Morgunblaðið - 19.11.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018
Veldu Panodil®
sem hentar þér!
Verkjastillandi og hitalækkan
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra,
Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
d
dreif
eða lyfjafræ
r par
kanir. Sjá nánari up
flur. Innihelduinntö
ðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaver
ku, Panodil Brus freyðitö
i
a, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til kjum. Hitalækkandi.
serlyfjaskra.is.
gum ver
á www.
acetamól. Við væ
plýsingar um lyfið
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ingibjörg var skörungur semskóp og mótaði menningar-heimili sem var miðstöð Ís-lendinga í Kaupmannahöfn.
Okkur finnst mikilvægt að halda
hennar þætti til haga á sýningunni
í endurgerðri íbúðinni,“ segir Mar-
grét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður. Þessa dagana er verið að
leggja lokahönd á endurbætur á
íbúðinni í Jónshúsi á Øster Vold-
gade 12 í Kaupmannahöfn, þar sem
þau Jón Sigurðsson forseti og Ingi-
björg Einarsdóttir kona hans
bjuggu frá 1852 til dánardægurs,
en þau létust bæði árið 1879.
Á þriðju hæð
Alþingi Íslendinga fékk hús
Jóns Sigurðssonar við Austurvegg,
eins og gatan heitir upp á íslensku,
að gjöf 1966. Þar hefur æ síðan
verið margvíslegt félagsstarf og
menningarlíf á vegum Íslendinga í
Kaupmannahöfn, auk íbúða sem ís-
lenskir fræðimenn hafa aðgang að.
Þá hefur frá upphafi verið minning-
arstofa um Jón Sigurðsson með
sýningu í byggingunni.
Í tímans rás hafa þó verið
gerðar ýmsar breytingar á fyrir-
komulagi sýningarinnar, sem hefur
verið á þriðju hæð hússins þar sem
íbúð þeirra Ingibjargar og Jóns
var. Síðast var þar uppi sýning
meðal annars með munum úr
innbúi Jóns og Ingibjargar Einars-
dóttur, sem Þjóðminjasafn Íslands
varðveitir. Muna margir vafalítið
eftir mublum og fleiru úr búinu
sem var á sýningum safnsins, eins
og það var forðum daga, og eins
því að á núverandi grunnsýningu
safnsins er einnig fjallað um Ingi-
björgu og Jón.
Heimili byggt á rannsóknum
Á síðasta ári, þegar undirbún-
ingur fyrir hátíðahöld í tilefni af
100 ára afmæli fullveldis Íslands
hófst, vaknaði sú hugmynd að end-
urgera sýninguna í Jónshúsi. Fól
Alþingi Þjóðminjasafninu að hanna
og setja upp sýningu. Þá var
ákveðið að íbúðin skyldi gerð upp
svo hún yrði sem líkust því sem var
á tímum Jóns og Ingibjargar. Er
heimilið endurgert á grundvelli
rannsókna á íbúðinni sjálfri, sagn-
fræðilegum heimildum og varð-
veittum munum heimilisins í safn-
kosti Þjóðminjasafns.
„Okkur fannst þetta strax
áhugavert verkefni og þá ekki síst
að endurgera íbúðina út frá heim-
ildum og rökstuddum tilgátum,“
segir Margrét Hallgrímsdóttir.
Þjóðminjasafnið fól Láru
Magnúsardóttur sagnfræðingi að
kanna tiltækar heimildir um hvern-
ig heimili Jóns og Ingibjargar hefði
litið út og skilaði sú rannsókn heil-
miklu. Einnig var höfð hliðsjón af
þekkingu og heimildum um borg-
araleg heimili í Danmörku á síðari
hluta 19. aldar.
„Í þessu verkefni hefur verið
valinn maður í hverju rúmi og sam-
vinnan afar gefandi. Mjög munaði
um að við fengum eins og svo oft
áður danska forvörðinn Robert
Larsen, sem starfað hefur hjá
Þjóðminjasafni Dana, til liðs við
okkur. Í Jónshúsi tók hann sig til
og skóf hvert málningarlagið ofan
af öðru þannig að hinir upphaflegu
litir í íbúðinni sáust,“ segir Mar-
grét.
Thorvaldsensgulur
og Ítalíurautt
Og það fer ekkert á milli mála;
eldhúsið var gulbrúnt, gangurinn
Thorvaldsensgulur eins og það er
kallað, bókastofan Ítalíurauð, stáss-
stofa og svefnherbergi græn og
hornstofan í ljósgulum lit. Hópur
iðnaðarmanna hefur sinnt þessum
endurbótum út frá sýning-
arhandriti og hefur Halla Bene-
diktsdóttir, umsjónarmaður Jóns-
húss, haft umsjón með
framkvæmdunum. Þá hefur Jón
Runólfsson, fyrrverandi umsjón-
armaður, komið að málum.
Halla hefur til að mynda feng-
ið íslenskar konur búsettar í Kaup-
mannahöfn til að sauma í púða og
textíla eins og prýddu heimili
hjónanna um miðja 19. öld. Allt eru
þetta forkunnarfagrar hannyrðir.
Þá hefur bókasafni hússins sem til-
heyrir arfleifð Jóns verið komið
fyrir í bókastofu heimilis Ingibjarg-
ar og Jóns ásamt útgefnum bókum
um líf og starf Jóns forseta. Bóka-
stofa Jóns er mikilvægur hluti sýn-
ingarinnar.
Húsbúnaður frá fornsölum
Þegar kom svo að því að velja
húsbúnað var ákveðið að sýna ekki
viðkvæmar þjóðminjar heldur
kaupa húsbúnað frá miðri 18. öld á
fornsölum í Kaupmannahöfn og
reyndist úr nægu að velja. „Við
vildum að fólk gæti sest niður við
borð eða í sófa og umhverfið væri
þannig að fólk gæti notið, hand-
leikið og skoðað. Gildi munanna úr
hinu upphaflega innbúi Ingibjargar
og Jóns er meira en svo að áhætta
sé tekin. Allir í sýningarhópnum,
hönnuðir, forverðir, sérfræðingar
og starfsmenn hússins undir stjórn
verkefnisstjóra, hafa verið ótrúlega
útsjónarsamir við að finna muni á
fornsölum og mér finnst útkoman
mjög skemmtileg,“ segir Margrét.
Sem fyrr segir hefur stjórn
sýningarinnar verið í höndum þjóð-
minjavarðar í umboði Alþingis.
Heiti hennar er Heimili Ingibjarg-
ar og Jóns. Miðstöð Íslendinga í
Kaupmannahöfn 1851-1879. Heim-
ildaöflun vegna sýningarinnar hef-
ur verið í höndum sýningarhöf-
undar og sérfræðinga Þjóðminja-
safns. Af nægu er að taka, enda
margt til skráð um líf og starf Ingi-
bjargar og Jóns. Verður sá fróð-
leikur aðgengilegur í íbúðinni í
Jónshúsi á veggspjöldum. Hönnuðir
sýningarinnar eru þeir Þórarinn
Blöndal og Finnur Arnar Arnars-
son. Fjölmargir aðrir sérfræðingar
hafa komið að verkefninu undir
verkefnisstjórn Evu Kristínar Dal
hjá Þjóðminjasafni Íslands.
Fjölsóttur staður
Sýningin í Jónshúsi verður
opnuð 6. desember næstkomandi; á
Nikulásarmessu og fæðingardegi
dr. Kristjáns Eldjárns þjóðminja-
varðar og forseta Íslands. Margrét
segir dagsetninguna skemmtilega
en góða tilviljun, með vísan til þess
að fáum hafi tekist eins vel upp og
Kristjáni í frásögnum af þjóðmenn-
ingu og sögu Íslendinga og gert
hana aðgengilega almenningi.
„Hér í Kaupmannahöfn er ekki
til neitt sem sýnir íbúð 19. aldar og
að því leyti mun sýningin í íbúð
þeirra Ingibjargar hér í Jónshúsi
hafa mikið gildi,“ segir Halla Bene-
diktsdóttir. Hún hefur búið í Kaup-
mannahöfn í tæpan áratug og síð-
astliðin þrjú ár verið umsjónar-
maður Jónshúss. Þar er aðsetur
Íslendingafélagsins í Kaupmanna-
höfn, fimm íslenskir kórar æfa í
húsinu, vikulega er þar íslensku-
skóli fyrir börn, stundum sunnu-
dagskaffi fyrir gesti og fleira
skemmtilegt.
„Hingað koma sennilega á
bilinu 1.200-1.300 manns á mánuði
og verða sjálfsagt fleiri eftir að ný
og áhugaverð sýning verður opn-
uð,“ segir Halla í Jónshúsi að síð-
ustu.
Aftur til
19. aldar
Heimili Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns forseta í
Kaupmannahöfn endurgert eftir heimildum í tilefni
fullveldisafmælis. Var miðstöð samfélags Íslendinga
og verður opnað 6. desember næstkomandi.
Bókastofan Íbúðin er nú komin í sína upprunalegu liti og í bókastofunni
er fjöldi rita um Jón forseta og Ingibjörgu, sem margir hafa skrifað um.
Stöllur Halla Benediktsdóttir, umsjónarmaður Jónshúss, við mynd af
Ingibjörgu Einarsdóttur, konunni sem forðum réð ríkjum í þessu sama húsi.
Jónshús Byggingin er við Øster
Voldgade 12 í Kaupmannahöfn.