Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 9
Ljósmynd/Bergur Sigfússon
Aurskriða Bergur Sigfússon, bóndi í Austurhlíð í Skaftártungum, þurfti að
ryðja heimreiðina vegna aurskriðu sem féll líklega aðfaranótt sunnudags.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Þetta var ekki stærri aurskriða en
svo að ég gat stungið í gegnum skrið-
una með traktornum og opnað veg
fyrir frjótækninn sem varð að klára
sæðingu á tveimur kúm í gær. Það
var mikilvægt að klára sæðinguna í
gær þar sem það skiptir öllu að hitta
á réttan tíma þegar kýrnar hafa egg-
los,“ segir Bergur Sigfússon, bóndi í
Austurhlíð í Skaftártungu, í samtali
við Morgunblaðið, en aurskriða féll á
heimreið bæjarins. Hefur aurskriða
að líkindum ekki fallið á þessum stað
í um 80 ár.
Að sögn Bergs féll aurskriðan úr
hlíðinni yfir heimreiðina í 300 metra
fjarlægð frá bænum og sást ekki
þaðan.
Mikil rigning og lítið frost
„Skriðan hefur að öllum líkindum
fallið aðfaranótt sunnudags.Við urð-
um ekki vör við neitt og vissum ekki
af þessu fyrr en frjótæknir sem við
áttum von á hringdi og sagðist ekki
komast til okkar vegna aurskriðu í
heimreiðinni. Það kom mér alveg í
opna skjöldu því að ekki er vitað til
þess að minnsta kosti síðustu 80 ár
að þar hafi fallið skriða,“ segir Berg-
ur sem tók við búskap á bænum af
afa sínum sem er nú 81 árs gamall.
Bergur telur að mikil rigning í
bland við óvenjulítið frost á þessum
árstíma hafi haft sitt að segja og leitt
til þess að skriðan féll.
Vissu ekki af skriðufalli í heimreið bæjarins
Engin aurskriða fallið í Austurhlíð í minnst 80 ár Síðasti
dagur til sæðinga á sunnudag vegna eggloss hjá kúnum
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Mánudag til
Laugardags
Opnunartímar
10:00 - 18:00
BLACK FRIDAY!
Af tölvuskjám
Allt að50%Afsláttur
Af fart
ölvum
Allt að
40.000
Afslátt
ur
19.-24. nóvember
Af yfir
1000
vörum
90%
Afslátt
ur
Allt að
Fyrir upphæð all
t a
ð 3
00
.0
00KA
UP
IR
NÚ
NA
OG
GREIÐIR 1. FEB. 2019JÓ
LAG
REITT
2.95%
lántökugjaldoggreiðslu-ogtilky
nni
ng
ar
gj
al
d
kr
. 1
95
19.N
óvem
ber
2018
•
B
lack
Friday
tilboð
gilda
19-24.nóvem
ber
eða
m
eðan
birgðir
endast.B
irt
m
eð
fyrirvara
um
breytingar,innsláttarvillur
og
m
yndabrengl
„Við erum mjög stutt frá þeirri um-
ræðu að fólk talaði um sjálfsvíg sem
eitthvert val, eigingjarna athöfn og
siðlausa athöfn. Við erum bara stutt
komin í þeirri umræðu, en sem betur
fer lögð vel af stað,“ sagði Vigfús
Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur
í þjóðmálaþættinum Þingvöllum á
K100 í gærmorgun. Þar var því m.a.
velt upp hvers vegna Ísland hefði
haft eina hæstu sjálfsvígstíðni ungra
manna undanfarin tíu ár.
Vigfús sagði mikilvægt að fjöl-
skyldur fengju stuðning og talað
væri um sjálfsvíg sem veikindi. „Við
erum að eiga við veikan hug sem
rökstyður sig út úr lífinu. Þessi hug-
ur kemst að því að allir séu betur
settir án sín. Það er mjög mikilvægt
fyrir þær fjölskyldur sem tengjast
sjálfsvígum að fá þá aðstoð og skilja
að viðkomandi deyr úr veikindum.
Það á að tala um sjálfsvíg sem veik-
indi,“ sagði hann.
2018 „metár“ dauðsfalla
Vigfús var viðmælandi Bjartar
Ólafsdóttur auk Funa Sigurðssonar,
forstöðumanns Stuðla, en einnig
mættu þingmennirnir Ágúst Ólafur
Ágústsson og Willum Þór Þórsson í
viðtal til Bjartar. Fíknivandinn og
aukin neysla lyfseðilsskyldra lyfja
meðal ungs fólks voru meðal þess
sem bar á góma og þingmennirnir
voru spurðir út í afstöðu sína til
málaflokksins, einkum í ljósi þess að
árið 2018 fær þann vafasama titil að
vera metár hvað viðkemur dauðs-
föllum hjá fíklum. Funi nefndi að
pláss væri ekki vandamál í þessum
efnum heldur væri skortur á fjöl-
breyttum úrræðum.
„Fyrir tveimur áratugum vorum
við að berjast við unglingadrykkju
og reykingar. Við höfum náð stór-
kostlegum árangri í því […] en þró-
unin hefur verið óheillavænleg í
þessari tegund fíknisjúkdóma og í
þessum harðari heimi. Þetta er
kannski flóknari heimur því hann
tengist öðrum og verri hlutum.
Hann er lúmskari og erfiðari viður-
eignar. Auðvitað lögum við þetta
ekki eða tökumst á við þetta í einu
vetfangi, en við þurfum í gegnum
allt velferðarkerfið okkar að búa til
úrræði,“ sagði Willum. lisbet@mbl.is
K100 Vigfús Bjarni Albertsson (t.v.)
og Funi Sigurðsson á Þingvöllum.
Sjálfsvíg
rædd sem
veikindi
Sjálfsvígstíðni
ungra manna há