Morgunblaðið - 19.11.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.11.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  272. tölublað  106. árgangur  ATHVARF FRÁ DAGSINS ÖNN OG AMSTRI JÓNSHÚS AFTUR TIL 19. ALDAR SELFYSSINGAR Í ERFIÐRI STÖÐU EN HALDA Í VONINA HEIMILIÐ ENDURGERT 12 TÖPUÐU Í PÓLLANDI ÍÞRÓTTIRSAGA GARÐHÖNNUNAR 37 Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðstoð Margir treysta á hjálparsamtök fyrir komandi hátíð.  „Ég hef aldrei verið eins kvíðin og fyrir þessi jól. Ástandið hefur verið mjög slæmt og við gengum verulega á matarsjóðinn okkar í sumar. Ég efast um að við getum hjálpað öllum fyrir þessi jól,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl- skylduhjálpar Íslands, í samtali við Morgunblaðið og bendir á að elsti einstaklingurinn sem leitar til þeirra sé 97 ára gamall. „Það er mikið af eldra fólki sem býr við kröpp kjör.“ Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segist eiga von á því að 800 til 900 manns muni leita þangað eftir að- stoð fyrir komandi jólahátíð. Eru ör- yrkjar, eldri borgarar og þeir sem farið hafa illa út úr lífinu áberandi í þeim hópi. Þá segir hún færri barna- fjölskyldur leita hjálpar, þær virðist hafa það skárra nú en áður. »2 Ekki víst að allir fái matarhjálp fyrir komandi jólahátíð Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lítið virðist vanta á leyfi til að flytja íslenskar eldisafurðir á Kínamarkað. Fulltrúar laxeldisfyrirtækjanna Arnarlax og Arctic Fish og íslenski sendiherrann áttu nýlega fund með kínverska landbúnaðarráðherranum til að ýta á eftir því að fríverslunar- samningur ríkjanna yrði virkur fyrir eldisafurðir. Sendiherrann hefur fylgt málinu eftir og nú stendur til að Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra fari til Kína eftir áramót til að ganga frá skilyrðum innflutnings- ins. Sendinefnd frá Kína kom til Ís- lands á síðasta ári til að taka út af- urðir og pökkunarstöðvar fyrir lax og einnig eftirlitið hjá Matvælastofn- un. Sigurður Pétursson, fram- kvæmdastjóri hjá Arctic Fish, segir að framleiðslan hafi fengið jákvæða umsögn en ekki hafi enn tekist að klára málið. Sigurður og Víkingur Gunnars- son, framkvæmdastjóri hjá Arnar- laxi, fóru á stóra sjávarútvegssýn- ingu í Kína í byrjun mánaðarins. Notuðu þeir ferðina til að ýta á leyf- ismálin. Þegar útflutningur hefst frá Íslandi verður hann án tolla. Sigurð- ur segir að gott verð fáist fyrir eldis- afurðir í Kína, ekki síðra en þekkist á öðrum mörkuðum. Ekki á Sigurður von á því að innflutningur verði tak- markaður, þegar til hans kemur, eins og til dæmis innflutningur á sauðfjárafurðum til Kína. Lítið virðist vanta á leyfi til að flytja út eldislax til Kína  Ýtt er á að fríverslunarsamningurinn milli ríkjanna gildi um eldisafurðirnar MKínamarkaður að opnast »4 Vestfirskur lax » Arnarlax mun vinna og pakka eldislaxi fyrir Arctic Fish í vinnslustöð sinni á Bíldudal þegar slátrun hefst hjá fyrir- tækinu eftir áramót. » Arnarlax er með vel búna vinnslu sem meðal annars ræður yfir kerfi til ofurkæl- ingar á afurðunum. Ellefu nemar frá Landhelgisgæslu Íslands, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og sérsveit ríkislögreglustjóra eru nú á köfunarnámskeiði. Þeir stefna að útskrift 30. nóvember og hljóta þá B- og C-réttindi sem íslenskir atvinnukafarar. „Umsækjendur þurftu að gangast undir þrek- próf, sundpróf og svo voru þeir prófaðir gagn- vart innilokunarkennd,“ sagði Ásgeir Guðjóns- son, sprengjusérfræðingur og kafari hjá Landhelgisgæslunni, sem stýrir námskeiðinu. Auk hans sinna tveir til fjórir köfunarleiðbein- endur kennslu og þjálfun. „Langur tími neðansjávar er erfiðastur. Nem- endurnir eru í allt að 110 mínútur samfleytt neð- ansjávar,“ sagði Ásgeir. „Það er kalt í sjónum og köfunin tekur gríðarlega mikið á líkamlega. Þeir þurfa að vinna með ýmis verkfæri, þunga hluti og lyftipoka sem eru notaðir til að lyfta þungum hlutum úr sjónum. Þetta tekur oft mikið á en þeir þurfa að læra á alla þessa hluti.“ Sjórinn við Ísland getur verið erfiður fyrir kafara, að sögn Ásgeirs. Eru bókstaflega á kafi í náminu Morgunblaðið/Eggert Liðsmenn slökkviliðs, sérsveitar ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslu læra köfun MKrefjandi nám »11  Sérfræðingur frá Nýja-Sjálandi segir þá klasa ná bestum árangri þar sem fyrirtæki eiga í harðri sam- keppni sín á milli en gera sér um leið grein fyrir að á vissum sviðum sé best að vinna saman. Ifor Ffowcs-Williams vill að stofnanir sem styðja við nýsköpun, hver á sinn hátt, hver í sínu horni og með sín eigin markmið, vinni betur saman og reyni að samræma stuðninginn. Þá geti verið gagnlegt að stjórnvöld taki frá fjármagn gagngert til að styðja verkefni inn- an klasa. »14 Blandi saman sam- starfi og samkeppni  „Kulnun og í versta falli örmögn- un er alvarleg og getur verið lífs- hættuleg,“ segir Margrét Gríms- dóttir, framkvæmdastjóri hjúkr- unar við Heilsustofnun Náttúru- lækningafélags Íslands í Hvera- gerði, í samtali við Morgunblaðið og bendir á að dugnaður hafi verið talinn dyggð hér á landi. „[E]n fólk þarf að kunna sér hóf þó svo áskor- anir samfélagsins um árangur og þátttöku séu miklar og komi hvar- vetna frá.“ Hún segir álag í vinnu vissulega stóran orsakaþátt kuln- unar en þætti í einkalífi einnig hafa áhrif. „Svo sem áföll, erfiðleikar í sam- búð, fjárhagsáhyggjur og fleira,“ segir Margrét. »10 Kulnun alvarleg og jafnvel lífshættuleg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.