 -B D 6 0 2 2 7 8 -B C 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.