Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.03.2019, Blaðsíða 6
Svo ætlumst við auðvitað til þess, þegar loksins tekst að landa kjarasamningum, að það verði ekki tekið til baka með einhverjum gjaldskrár- hækkunum hjá sveitarfélög- unum. Drífa Snædal, forseti ASÍ Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Vöðva eða liðverkir? Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afslátturaf 100g og 150g Voltaren Gel LÖGREGLUMÁL Leitað var áfram í gær að að Páli Mar Guðjónssyni í Ölfusá. Á vef lögreglunnar kom fram að leitin hefði engan árangur borið. Svæðisstjórn björgunarsveita á svæðinu mun funda með lögreglu um framhaldið eftir helgina. Fyrir liggur að gera fjölgeisla- mælingu í farvegi árinnar neðan Ölfusárbrúar við fyrsta tækifæri til að reyna að staðsetja bíl Páls. Óljóst er hver árangurinn af slíkri mælingu gæti orðið enda áin straumþung og loftbólur í henni. Hvort tveggja takmarkar mjög getu þeirra tækja sem nota þarf við aðgerðirnar. Björgunarsveitum og viðbragðs- aðilum öllum voru í gær færðar þakkir frá lögreglunni og aðstand- endum Páls fyrir mikið og óeigin- gjarnt starf við leitina. – bsp Leita bíls með fjölgeislamæli HEILBRIGÐISMÁL Lög um rafrettur og áfyllingar tóku gildi síðastlið- inn föstudag, 1. mars. Í lögunum er kveðið á um innflutning, markaðs- setningu, hvar má nota rafrettur og öryggi þessa varnings. Samkvæmt lögunum á ráð- herra að setja reglugerð um kröfur varðandi gæði, öryggi, merkingar og innihaldslýsingu rafrettna og áfyllinga fyrir þær. Reglugerðin á að taka gildi 1. júní næstkomandi. Með frestinum þangað til er komið til móts við innflytjendur svo þeim gefist svigrúm til að laga sig að kröfum reglugerðarinnar varðandi merkingar umbúða, að því er segir á vef Landlæknis. – gar Rafrettulög hafa tekið gildi Rafreykingar. NORDICPHOTOS/GETTY KJARAMÁL „Skattar eru auðvitað háðir lögum þannig að þetta hlýt- ur að beinast gegn ríkisvaldinu, hvernig lögum er breytt til að breyta skattbyrði. Við höfum svo sem ekk- ert farið í það hvort það sé skynsam- legt að hækka eða lækka útsvar,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ. Alþýðusambandið hefur beint til- lögum um breytingar á skattkerfinu til stjórnvalda sem ganga út á að létta skattbyrði lág- og millitekju- hópa og jafnframt lýst yfir von- brigðum með framkomnar skatta- tillögur ríkisstjórnarinnar. Nokkur umræða hefur skapast undanfarið um hlutverk sveitar- félaga þegar kemur að aðgerðum til að liðka fyrir kjarasamningum. Í frétt blaðsins í síðustu viku höfn- uðu þau Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, því að sveitarfélög gætu komið að lausn kjarasamninga með skatta- lækkunum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók undir það sjónarmið í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Öll þrjú eru þeirrar skoðunar að fjár- hagsstaða f lestra sveitarfélaga sé með þeim hætti að ekki sé hægt að lækka tekjur sveitarfélaga nema með því að skerða þjónustu. Drífa bendir á að þótt sveitar- félögin ákveði útsvarsprósentuna þá ákveði ríkið skiptingu tekna, hámark útsvars og framlög í Jöfn- unarsjóð sveitarfélaga. „Þannig er það eðlilegt að beina sjónum sínum að stjórnvöldum.“ ASÍ telji að skoða mætti fjár- magnstekjuskattinn þannig að þeir sem komi sér undan tekjuskatti með því að skapa sér fjármagns- tekjur greiði líka útsvar. „Það hlýtur að vera svakalegt að vera að reka sveitarfélög og þessi hópur komist hjá því að greiða útsvar. Við höfum bent á það en að öðru leyti finnst okkur skattamálin vera á hendi ríkisins.“ Drífa segir að sveitarfélögin komi þó að málum í gegnum hús- næðis- og lóðamál. „Svo ætlumst við auðvitað til þess, þegar loksins tekst að landa kjarasamningum, að það verði ekki tekið til baka með einhverjum gjaldskrárhækkunum hjá sveitarfélögunum. Við munum fylgjast vel með því eins og verðlags- Eðlilegt að beina sjónum að stjórnvöldum varðandi skatta Forseti ASÍ segir að kröfur um breytingar á sköttum hljóti að beinast að ríkisvaldinu en ekki að sveitar- félögum. Þó þurfi að fylgjast vel með gjaldskrárbreytingum sveitarfélaganna. Vinnufundir standa nú yfir hjá ríkissáttasemjara í þeim málum sem eru á hans borði. Viðræðurnar eru sagðar ganga ágætlega. Drífa Snædal, forseti ASÍ, kemur hér af fundi þar sem skattatillögur stjórnvalda voru kynntar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON eftirlit okkar ber gott vitni um.“ Miklar annir hafa verið hjá ríkis- sáttasemjara undanfarna daga en þar hafa farið fram vinnufundir hjá þeim aðilum sem enn sitja við samningaborðið. Þar eru undir þrír hópar sem semja við Samtök atvinnulífsins (SA). Þeir eru Starfs- greinasambandið, Landssamband íslenskra verslunarmanna og sam- flot iðnaðarmanna. „Þetta hefur bara unnist ágætlega og viðræðurnar líka. Við munum svo taka alla næstu viku og þess vegna lengur ef þarf,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari en aðilar funduðu alla helgina. Bryndís segir að væntanlega verði fundur í deilu SA og Eflingar, VR, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur á fimmtudag. Ekki sé búið að boða hann formlega en aðilar verði að hittast innan fjórtán daga frá við- ræðu slitum en sá tímapunktur er á fimmtudag. „Það verður bara að koma í ljós hvað gerist á þeim fundi. Ég tek alla- vega stöðuna á málinu.“ sighvatur@frettabladid.is Frá leit björgunarsveitarmanna í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -E 7 5 8 2 2 7 8 -E 6 1 C 2 2 7 8 -E 4 E 0 2 2 7 8 -E 3 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.