Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 16

Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kenningarum endi-mörk vaxt- arins ganga nú aft- ur og að þessu sinni koma þær frá forsætisráðherra landsins. Fyrir tæpri hálfri öld kom út bókin Endimörk vaxt- arins eftir höfunda sem saman kölluðu sig Rómarhópinn. Bók- in vakti töluverða athygli enda voru í henni boðuð mikil tíðindi. Nú væri komið að endimörk- unum hjá mannkyninu, lengra yrði ekki gengið. Náttúrulegar takmarkanir, hráefni og aðrar náttúruauðlindir, kæmu í veg fyrir að vöxtur í efnahagslífi heimsins gæti haldið áfram. Menn yrðu að læra nægjusemi og hætta neysluhyggjunni svo- kölluðu. Frá því að þessar kenningar voru settar fram hafa verðmæti framleiðslunnar hér á landi sennilega um það bil þrefald- ast. Það hefur sem sagt verið myndarlegur hagvöxtur að meðaltali, þó að hann sé mis- jafn á milli ára. Þessi góði gangur hefur bætt kjör alls almennings, þó að fólk hugsi svo sem ekki út í það alla daga, eða það hafi jafnvel alveg farið framhjá því enda gerist þetta í smáum skrefum. En ef að horft er hálfa öld aftur í tím- ann er augljóst að himinn og haf eru á milli lífskjaranna nú og þá. Það er líka augljóst að hægt er að gera mun meira fyrir þá sem þurfa stuðning hins opin- bera, hvort sem það er á sviði menntunar, heil- brigðis eða vel- ferðar. Og allir inn- viðir landsins hafa tekið stakkaskipt- um á þessari hálfu öld. Þetta blasir við öllum sem þekkja fyrri tíð og ástæðan fyrir þess- um miklu framförum er að hag- urinn hefur vænkast. Hér hefur verið efnahagsvöxtur. Án hans hefði okkur ekki miðað áfram með þessum hætti. En nú er hagvöxturinn úrelt- ur að sögn forsætisráðherra. Nú höfum við rekist á endi- mörkin, sem við áttum að rek- ast á fyrir hálfri öld en höfum ekki fundið enn. Hún er sérkennileg þessi ár- átta vinstri manna að tala niður árangur, atorkusemi og upp- finningasemi mannsins, því að það er einmitt þetta sem málið snýst um. Spár um endimörk vaxtarins fela í sér mikla vantrú á mannsandanum. Þær fela í sér að fólki muni hér eftir ekki detta í hug nýjar leiðir til að gera betur og nýta betur. Slíkar spár fela einnig í sér skort á hugmyndum, en ekki aðeins það, heldur vantrú á hugmyndaauðgi annarra. Við eigum ekki að gera lítið úr sköpunarkrafti og dugnaði fólks. Engin ástæða er til að ætla að nú sé komið að endi- mörkum og að framundan sé stöðnun í stað framfara. Engin ástæða er fyrir forsætisráð- herra að fyllast slíku vonleysi og enn minni ástæða að bera það á borð fyrir landsmenn. Falskenningar batna ekki með aldrinum}Er endimörkunum náð? Atburðarásin íBretlandi við kynningu á loka- samningi um brott- för Breta úr ESB hefur óneitanlega vakið mikla undr- un, jafnt þar í landi og utan þess. Sumir sem um málið véla láta eins og enn sé verið að höndla um það við búrókrata í Brussel „hvort“ Bretar eigi að yfirgefa þetta samband eða ekki. Það mál var endanlega leyst í bresku þjóðaratkvæði. Það orð hefur þá náttúru að það segir alla söguna. Ákvörð- uninni verður ekki skotið neitt annað. Á hinn bóginn fer mjög vel á því að embættismenn í Brussel skilji alls ekki þetta orð eða inntak þess. Það er lakara ef menn eins og Tony Blair skilja það ekki heldur. Hann heimtar hvað eft- ir annað nýja atkvæðagreiðslu enda sé það hans niðurstaða að þau 52% sem sögðu já við út- göngu hafi ekki vitað hvað þau gerðu. Það byggist ekki á neinni athugun, enda óhægt um vik. Það veit enginn hver sagði já og hver nei. Fengi Blair sitt fram og kosið yrði á ný og 52% segðu þá nei við útgöngu yrði Blair væntanlega spurður hvort ekki væri rétt að kjósa á ný. Væntanlegt svar hans hef- ur hvergi verið birt en liggur þó í augum uppi. Tony Blair myndi þá segja: Að sjálfsögu þarf ekki að efna til þriðju at- kvæðagreiðslu. Slíkt væri ólýð- ræðislegt, ef ekki brot á lögum landsins og örugglega brot á öllum skráðum og óskráðum siðareglum þess og heims- byggðarinnar allrar. Hverjum gæti dottið í hug að efast um atkvæðagreiðslu þegar hún fer þannig að allir vitibornir menn sjá samstundis að þeir sem greiddu atkvæði vissu ná- kvæmlega hvað þeir voru að gera. Merkilegt að það skuli ekki vefjast fyrir svona snillingum að skilgreina sig sem lýðræð- issinna. Umræðan um út- göngu Breta úr ESB hefur margar skrítnar hliðar} Skrítið víðar en í kýrhausnum N ú stendur yfir á Alþingi önnur umræða fjárlaga fyrir árið 2019. Þetta er annað fjárlaga- frumvarpið sem lagt er fram af núverandi ríkisstjórn. Það sýn- ir svart á hvítu að það er enginn vilji til að rétta hlut þeirra sem búa við bágustu kjörin. Manngerð fátæktargildran sem heldur okkar minnstu bræðrum og systrum í heljar- greipum, rammgerist einungis í meðförum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Lítilsvirðingin er algjör Það sem einkennir framgöngu ríkisstjórn- arinnar er sú skefjalausa hagsmunagæsla sem hún rekur. Forgangsröðun fjármuna er bæði ósanngjörn og röng. Lítilsvirðingin gagnvart þeim sem minni máttar eru, er algjör. Ég er ekki að kalla eftir auknum fjárútlátum ríkis- sjóðs, einungis að óska eftir eðlilegri forgangsröðun á sameiginlegum fjármunum okkar í þágu fólksins. Að sjálfsögðu með styrkri og ábyrgri hagstjórn. Hún er óumdeilt til farsældar fyrir okkur öll. Um kolranga forgangsröðun Lækka á bankaskattinn um 7 milljarða króna. En þeir eru í engum vanda. Lækka á veiðigjöldin um 4,3 milljarða króna. Undar- legt á þessum tímapunkti þegar krónan hefur lækkað um rétt tæp 15% og aukið útflutningsverðmæti útgerðar- innar svo um munar í leiðinni. Það rétta væri að afkomu- tengja hverja og eina útgerð fyrir sig þannig að greiðsl- an yrði sanngjarnari fyrir alla. Lækka á neðra skattþrepið um 1%, kostar ríkissjóð 14 milljarða en gefur þeim efnaminnstu það lítið í aðra hönd að það dugar tæplega fyrir hálfri pizzu. Kostnaður við það að flytja heilbrigðis- ráðuneytið í annað húsnæði í stað þess að nýta núverandi húsakost er a.m.k 212 millj- ónir króna. 4 – 500 milljónir til bókaútgefenda. Ég segi frábært en er ekki eitthvað enn meira aðkall- andi eins og að geta upprætt biðlista á Vogi og barist af afli gegn þeirri dauðans alvöru sem þegar hefur á árinu banað 42 ein- staklingum á aldrinum 18-40 ára. Sækjum 50 milljarða árlega í lífeyrissjóðina Þetta er ekki flókið, einungis að afnema undanþágu líf- eyrissjóða til að halda eftir hjá sér staðgreiðslunni af því sem við greiðum til þeirra. Þeir s.s borga ekki stað- greiðsluna sem þegar hefur verið tekin af okkur, fyrr en við förum að taka út lífeyrisréttindin, þ.e.a.s. þau okkar sem lifa það lengi. Mismunurinn á því hvort lífeyrissjóð- irnir greiða við inngreiðslu í þá eða við útborgun úr þeim, eru heilir 50 milljarðar króna á ári. Lokaorð Afnemum undanþágu lífeyrissjóðanna og forgangs- röðum fjármunum okkar öðruvísi. Eins og sést hér að of- an er ég þegar komin með 76 milljarða króna sem ég vildi sjá fara til þeirra sem mest þurfa á að halda. Ég segi það aldrei nógu oft: „Burt með biðlista, burt með skerðingar og burt með þjóðarskömmina fátækt.“ Inga Sæland Pistill Blóðtakan heldur áfram Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Innleiðing þriðja orkupakkaEvrópusambandsins hefurmeðal annars verið gagnrýndfyrir að fela í sér að ákvarð- anavald er varðar íslensk málefni færist til evrópsku orkustofnunar- innar ACER, sem Ísland á ekki aðild að. Hefðbundið er meðal EFTA-EES ríkjanna að eftirlit með framkvæmd Evrópu-löggjafar sé á höndum stofn- ana EFTA, sem Ísland á aðild að. Þessu hlutverki gegna hins vegar stofnanir Evrópusambandsins í til- felli aðildarríkja þess og er því talað um að innan EES séu tvær stoðir, ein fyrir EFTA-EES-ríkin og önnur fyr- ir aðildarríki Evrópusambandsins. Á þessum grundvelli hefur verið talið að valdaframsal Íslands standist ákvæði stjórnarskráarinnar, enda á landið aðild að þeim stofnunum sem fara með vald yfir málefnum er snerta Ísland. Deilt um valdheimildir Í grein sem birt var í vefritinu Úlfljóti í júlí um áhrif innleiðingar þriðja orkupakka ESB sagði Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Lands- virkjunar, að samkvæmt sam- komulagi milli EFTA-EES ríkjanna og ESB mundu valdheimildir ACER gagnvart eftirlitsaðilum innan EFTA-ríkjanna vera í höndum Eft- irlitsstofnunar EFTA, ESA. ESA mun taka fullan þátt í starfi ACER, en án atkvæðisréttar. Á málþingi lagadeildar Háskól- ans í Reykjavík í ágúst sagði Henrik Bjørnebye, prófessor við lagadeild Háskólans í Ósló, að stofnanir EFTA mundu vissulega fara með vald ACER, en í því samhengi mundu ákvarðanir byggjast á drögum að úr- skurði sem rituð eru af ACER. „Það er augljós vafi um hversu sjálfstæð ákvarðanataka stofnana EFTA er að þessu leyti,“ sagði hann. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sagði á Alþingi í síðustu viku að „sí- fellt fleirum líður eins og Evrópusam- bandið beri ekki þá virðingu fyrir tveggja stoða kerfinu sem okkur finnst það eiga að gera“. Vill útvíkka undanþágur Til þess að svara þeirri gagnrýni sem orkupakkinn hefur hlotið hefur ríkisstjórnin ákveðið að fresta mál- inu, en ekki er víst að hægt sé að end- ursemja án þess að hafna pakkanum. Sigurður Ingi Jóhannsson, for- maður Framsóknarflokksins og sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði um innleiðingu þriðja orku- pakka ESB í ræðu sinni á fundi mið- stjórnar Framsóknarflokksins á laugardag, að hann teldi rétt að út- víkka undanþágur Íslands í samstarfi við önnur EFTA-EES ríki og Evr- ópusambandið. Þá sagði hann einnig að afgreiða ætti málið með fyrirvara. „Minn skilningur er sá að fyrst við erum búin að afgreiða þetta úr EES-nefndinni að þá er búið að segja að allt sé bara klappað og klárt og í lagi okkar megin. Við hefðum þurft að koma fyrr að í ferlinu til þess að hafa áhrif á einmitt hvernig þetta lít- ur út. Þannig að ég sé ekki að við get- um gert mikið til þess að stoppa þetta,“ svarar Gustav Pétursson stjórnmálafræðingur, spurður um orð Sigurðar Inga. Spurður hvort hann telji valkosti Íslands takmarkast við að samþykkja innleiðingu eða að hafna tilskipun- inni, svarar Gustav því játandi. Þegar blaðamaður spyr Sigurð Inga hvaða undanþágna hann hafi vísað til á fundi framsóknarmanna segir hann: „Þessara sem við höfum ávallt haft sem snúa fyrst og fremst að uppskiptingu fyrirtækja. Til að mynda er Landsnet að hluta í eigu Landsvirkjunar. Við höfum viðhaldið þeirri undanþágu vegna þess að við erum ekki hluti af evrópskum orku- markaði og er það kannski leiðin þar sem að þriðji orkupakkinn fjallar fyrst og fremst um flutning orku milli landa á sameiginlegum samkeppn- ismarkaði um rafmagn. Við erum bara ekki tengd honum og ítrekum, útvíkkum hugsanlega, undanþágu.“ Hafnar ekki pakkanum Ekki er þörf á að hafna tilskipun Evrópusambandsins, að mati ráð- herrans sem segir fyrir liggja undan- þágur varðandi orkumál sem hann vill meina að hafi ekki verið nýttar til fulls. Inntur álits á því hvort sé of seint nú að ætlast til þess að end- ursemja um innihald orkupakkans segir Sigurður Ingi: „Ég átta mig á þessu, en ég held að ástæðan sé sú að þegar menn, án þess að ég þekki það, leituðu eftir undanþágum hafa menn ekki gert sér grein fyrir í hvaða stöðu málið yrði á Íslandi. Þeir sem hafa nú talað hæst voru sumir þeirra sem höfðu þetta á sinni könnu á sínum tíma. Spurningin er hvort þeir áttuðu sig á því þá að það yrði svona gríðar- leg andstaða við að innleiða tilskipun um eitthvað sem ekki er?“ Orkupakkinn virðist hanga í lausu lofti Morgunblaðið/Einar Falur Flækja Ekki virðist ljóst hvort hægt verði að semja sig frá ákvæðum þriðja orkupakka Evrópusambandsins án þess að hafna honum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.