Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Veður víða um heim 18.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 alskýjað Hólar í Dýrafirði 1 léttskýjað Akureyri 1 skýjað Egilsstaðir 0 heiðskírt Vatnsskarðshólar 6 alskýjað Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 7 heiðskírt Ósló 3 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur 4 skýjað Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 4 heiðskírt Brussel 4 heiðskírt Dublin 9 léttskýjað Glasgow 8 heiðskírt London 9 heiðskírt París 7 heiðskírt Amsterdam 5 heiðskírt Hamborg 6 skýjað Berlín 3 skýjað Vín 3 heiðskírt Moskva 1 snjókoma Algarve 17 léttskýjað Madríd 10 rigning Barcelona 12 rigning Mallorca 16 léttskýjað Róm 13 heiðskírt Aþena 13 skýjað Winnipeg -10 snjókoma Montreal -7 léttskýjað New York 4 alskýjað Chicago 0 snjókoma Orlando 21 heiðskírt  19. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:10 16:17 ÍSAFJÖRÐUR 10:37 16:01 SIGLUFJÖRÐUR 10:20 15:43 DJÚPIVOGUR 9:45 15:42 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Suðaustlæg átt 5-13 m/s og léttskýjað nyrðra, en skýjað og lítilsháttar væta syðra. Hiti 3 til 8 stig. Á miðvikudag Breytileg átt, 3-8 m/s og lítilsháttar væta við vesturströndina. Suðaustan 8-15 m/s og dálítil væta við suður- og vesturströndina, annars mun hægari og létt- skýjað. Hiti 2 til 9 stig, svalast á Vestfjörðum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lítið virðist vanta á leyfi til að flytja íslenskar eldisafurðir á Kína- markað. Fulltrúar laxeldisfyr- irtækjanna Arnarlax og Arctic Fish og íslenski sendiherrann áttu ný- lega fund með kínverska landbún- aðarráðherranum til að ýta á eftir því að fríverslunarsamningur ríkjanna yrði virkur fyrir eldisaf- urðir. Sendiherrann hefur fylgt málinu eftir og nú stendur til að Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fari til Kína eftir áramót til að ganga frá skilyrðum innflutningsins. Margra ára ferli Stjórnvöld á Íslandi og í Kína gerðu fríverslunarsamning á árinu 2013, eftir margra ára undirbúning, og tók hann gildi 1. júlí 2014. „Þeg- ar ég fór með sendinefnd frá Ís- landi til að skrifa undir samninginn töldu menn að það væri handan við hornið að hægt yrði að flytja eld- islax og fleiri afurðir til Kína. Síðar kom í ljós að fullnaðarskráningu á eldisafurðum til Kína var ekki lokið. Skráningin var tilbúin fyrir þær vörur sem áður höfðu verið fluttar þangað en nýjar vörur þurfti að skrá,“ segir Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish. Það reyndist flóknara en útlit var fyrir auk þess sem breytingar á stjórnsýslu málaflokksins í Kína töfðu fyrir. Sendinefnd frá Kína kom til Ís- lands á síðasta ári til að taka út af- urðir og pökkunarstöðvar fyrir lax og einnig eftirlitið hjá Mat- vælastofnun. Sigurður segir að framleiðslan hafi fengið jákvæða umsögn en ekki hafi enn tekist að klára málið. Sigurður og Víkingur Gunnars- son, framkvæmdastjóri hjá Arnar- laxi, fóru á stóra sjávarútvegssýn- ingu í Kína í byrjun mánaðarins. Notuðu þeir ferðina til að ýta á leyfismálin. Sigurður segir að Gunnar Snorri Gunnarsson sendi- herra hafi komið skýrum skila- boðum um stöðu málsins á framfæri við kínverska landbúnaðarráðherr- ann á fundi sem þeir áttu með hon- um og síðan fylgt málinu eftir. „Eftir því sem okkur skilst núna vantar aðeins lokahnykkinn, að ráð- herrar frá báðum ríkjunum hittist og skrifi undir skilmálana,“ segir Sigurður. Þriðja stoðin undir söluna Kína er stór markaður fyrir eld- isfisk eins og aðrar vörur. Fær- eyingar flytja mikið af laxi þangað og Norðmenn eru aftur byrjaðir að selja lax til Kína. Framleiðendur í báðum löndunum greiða 10% toll vegna þess að þeir hafa ekki frí- verslunarsamninga við Kína. Þegar útflutningur hefst frá Ís- landi verður hann án tolla. Sigurður segir að gott verð fáist fyrir eldisaf- urðir í Kína, ekki síðra en þekkist á öðrum mörkuðum. „Það skiptir máli fyrir okkur að hafa ekki öll eggin í sömu körfunum. Við erum fyrst og fremst að selja lax til landa á meginlandi Evrópu og Bandaríkj- anna. Okkur vantar þriðja fótinn undir söluna, Asíu, til að tryggja okkur til framtíðar,“ segir hann. Ekki á Sigurður von á því að inn- flutningur verði takmarkaður, þeg- ar til hans kemur, eins og til dæmis innflutningur á sauðfjárafurðum til Kína. Hann segir að laxinn á Ís- landi sé laus við veirusjúkdóma og lyf ekki notuð við eldið. Íseyjan hefur góða ímynd Þótt fyrirtækin megi enn ekki selja afurðir til Kína kynntu þau starfsemi sína á sjávarútvegssýn- ingunni og fengu athygli, að sögn Sigurðar. Tilgangurinn var að búa þau undir opnun markaðarins. „Við fundum fyrir sterkum vilja kaup- enda. Bingdao (íseyjan: Ísland) er þekkt fyrir hreinleika og heilsu- samlegt umhverfi og verður hægt að nýta það,“ segir Sigurður. Hann segir að Kínverjar hafi byggt upp mikið fiskeldi á undan- förnum áratugum sem lið í að brauðfæða vaxandi fólksfjölda. Skilst honum að þrír af þeim fiskum sem Kínverjar neyta séu úr eldi á móti einum úr veiðum. Kínamarkaður að opnast fyrir lax  Unnið að því að virkja fríverslunarsamning við Kína fyrir íslenskan lax  Laxeldismenn vonast til að hægt verði að ganga frá því fljótlega  Fyrirtækin eru byrjuð að kynna íslenskan lax á markaðnum Sýning Víkingur Gunnarsson og Sigurður Pétursson kynntu íslenskan lax á stórri sjávarútvegssýningu í Kína í mánuðinum. Þá vantaði þó fisk til að sýna. Arnarlax mun vinna og pakka eldislaxi fyrir Arctic Fish í vinnslustöðinni á Bíldudal þeg- ar slátrun hefst hjá fyrirtækinu eftir áramót. Arctic Fish er með aðstöðu á Flateyri en vann fiskinn og pakkaði til útflutnings á Ísafirði síðasta vetur. „Í ljósi þeirrar óvissu sem er í íslenskum fisk- eldisiðnaði hefur verið ákveðið að fjárfesta ekki í vinnslu í bili,“ segir Sigurður Pétursson, fram- kvæmdastjóri hjá Arctic Fish. Hann segir hagkvæmt fyrir fyr- irtækin að vinna saman að þessum þætti. Arnarlax er með vel búna vinnslu, meðal annars með kerfi til ofurkælingar. „Stefnan er enn að byggja upp eldi á norðursvæði Vest- fjarða og höfum við sótt um lóð fyrir vinnslu við höfnina á Ísa- firði. Þær áætlanir eru í bið á meðan leyfi til eldis í Ísafjarð- ardjúpi fást ekki,“ segir Sig- urður. Vinna lax Arctic Fish á Bíldudal BREYTINGAR Innri endurskoð- un Reykjavíkur- borgar og borgar- lögmaður taka undir það í um- sögnum sínum að tekin verði upp hagsmunaskrán- ing æðstu emb- ættismanna borg- arinnar. Marta Guð- jónsdóttir, borgarráðsfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, og áheyrnarfull- trúarnir Vigdís Hauksdóttir, Miðflokki, og Kolbrún Baldursdótt- ir, Flokki fólksins, lögðu fram svo- hljóðandi tillögu í borgarráði: „Lagt er til að æðstu embættismenn Reykjavíkurborgar birti hagsmuna- skráningu sína á vef Reykjavíkur- borgar, rétt eins og kjörnir fulltrúar, enda er það í anda gagnsæis og vandaðrar stjórnsýslu.“ Í greinar- gerð sagði að æðstu embættismenn kæmu að ákvörðunum sem vörðuðu stór verkefni, framkvæmdir, sam- starfssamninga, kaup og sölu fast- eigna svo eitthvað sé nefnt. „Með hliðsjón af þeirri staðreynd er eðli- legt að þeir, rétt eins og kjörnir fulltrúar, skrái hagsmuni sína þann- ig að þeir verði gerðir aðgengilegir á vef Reykjavíkurborgar. Þetta er í anda opinnar og vandaðrar stjórn- sýslu.“ Tillagan var lögð fram að nýju á fundi borgarráðs 15. nóvember sl. Henni hafði áður verið vísað til um- sagnar innri endurskoðunar borgar- innar og borgarlögmanns. Af- greiðslu nú var frestað en lagðar fram umbeðnar umsagnir. Í umsögn innri endurskoðunar segir m.a. að innri endurskoðun taki undir „öll meginsjónarmið um mik- ilvægi upplýsingagjafar opinnar stjórnsýslu með það að markmiði að auka traust og efla heilindi. Traust og trúverðugleiki á stjórnsýslu byggir á því að stjórnmálamenn og embættismenn misnoti ekki aðstöðu sína“. Þá segir innri endurskoðun að Reykjavíkurborg hafi sífellt verið að efla upplýsingagjöf og lýkur umsögn sinni á orðunum: „Opinber hags- munaskráning æðstu embættis- manna er eðlilegur liður í þróun og viðleitni til að fara að tilmælum al- þjóðlegra stofnana um leiðir til að viðhalda og efla traust almennings á stjórnsýslu, stofnunum og stjórn- málum.“ Borgarlögmaður kveðst telja „mikilvægt að stuðla að gagnsærri og opinni stjórnsýslu hjá Reykjavík- urborg og álítur að hagsmunaskrán- ing æðstu embættismanna sé vel til þess fallin að auka traust og trúverð- ugleika á stjórnsýslu Reykjavíkur- borgar. Þá myndi slík skráning vera í samræmi við þá þróun sem er að eiga sér stað hjá stjórnvöldum í land- inu og einnig við stefnu Reykjavík- urborgar almennt um að efla alla upplýsingagjöf um starfsemi borgar- innar og auka gagnsæi.“ Borgarlögmaður segir einnig að ákveði borgarráð að samþykkja til- löguna sé æskilegt að settar verði reglur um hagsmunaskráningu emb- ættismanna, þar sem m.a. verði fjallað um gildissvið reglnanna, þ.e. hverjir falli þar undir, hvaða upplýs- ingar skuli veita og eftir atvikum birta opinberlega. gudni@mbl.is Embættismenn borgarinnar skrái hagsmuni  Jákvæðar umsagnir um tillöguna Marta Guðjónsdóttir Tekist hefur að slökkva allan eld á Hvaleyrarbraut 39 í Hafnarfirði auk þess að hreinsa úr húsnæðinu. Slökkviliðið lauk störfum á vett- vangi klukkan 19.10 í gærkvöld. Rannsókn á tildrögum eldsins á að hefjast í dag. Lögreglan vaktaði svæðið í nótt. Varðstjóri hjá slökkviliðinu sagði í gærkvöld að loks væri aðgerðum lok- ið á Hvaleyrarbraut, „og þó fyrr hefði verið“. Tíu slökkviliðsmenn höfðu þá verið að störfum á staðnum frá klukkan 13 í gær. Þá sagði varðstjórinn að menn hefðu áttað sig á aðstæðunum þegar á staðinn var komið, og þá hefði verið ljóst að aðgerðir myndu taka lengri tíma en ætlað var. veronika@mbl.is Morgunblaðið/Hari Stórbruni Tilkynnt var um mikinn eldsvoða á Hvaleyrarbraut 39 í Hafnar- firði seint á föstudagskvöld. Eldurinn logaði þar til síðdegis í gær. Eldurinn loksins slokknaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.