Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Snorri Másson snorrim@mbl.is „Þetta snýst ekki um mig, þetta snýst um hvert rétta skrefið er fyrir þjóð- ina,“ sagði Theresa May í viðtali á Sky News í gær. Margir þingmenn eru ósammála þessari fullyrðingu hennar. Þeim finnst málið einmitt snúast að miklu leyti um hana og þau drög sem hún hefur lagt fram. Það stendur áfram styr í Bretlandi um háttinn sem verður hafður á út- göngu þeirra úr Evrópusambandinu. Stöðu May sem forsætisráðherra er ógnað og í dag kann að skýrast hvort gengið verður til atkvæðagreiðslu meðal íhaldsþingmanna um vantraust á henni. Til þess að kosið verði um slíkt, þurfa stjórn flokksins fyrst að berast 48 bréf sem krefjast þess. May myndi sennilega tapa Formaður nefndar þingflokks íhaldsmanna, Sir Graham Brady, gef- ur ekkert upp um fjölda bréfa sem hafa borist en segir að um leið og 48 bréf hafi borist honum, muni hann til- kynna það umsvifalaust. May hefur gert athugasemd við orðróm um van- traust: „Brottrekstur minn myndi ekki gera þessa útgöngu neitt auð- veldari.“ Háværar gagnrýnisraddir eru uppi um drög May að útgöngusamningi. May er mjög í mun að koma þessum samningi í gegnum þingið, því eins og Guardian fjallaði um, kemur frestur á útgöngunni til með að kosta Breta 10 milljarða punda, andvirði 1.576 millj- arða króna. Fjöldi þingmanna sér þó alls ekki fram á að geta unað við 585 blaðsíðna samningsdrögin sem May hefur lagt fram. Mest er deilt um landamæri Norður-Írlands við lýðveldið Írland. Til þess að þau megi áfram vera opin þarf Norður-Írland, sem er hluti af Bretlandi, að lúta öðrum lögmálum en restin af Bretlandi. Þennan fyrirvara geta ekki allir fallist á og sumum þyk- ir þetta heita að gefa um of eftir kröf- um ESB. Sem að framan greinir skapar þetta vantraustsundiröldu gegn May innan Íhaldsflokksins. Nadine Dorries, samflokkskona May og þing- kona í Mið-Bedfordshire, sagði á laug- ardag við Sky News að sér kæmi ekki á óvart ef stjórninni bærust þessi 48 bréf fyrir daginn í dag. „Nú förum við að sjá hreyfingu á þessu,“ sagði Dor- ries. Ef til vantraustskosninga meðal íhaldsmanna kemur og það er ekki samþykkt, þá má ekki leggja fram vantraust á May fyrr en að liðnum öðrum 12 mánuðum. „Ég sé ekki fyrir mér, þegar við stöndum frammi fyrir öðrum eins vanda, að þingmenn muni vilja gefa henni 12 mánaða vörn gegn vantrausti. Ekki í þessum aðstæð- um,“ segir Dorries. Hún telur að ef kosið verður um hvort May víki eður ei, þá hljóti May að tapa þeirri kosn- ingu. Bretar deila enn Hvort sem breska þingið samþykk- ir samningsdrög May eður ei, liggur fyrir að föstudaginn 29. mars kl. 11 gengur Bretland úr Evrópusamband- inu. Ef Bretar koma sér ekki saman um hvernig þeir vilja hátta útgöng- unni fer hún fram engu að síður og það án samnings. Mun fæstum þykja sú niðurstaða fýsileg. Að fara úr ESB samningslaust gæti haft í för með sér upplausn í Norður- Írlandi, mikla röskun á viðskiptasam- böndum Breta við aðrar þjóðir og óvissu fyrir bæði breska íbúa í Evr- ópusambandslöndum og sömuleiðis Evrópumenn búsetta í Bretlandi. Öll spjót standa nú á May  Stjórn Íhaldsflokksins tilkynnir þegar henni hafa borist nógu mörg bréf til að knýja fram atkvæðagreiðslu um vantraust  Staða May gæti skýrst í dag AFP Erfiðir tímar Theresa May forsætisráðherra yfirgefur þinghúsið um helgina. Staða hennar sem leiðtogi Íhaldsflokksins er síður en svo trygg. Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki sannfærður um að sú niðurstaða bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, að Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, hafi fyrirskipað morðið á Jamal Khashoggi, sé rétt. Utanríkis- ráðuneyti Bandaríkjanna sagði niður- stöðurnar „ónákvæmar“ og Trump tók í sama streng í samtali við Fox. Leyniþjónustan CIA greindi frá því á laugardaginn að hún teldi öruggt að bin Salman hefði fyrirskipað morðið. Utanríkisráðuneyti Trumps kvað þá niðurstöðu CIA vera hennar en ekki endilega bandarískra stjórnvalda. Trump gaf óskýr svör um þessi mál um helgina og vísaði til væntanlegrar skýrslu stjórnvalda um morðið. Jamal Khashoggi var myrtur inni á ræðismannsskrifstofu Sádi-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi í október. Sak- sóknari í Sádi-Arabíu hefur komist að niðurstöðu ólíkri niðurstöðu CIA. Þar hafa fimm sádiarabískir embættis- menn verið ákærðir fyrir morðið en krónprinsinn bin Salman sagður ekki tengjast málinu. Krónprinsinn og Jemen Nú er hávær krafa uppi á Vestur- löndum um að þrýst sé á sádíarabísk stjórnvöld um að bæði gangast við morðinu og, sem skiptir meira máli, að þau láti af hernaði í Jemen og semji um vopnahlé. Bandaríkin og, þótt í minna mæli sé, Bretland eiga mikilvægt við- skiptasamband við Sádi-Arabíu vegna vopnasölu. Ætla má að Trump víki sér undan afdrátt- arlausum spurningum um krónprins- inn þeirra vegna. Í Jemen hefur ríkt styrjaldarástand í nokkur ár. Tugir þúsunda hafa látist og þar blasir við versta hungursneyð síðari tíma. Sádí-Arabía styður ríkis- stjórnina þar gegn uppreisnarmönn- um. Krónprinsinn bin Salman er sagð- ur lykilmaður í stríðinu í Jemen. Fréttaskýrandi BBC telur stöðu krónprinsins aldrei hafa verið veikari. Að hans sögn mun prinsinn missa ein- ræðisvald sitt yfir Sádí-Arabíu. Þannig hafi þetta neikvæð áhrif á hann jafnt í málum innan hans eigin ríkis sem og alþjóðlega. Ekki alls fyrir löngu var hann vinsæll og dáður af Vestur- landabúum ýmsum og jafnvel í Holly- wood en eftir morðið á Khashoggi og versnandi ástand í Jemen er hann í slæmri stöðu á flestum vígstöðvum. Niðurstaða CIA, ekki Bandaríkjanna  Krónprins Sádi-Arabíu í slæmri stöðu Mohammed bin Salman Yfirvöld í Argentínu hafa ekki efni á að draga brak kafbátsins ARA San Juan upp af hafsbotni, en brakið fannst í nokkrum pörtum í Atlants- hafi á laugardag. Nú er þrýst á yfir- völd að ráðast í aðgerðir og segjast syrgjendur látinna í skipbrotinu ekki fá lúkningu fyrr en þá. Varnarmálaráðherra Argentínu sagði í viðtali við BBC að ríkið „hefði ekki efni“ á að draga bátinn upp. Báturinn hvarf 15. nóvember í fyrra og hefur ríkt fullkomin óvissa um af- drif hans þar til nú, næstum ná- kvæmlega ári síðar. „Við erum öll miður okkar hérna,“ segir Yolanda Mendiola, móðir 28 ára háseta sem var um borð í skip- inu. „Þeir segja að börnin okkar séu í brakinu. Við fáum ekki lúkningu fyrr en það verður dregið upp. Það er hægt, segja þeir [fyrirtækið er fann brakið],“ sagði Mendiola. Brakið liggur sundurhlutað á 70 fermetra svæði á 900 metra dýpi. Bandarískt björgunarfyrirtæki, Ocean Infinity, fann brakið eftir langa leit. Argentínska ríkið hafði falið fyrirtækinu þetta verkefni eftir að önnur viðleitni bar ekki árangur. Að draga bátinn upp af hafsbotni er að sögn heimildarmanns BBC mjög flókin aðgerð og „því ákaflega dýr“. Enn liggur ekki nákvæmlega fyrir hvað olli því að kafbáturinn fórst, en vitað er að sprenging varð um borð í honum. Kafbátur fundinn eftir árs langa leit  ARA San Juan fannst á hafsbotni  Syrgjendur vilja að braki sé lyft AFP ARA San Juan Fjölskyldur látinna mótmæltu sparsemi stjórnvalda. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir ástandið í bænum Paradise í Norður-Karólínu óviðunandi eftir stórbruna um helgina. Mannfall er einnig mikið eftir hamfarirnar. Bærinn Paradise er brunninn til grunna ásamt þúsundum annarra mannvirkja víða um Norður- Kaliforníu. Trump ferðaðist vestur til Kaliforníu um helgina til að kanna aðstæður þar. „Þegar maður fylgist með frá Washington gerir maður sér ekki grein fyrir alvöru málsins,“ sagði hann í samtali við fjölmiðla vest- anhafs. „Eins miklir og eldarnir virðast á sjónvarpsskerminum sér maður ekki hvað er í gangi fyrr en maður mætir á svæðið,“ sagði for- setinn einnig. Ástandið á þessum svæðum er, eins og Trump bendir á, graf- alvarlegt. Í gær voru 79 sagðir látnir svo vitað sé, sem eitt og sér er lang- hæsta tala látinna í skógareldum í sögu svæðisins. Líklegt þykir að tala látinna eigi eftir að hækka enn frek- ar á næstunni. Á þrettánda hundrað manns er enn saknað. Loftmengun á svæðinu er einnig í sögulegu há- marki og alþjóðleg loftgæðamæl- ingasamtök hafa ályktað um að hvergi í heiminum finnist eins slæmt loft núna og á þessum slóðum í Kali- forníu. snorrim@mbl.is AFP Á vettvangi Donald Trump forseti fór á hamfarasvæðið um helgina. Hátt í 80 manns eru sagðir látnir  Bærinn Paradise rústir eftir stórbruna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.