Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Traust og fagleg starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-maður Samfylkingarinnar,
ræddi hækkun
skatta í þættinum
Þingvöllum á K100 í
gærmorgun. Hann
sagði stjórn-
málamenn helst
ekki vilja tala um
skattahækkanir en
að hann og Sam-
fylkingin hefðu ekkert verið feimin
að tala um hærri skatta.
Til að auka útgjöld þyrfti aðhækka skatta og hann væri
ekkert feiminn við að segja það.
Þetta var athyglisverð játning,en kom svo sem ekkert á óvart.
Samfylkingin og forverar hennar
hafa jafnan unnið að hækkun
skatta.
Samfylkingin stýrir borginni ísamvinnu við Vinstri græna og
fleiri og hefur gert nánast óslitið
um langt árabil. Árangurinn af
þessu er að skattar í borginni hafa
farið úr lægsta leyfilega marki í
hæsta leyfilega mark. Hærra kemst
Samfylkingin ekki þar.
Á landsvísu eru engin lögbundinefri mörk og þar sér Samfylk-
ingin sóknarfæri. Í tíð vinstri
stjórnar Samfylkingar og Vinstri
grænna var slegið Íslandsmet í
skattahækkunum, ef ekki heims-
met.
Árangurinn er sá að á Íslandi ereinhver mesta skattbyrði ver-
aldar, eins og opinber samanburður
á milli landa sýnir.
Samt finnst Samfylkingunni ekkinóg komið. Þar eru þingmenn
ekki feimnir við að tala um að
hækka skatta enn meira.
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Ríkur vilji til
skattahækkana
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Óvenju mikil úrkoma var í Reykja-
vík á tveimur sólarhringum, frá há-
degi 16. nóvember til hádegis 18.
nóvember. Samtals komu 83,2 mm í
úrkomumælinn á Veðurstofutúni, að
því er Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur skrifar í Hungurdiskum
(trj.blog.is). Honum sýnist þetta
vera met fyrir tveggja daga
úrkomusummu í Reykjavík og fleyta
árinu ofar á lista þeirra úrkomu-
mestu.
Skipting úrkomunnar á sólar-
hringa var nokkuð jöfn. „Að morgni
þess 17. höfðu fallið 35,5 mm í mann-
aða úrkomumælinn á Veðurstofu-
túni frá því kl. 9 morguninn áður og
daginn eftir, þann 18., var
sólarhringsúrkoman 47,7 mm. Tveir
sjálfvirkir mælar eru á Veðurstofu-
túni, sá þeirra sem mældi meira skil-
aði 37,0 mm og 44,8 mm þessa tvo
sólarhringa, samtals 81,8 mm. Há-
marksúrkoma í „réttum“ sólarhring
var hins vegar 49,3 mm,“ skrifar
Trausti. Hann segir að fyrra úrkom-
umet nóvember í Reykjavík hafi ver-
ið sett hinn 28. árið 1902 og var það
46,8 mm og hinn 30. nóvember 1905
mældist úrkoman 45,8 mm. Í bæði
skiptin var úrkoman dagana fyrir og
eftir hins vegar talsvert minni en nú.
Trausti segir að sólarhrings-
úrkoma hafi tíu sinnum mælst meiri
í Reykjavík en nú, mest 56,7 mm
hinn 5. mars 1931. gudni@mbl.is
Óvenju mikil úrkoma var í Reykjavík
Úrkomumælir mældi 83,2 mm úrkomu frá hádegi 16. til hádegis 18. nóvember
Morgunblaðið/Hari
Reykjavík Grenjandi rigning og rok
var í borginni og víðar um helgina.
„Nú getum við látið verkin tala og
fæðingin er hafin. Allur undirbún-
ingur er að baki og heimild til fram-
kvæmda var fengin með íbúakosn-
ingum, þar sem afgerandi
stuðningur var staðfestur,“ segir
Leó Árnason, framkvæmdastjóri
Sigtúns þróunarfélags. Á þess veg-
um verður byggður nýr miðbær á
Selfossi og fyrstu skóflustungurnar
að honum voru teknar síðastliðinn
laugardag. Það gerðu Leó, Guðjón
Arngrímsson, sem einnig er hjá Sig-
túni, og svo þau Ásta Stefánsdóttir
og Gísli Halldór Halldórsson, fyrr-
verandi og núverandi bæjarstjóri í
Árborg.
Byggingarnar í nýja miðbænum
verða í gömlum stíl og samtals 33
talsins. Þær þrettán fyrstu verða til-
búnar vorið 2020 og þar á meðal
verður eftirgerð af gömlum bygg-
ingum Mjólkurbús Flóamanna, hvar
verður meðal annars safn til sögu
skyrgerðar á Íslandi.
Unnið hefur verið að undirbúningi
nýja miðbæjarkjarnans undanfarin
ár. Undir er tveggja hektara svæði í
hjarta bæjarins þar sem verða versl-
anir, veitingastaðir, íbúðir, hótel og
fleira. Batteríið Arkítektar hefur
hannað miðbæinn og hefur umsjón
með framkvæmdum. JÁ-verk sér
um byggingu húsanna. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Samtaka Sigtúnsmenn og bæjarstjórar tóku skóflustungurnar.
Miðbærinn fæðist
Framkvæmdir hafnar á Selfossi