Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 14
Samkaup kaupa tólf verslanir Basko Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Samkaupa á tólf verslunum Basko á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða verslanir 10-11 í Lágmúla, Grímsbæ, Hjarðarhaga, Laugalæk, Borgartúni og Hafnarfirði, verslanir Iceland í Garðabæ, Engihjalla, Vest- urbergi og Arnarbakka auk háskóla- verslana í HÍ og HR. Í tilkynningu sem send var fjöl- miðlum á sunnudag segir að jafn- framt hafi verið undirritaður samn- ingur um að Samkaup eignist verslanir Iceland á Akureyri og í Reykjanesbæ. Mun Samkeppnis- eftirlitið úrskurða um þau kaup á næsta ári. Morgunblaðið greindi frá því í júlí að samningar hefðu náðst um kaup Samkaupa á fjórtán verslunum Basko með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Áður rak Basko samtals 42 sölustaði undir ýmsum merkjum, en gangi salan á verslunum Iceland á Akureyri og Reykjaesbæ verða verslanir Basco 28 talsins. Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaupa, segir að kaupin á versl- ununum muni auka samkeppni á dag- vörumarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Áður en Basko-verslanirnar bættust við ráku Samkaup fimmtíu verslanir, m.a. undir merkjum Nettó, Kjörbúð- arinnar og Krambúðarinnar. Öllu starfsfólki Basko-verslananna mun standa til boða að starfa áfram hjá Samkaupum. ai@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Samþjöppun Samkaup eignast, meðal annars, sex 10-11 verslanir.  Bíða enn úrskurðar um tvær búðir 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt 19. nóvember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.64 124.24 123.94 Sterlingspund 158.5 159.28 158.89 Kanadadalur 93.86 94.4 94.13 Dönsk króna 18.76 18.87 18.815 Norsk króna 14.563 14.649 14.606 Sænsk króna 13.638 13.718 13.678 Svissn. franki 122.65 123.33 122.99 Japanskt jen 1.0905 1.0969 1.0937 SDR 170.79 171.81 171.3 Evra 140.01 140.79 140.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.4959 Hrávöruverð Gull 1210.6 ($/únsa) Ál 1916.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.68 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Mike Pence, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði, bandarísk stjórn- völd reiðubúin að leggja enn meiri tolla á kínverskar vörur. Sagði hann að Bandaríkin mundu ekki hvika frá stefnu sinni í tollastríði landanna fyrr en kínversk stjórnvöld hefðu séð að sér. „Við höfum hækkað tolla á kínversk- an innflutning að andvirði 250 milljarða dala og gætum meira en tvöfaldað þá tölu,“ sagði Pence á ráðstefnu APEC ríkjanna í Papúa Nýju-Gíneu á laugar- dag. Notaði Pence tækifærið einnig til að vara aðrar þjóðir við að taka lán frá Kína en kínversk stjórnvöld hafa þótt beita lánveitingum til að auka pólitísk áhrif sín víða um heim. ai@mbl.is Enginn friðartónn í ummælum Pence Mike Pence STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Dæmin sanna að leysa má mikla krafta úr læðingi með því að hópa saman fyrirtækjum og frumkvöðl- um í klasa. Er eins og það eitt að vera undir sama þaki stuðli að því að þekking flæði greiðlega á milli fólks og góðar hugmyndir kvikni sísvona í samtölum við kaffivélina. Ifor Ffowcs-Williams segir samt ekki sama hvernig staðið er að klasastarfi. Hann bendir líka á að þó að íslenskir klasar hafi náð góð- um árangri þá séu aðrar þjóðir að sinna sínum klösum með markviss- ari hætti, og með rausnarlegri stuðningi hins opinbera. Ifor er forstjóri ráðgjafarfyri- tækisins Cluster Navigators á Nýja-Sjálandi og heimsótti Ísland á dögunum til að halda námskeið um klasastarf. Hann hefur verið reglu- legur gestur hér á landi undanfar- inn hálfan annan áratug og lagt mikið af mörkum við ýmis klasa- verkefni. Meðal þess sem Íslendingar eru að gera rétt, að mati Ifor, er að stofna klasa í kringum atvinnu- starfsemi þar sem þegar er ein- hvers konar forskot til staðar. „Það væri ekki vænlegt til árangurs að ætla að setja á laggirnar kjarn- orkutækniklasa í Keflavík,“ segir hann. „Samfélög þurfa að skoða og skilja hvar styrkleikarnir liggja og í hverju sérstaðan er fólgin, og stofna klasa á því sviði.“ Skapi heilbrigt vistkerfi Þá er ekki nóg að einfaldlega kaupa húsnæði og fylla af metn- aðarfullu fólki. „Hlúa þarf að vist- kerfinu innan klasans og fylla í göt- in ef þau eru til staðar,“ segir Ifor og nefnir sem dæmi að hjá klösum í Úkraínu sem hann hefur veitt ráðgjöf hafi það reynst mikil áskor- un að skapa traust á milli þátttak- enda í klösum svo að þeir haldi ekki hugmyndum sínum og verk- efnum leyndum. „Þessi göt geta verið af ýmsu tagi, t.d. vöntun á þjálfun, skortur á tengingum út í heim eða lítið framboð af opinber- um styrkjum og viljugum fjárfest- um.“ Hjá árangursríkustu klösunum hefur tekist að koma á góðri blöndu af samkeppni og samstarfi, sem Ifor kallar á ensku „coopeti- tion“. „Gott dæmi um þetta er Kís- ildalur þar sem ríkir geysilega hörð samkeppni á milli fyrirtækja en þau gera sér um leið grein fyrir að á vissum sviðum er betra að vinna saman, sameina kraftana og nýta styrkleika og sérþekkingu hvers og eins. Þetta gera líka öflug íslensk fyrirtæki á borð við Marel og Hampiðjuna, sem leita til utanað- komandi aðila og nýta sérþekkingu þeirra til að leysa ýmis afmörkuð verkefni.“ Samræmt og hnitmiðað Ifor mælir einnig með því að samræma stuðning stofnana við nýsköpun. Hann segir það eiga við um Ísland rétt eins og flest önnur lönd að fjöldi stofnana hefur ein- hvern snertiflöt við nýsköpunar- samfélagið en þær vinni hver í sínu horni, og hver með sína stefnu og markmið. „Það er hægara sagt en gert, en þessar stofnanir þurfa að geta talað saman. Þær ættu að setjast að borðinu með nýsköpun- arfyrirtækjunum til að stilla saman strengi til að geta veitt nákvæm- lega þá hjálp sem fyrirtækin vant- ar í raun.“ Þessu tengt segir Ifor að gæti verið gæfuspor að stjórnvöld eyrnamerki fjármagn tilteknum klösum, til viðbótar við styrki sem gætu verið í boði annars staðar. „Þetta sjáum við t.d. gerast í Kan- ada þar sem nýlega var ákveðið að ráðstafa 150 milljónum dollara til að koma sjávarútvegsklösum á laggirnar. Brot af fjármagninu fer í yfirbyggingu og stjórnun en megn- inu verður ráðstafað í rannsóknir og þróun, og notað til gefa þátttak- endum í klasanum góðan stökkpall fyrir nýjar vörur og þjónustu. Hef- ur þess líka verið vandlega gætt að það séu ekki stjórnvöld sem ráði hvert fjármagnið fer, heldur fyr- irtækin. Fyrirtækin ráða ferðinni en stjórnvöld eru í því hlutverki að útvega fjármagnið og leiða saman klasann og fræðasamfélagið.“ Sterkir klasar blanda sam- an samkeppni og samstarfi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samanburður Ifor segir stjórnvöld í Kanada hafa farið þá leið að eyrna- merkja háar fjárhæðir klasastarfi og skapa þannig enn betri stökkpall.  Að búa til öflugan klasa kallar á að skapa rétta vistkerfið og fylla í ákveðin göt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.