Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 14
Skallagrímur - Þór Þ. 74-89
Skallagrímur: Bjarni Guðmann Jónsson
19, Aundre Jackson 13, Björgvin Hafþór
Ríkharðsson 12, Matej Bouvac 8, Domogoj
Samac 8, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 5,
Gabríel Sindri Möller 5, Ragnar Sigurjóns-
son 4.
Þór Þorlákshöfn: Kinu Rochford 23/12
fráköst, Nikolas Tomsick 20/12 stoð-
sendingar, Halldór Garðar Hermannsson
16, Jaka Brodnik 11, Ragnar Örn Bragason
10, Styrmir Snær Þrastarson 7, Emil Karel
Einarsson 2.
Breiðablik - Valur 69-93
Breiðablik: Snorri Vignisson 14, Sveinbjörn
Jóhannesson 13, Erlendur Ágúst Stefáns-
son 11, Arnór Hermannsson 10, Árni Elmar
Hrafnsson 9, Hilmar Pétursson 7, Bjarni Geir
Gunnarsson 5.
Valur:Aleks Simeonov 21, Dominique
Deon Rambo 16, Austin Magnus Bracey
15, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 14, Illugi
Auðunsson 10, Nicholas Schlitzer 9, Illugi
Steingrímsson 5, Benedikt Blöndal 3.
ÍR - Tindastóll 85-90
ÍR: Kevin Capers 16, Gerald Robinson 16/10
fráköst, Matthías Orri SIgurðarson 11,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 11/15 frá-
köst, Sæþór Elmar Kristjánsson 11, Hákon
Örn Hjálmtýsson 11, Sigurkarl Róbert
Jóhannesson 9.
Tindastóll: Philip Alawoya 26, Pétur Rúnar
Birgisson 18, Dino Butorac 14, Danero
Thomas 12, Viðar Ágústsson 8, Brynjar Þór
Björnsson 5, Helgi Rafn Viggósson 4, Friðrik
Þór Stefánsson 3.
Grindavík - KR 94-103
Grindavík: Lewis Clinch 29, Ingvi Þór Guð-
mundsson 15, Jordy Kuiper 14, S. Arnar
Björnsson 14, Ólafur Ólafsson 11, Hilmir
Kristjánsson 6, Nökkvi Már Nökkvason 5 .
KR:Mike DiNunno 32, Julian Boyd 30/10
fráköst, Kristófer Acox 18/12 fráköst, Orri
Hilmarsson 9, Helgi Már Magnússon 6,
Björn Kristjánsson 4, Emil Barja 3, Finnur
Atli Magnússon 1 .
Nýjast
Domino’s-deild karla
Við leggjum áherslu
á að spila betur í
sókninni í dag.
Sara Björk Gunnarsdóttir
Eins dauði er annars brauð
Valsmenn stigu stórt skref í átt að því að bjarga sæti sínu í Domino’s-deild karla fyrir næsta tímabil með sigri á Blikum í Smáranum í gær. Með
því felldi Valur endanlega Blika sem hafa aðeins unnið einn leik af nítján til þessa. Valsmenn fá tækifæri til að endanlega innsigla framtíð sína í
deildinni í næstu umferð þegar þeir mæta Borgnesingum sem eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni þegar stutt er eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið-
ið í knattspyrnu mætir því skoska í
Algarve í dag. Þetta er annar leikur
liðanna á stuttum tíma og annar
leikur landsliðsins á Algarve-
mótinu þetta árið. Með sigri getur
Ísland unnið riðilinn eftir 1-0 sigur
Kanada á Skotlandi á dögunum og
markalaust jafntefli Íslands og Kan-
ada í síðustu viku en til þess þarf
Ísland að skora meira en eitt mark
ásamt því að vinna leikinn.
Vinni íslenska liðið riðilinn
munu Stelpurnar okkar leika upp á
verðlaun á mótinu en það kemur í
ljós á morgun hvort það verður fyrir
þriðja eða fyrsta sætið. Íslenska
liðið hefur einu sinni leikið til
úrslita á mótinu, þegar það varð að
lúta í gras fyrir bandaríska liðinu
árið 2011, en tvívegis unnið leikinn
um bronsverðlaunin, árin 2014 og
2016.
Þetta verður tólfta viðureign
Íslands og Skotlands sem mættust
síðast þann 21. janúar og til þessa
hefur Ísland unnið sex leiki, Skotar
þrjá og tveimur leikjum hefur lokið
með jafntef li. Elín Metta Jensen
skoraði tvívegis í síðasta leik lið-
anna á Spáni fyrir mánuði í fyrsta
leik liðsins undir stjórn Jóns Þórs
Haukssonar.
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk
Gunnarsdóttir leikur sinn 123. leik á
morgun og er því aðeins tíu leikjum
frá því að jafna leikjamet Katrínar
Jónsdóttur með landsliðinu.
Í leiknum gegn Kanada varð
Skagamær in Hallbera Guðný
Gísladóttir áttunda konan sem
nær hundrað leikjum fyrir kvenna-
landsliðið.
„Það var frábært að fá Hallberu
í hundrað leikja hópinn, það eru
margar góðar þar og f leiri sem eru
að nálgast hópinn. Mér fannst ég
vera orðin gömul þegar ég kom
hingað í ellefta skiptið en ég er bara
28 ára,“ sagði Sara létt í lundu þegar
Fréttablaðið heyrði í henni í gær.
Íslenska liðið fékk takmarkaðan
undirbúningstíma fyrir leikinn
gegn Kanada aðeins 36 tímum eftir
að komuna til Algarve en þær hafa
nú náð að æfa saman í tæpa viku.
„Við fengum stuttan undirbún-
ingstíma fyrir leikinn gegn Kanada,
bæði til endurhæfingar frá leikjum
með félagsliðinu en náðum samt
góðum úrslitum. Við vorum að
mæta einu af sterkustu liðum heims
og náðum að halda hreinu sem var
jákvætt.“
Ákveðið var að breyta fyrirkomu-
laginu á mótinu og eru þrjú lið í
hverjum riðli í stað fjögurra. Fyrir
vikið fá liðin lengri tíma til æfinga
og spila færri leiki.
„Æfingar hafa gengið vel, við
fengum góða pásu eftir leikinn
gegn Kanada vegna breytts fyrir-
komulags á Algarve-mótinu sem
mér f innst henta leikmönnum
betur. Við gátum unnið í ýmislegu,
við vitum að við getum gert betur í
sóknarleiknum í að halda boltanum
þegar við erum að mæta sterkustu
liðum heims,“ sagði Sara og hélt
áfram:
„Við leggjum áherslu á að spila
betri sóknarleik í dag gegn Skotum.
Það er stutt síðan við mættum þeim
og þær hafa bætt sig mikið síðustu
ár. Þær mæta fullar sjálfstrausts til
leiks enda á leiðinni á HM í sumar
en við spilum yfirleitt vel gegn
Skotum,“ sagði Sara sem sagði það
spennandi viðbót að sæti í úrslitum
gæti beðið Íslands.
„Það er ekki einungis í okkar
höndum hvort við leikum til úrslita
en það yrði skemmtilegt að spila í
úrslitaleiknum gegn Noregi.“
kristinnpall@frettabladid.is
Viljum gera betur í sókninni
Íslenska kvennalandsliðið mætir Skotlandi í æfingarleik í Algarve í dag. Aðeins mánuður er síðan liðin
mættust síðast þar sem Ísland vann 2-1 sigur. Sara Björk, fyrirliði íslenska liðsins, á von á erfiðum leik.
Sara Björk í leik Íslands og Kanada á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
GOLF Kylfingurinn Haraldur Frank-
lín Magnús endaði í fimmta sæti á
móti sem var hluti af Nordic Tour-
mótaröðinni, þeirri þriðju sterk-
ustu í Evrópu. Með því er Haraldur
kominn upp í ellefta sæti stigalist-
ans á mótaröðinni. Guðmundur
Ágúst Kristjánsson, sem leikur líkt
og Haraldur fyrir hönd GR, missti
toppsætið á mótaröðinni um helg-
ina. Var þetta annað mótið í Lum-
ine á Spáni á stuttum tíma.
Alls voru fimm íslenskir kylf-
ingar skráðir til leiks. Andri Þór
Björnsson, GR, Axel Bóasson, Keili
og Aron Bergsson sem býr og æfir í
Svíþjóð misstu allir af niðurskurði.
Haraldur lék hringina þrjá á átta
höggum undir pari. Var hann þrem-
ur höggum á undan Guðmundi
Ágústi sem deildi þrettánda sæti á
fimm höggum undir pari.
Svíinn Fredrik Nil-
héhn var í sérflokki á
mótinu og bar sigur úr
býtum á 20 höggum
undir pari.
Nilhéhn er
kominn í efsta
sæti stigalist-
ans á móta-
röðinni og
Guðmu nd-
u r Á g ú s t
er kominn
n i ð u r í
þriðja sætið.
H a r a l d u r
Franklín er
svo í 11. sæti
á stigalist-
anum. – kpt
Haraldur í
fimmta sæti
4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-C
9
B
8
2
2
7
8
-C
8
7
C
2
2
7
8
-C
7
4
0
2
2
7
8
-C
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K