Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 21

Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 ✝ Jón RafnarHjálmarsson fæddist 28. mars 1922 í Bakkakoti, Vesturdal í Skaga- firði. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans við Hring- braut 10. nóvember 2018. Foreldrar hans voru Hjálmar Jóns- son bóndi, f. 1889, d. 1922, og Oddný Sigurrós Sigurð- ardóttir, f. 1890, d. 1984. Seinni maður Oddnýjar var Stefán Jó- hannesson, f. 1895, d. 1990. Systkini Jóns samfeðra voru Her- borg, f. 1914, d. 1994, Sigurður Helgi, f. 1918, d. 2001, Helga, f. 1919, d. 2007, og Jón Rafnar, f. 1920, d. 1921. Systkini hans og börn Stefáns voru Aðalsteinn, f. 1923, d. 1929, Hjálmar Alexand- er, f. 1926, d. 2016, Sigrún Jó- hanna, f. 1928, d. 1928, Aðalbjörg Sigrún, f. 1930, d. 2013, og Dag- björt Hrefna, f. 1933, d. 2011. Jón ólst upp í Bakkakoti. Hann lauk búfræðiprófi frá Hólum 1942, stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1948, cand.mag.-prófi í ensku, þýsku og sögu frá Óslóarháskóla 1952 um 1954-1968 og frá 1970-1975 og skólastjóri við Gagnfræða- skólann á Selfossi 1968-1970. Hann var síðan fræðslustjóri á Suðurlandi frá 1975 til starfsloka árið 1990. Jón og fjölskylda hans bjuggu um árabil á Selfossi en síðastliðin fimmtán ár hafa Jón og Guðrún búið í Reykjavík. Samhliða skólamálum fékkst Jón við margskonar ritstörf. Eft- ir hann liggja fjölmargar bækur, þeirra á meðal kennslurit og bækur um sagnfræði og þjóð- legan fróðleik. Hann gerði einnig útvarpsþætti og tók viðtöl við fólk sem síðar komu út í bók- arformi. Um árabil sinnti Jón leiðsögn með erlenda ferðamenn og seinna meir Íslendinga og fór í slíkar ferðir allt fram til 2017. Var hann heiðursfélagi í Félagi leiðsögumanna. Síðustu árin skrifaði Jón leiðsögurit með ýms- um fróðleik úr byggðum lands- ins. Ásamt Þórði Tómassyni safn- verði í Skógum var Jón um langt árabil ritstjóri og útgefandi Goðasteins, héraðsrits Rang- æinga. Einnig ritstýrði Jón Rot- ary Norden af Íslands hálfu. Jón hlaut riddarakross hinnar ís- lensku fálkaorðu árið 1983 og var sæmdur Paul Harris Fellow- orðu Rótarýhreyfingarinnar 1986 og 1996. Jón var alla tíð mjög virkur í félagsstörfum. Útför hans fer fram frá Nes- kirkju í dag, 19. nóvember 2018, klukkan 13. og cand.philol.- prófi í sagnfræði frá sama skóla 1954. Hinn 25. sept- ember 1954 kvænt- ist Jón Guðrúnu Ólöfu Hjörleifs- dóttur, f. 10. apríl 1927. Börn þeirra eru: 1) Halldóra, f. 1957. 2) Hjálmar Andrés, f. 1960, kvæntist Maríu Jónsdóttur, þau skildu. Börn þeirra eru Guðrún Andrea, f. 1990, sambýlismaður hennar er Máni Dagsson og þeirra dóttir er Saga Sólrún, f. 2016, Jón Rafn, f. 1992, og Valgerður Agla, f. 1994. 3) Hjörleifur Rafn, f. 1961, kvæntist Noru Taylor, þau skildu. Dætur þeirra eru Mána Hao, f. 1997, og Sóley Nai, f. 2001. 4) Oddný Sigurrós, f. 1963, gift Sveini Ingimarssyni, synir þeirra eru Ingimar, f. 2000, og Hjörleifur Örn, f. 2005. 5) Guð- rún Helga, f. 1967, gift Þorvaldi Haraldssyni. Dætur hennar eru Andrea Rún Engilbertsdóttir, f. 1993, og Ólöf Freyja Þorvalds- dóttir, f. 2004. Jón var skólastjóri Héraðs- skólans í Skógum undir Eyjafjöll- Jón Rafnar Hjálmarsson. Meistari margfróður, málfagur, stílgóður. Lífshlaupi Jóns R. Hjálmars- sonar frænda míns er lokið. Það var fróðlegt að fylgjast með fram- rás hans á menntabrautinni og síðan á hinum langa starfsferli skólamála. Það var hörkudugleg- ur piltur sem dreif sig áfram til mennta. Hann stóðst andlegar áraunir millilandasiglinga í geng- um ógnir kafbátastríðsins. „Stríðsárin stóð hann í brúnni, stýrði frá tundurdufli.“ Hann renndi sér með láði gegn- um menntabrautina, innanlands og erlendis. Búnaðarskólann á Hólum, Menntaskólann á Akur- eyri og Óslóarháskóla. „Mannkyns nam mikil fræði magisterstign þar náði.“ Þá er ferill hans í skóla- og fræðslumálum mjög farsæll. Starf heimavistarskólastjóra er annað og meira en fræðslustarfið. Þar koma svo margir snertifletir til- finninga og viðmóts upp hjá unga fólkinu. Í þessu mikla uppeldis- hlutverki stóð hann ekki einn. Hann hafði mikið og gott kenn- aralið með sér, en síðast og ekki síst stóð þar við hlið konan hans, skátastúlkan hún Guðrún, „ávallt viðbúin“. Tveggja áratuga starf í heimavistarskóla heimtar meir en meðalmenn til verka. Þar hafa hjónin skilað mjög miklu dags- verki. Að loknu þessu mikla starfi í Skógum tók hann við fræðslu- stjórastarfinu á Suðurlandi og annaðist það í 15 ár. Það verkefni var að hluta til brautryðjenda- starf, sem var í mótun. Þar reyndi meir á almenna yfirsýn hans til skólastarfsins, en minna á dag- lega stjórnun. Á þessu tímabili deildum við saman vinnuhúsnæði. Þar áttum við margar ómetanleg- ar stundir bæði til fróðleiks og skemmtunar. Jón var mikilvirkur í störfum. Athafnaþrá hans og andleg at- hafnasemi átti sér lítil takmörk. Hans lífsmarkmið var að fræða og leiðbeina. Hann var margfróður meistari sagna og fræða. Hann aflaði sér fróðleiks með viðtölum fjölda manna. Hann kom því fræðasafni á framfæri bæði í ræðu og riti. Leiðsögn hans innanlands og erlendis var fyrir löngu orðin landskunn. Hann var mjög eftir- sóttur til þeirra starfa. Fræði- bækur hans og ferðarit skipta nokkrum tugum. Það er skammt bil á milli kenn- arans og kennimannsins. Senni- lega hefur kennimannsgenið úr goðdalaprestunum ættingjum okkar, náð að erfast betur hjá Jóni, en mörgum öðrum. Það er ómetanlegur fróðleikur sem hann hefur dregið saman og komið á framfæri og lagt á borð fyrir okk- ur. Það eru fáir sem náð hafa slík- um afköstum. Að leiðarlokum þökkum við Bryndís allar góðu samverustund- irnar og vottum Guðrúnu og fjöl- skyldu innilega samúð. Brostin vinarböndin, blessuð minning lifir. Hjörtur Þórarinsson. Í dag kveð ég minn gamla góða skólastjóra Jón R. Hjálmarsson. Kynni okkar hófust er ég steig mín fyrstu spor í Héraðsskólann í Skógum, sem þá þegar hafði getið sér gott orð, sem góð og öguð menntastofnun undir stjórn Jóns, sem og annarra kennara og starfsfólks. Trúlega vandasamt verk, en flestum þeim farsæld til framtíðar sem vel vildu vinna úr uppeldinu. Í hartnær 60 ár hafa leiðir okk- ar Jóns legið saman í samskiptum allskonar, vinskap og viðskiptum, og enn frekar eftir að þau Guðrún og fjölskylda fluttu til Reykjavík- ur. Jón var mikill skólamaður, sí- vinnandi að mennta- og menning- armálum sem þekkt er. Listunnandi rekstrarmaður sem keypti verk mætra höfunda til skólans, væri þess kostur. Frumkvöðull að uppbyggingu Byggðasafnsins í Skógum, með tilkomu Þórðar Tómassonar þar að, og munum er hafa varðveislu- gildi, segir sína sögu um framsýni og eldmóð. Jón var trúr og trygg- ur sínu fólki og fylgdist eftir megni með afdrifum nemenda sinna, annt um vegferð þeirra og líðan. Eftirminnilega mannglögg- ur, í senn minnisgóður á nöfn og gerðir, allt til hinsta dags. Framtak Jóns um útgáfu bók- arinnar um Menntasetrið í Skóg- um, kennara og nemendatal, sem telur nánast um 2.500 manns, ber vott um tryggð hans til skólans, staðar og samferðafólks. Ætíð er við hittumst barst talið austur í sveit. Þar voru gagn- kvæmar heimsóknir í sumarhús- in, eða á Rauðalækinn og Dal- brautina. Alls staðar þar var gott að koma á heimili þeirra Guðrún- ar, og ómælt endurgoldið með þakklæti, færði maður nýveiddan Veiðivatnafisk og eyfellskar kart- öflur. Þó að fæddur Skagfirðingur væri skipti Jón einnig máli allt sunnlenskt, eyfellskt og þjóðlegt, enda fróðleikurinn hafsjór og með tilvitnun í orðtakið var vel við hæfi að sjálft Atlantshafið blasti við vinnustaðnum. Jón gat lengi komið á óvart með þekkingu sinni. Á djasshátíðum í Skógum virtist hann þekkja glöggt til laga, texta og höfunda, og sögunnar þar á bak við. Áhugi á dægurlagamúsík lá honum einn- ig nærri, öðru vísi en manni áður hafði þekkst. Viku fyrir andlát kvöddumst við Jón með handa- bandi að venju í anda snyrti- mennskunnar sem hann bar. Auð- séð að kraftur og eldmóður var ekki sá sami og fyrr. Fjarstaddur útför Jóns flyt ég samúðarkveðjur til Guðrúnar, af- komenda og aðstandenda. Takk fyrir samfylgd og vináttu. Þorberg Ólafsson. Mér er tregt tungu að hræra þegar Jón R. Hjálmarsson er kvaddur. Í 64 ár hef ég átt hann að vini og velunnara svo að ekki gaf aðra betri. Vænn á velli, vilja- sterkur, einbeittur, ákveðinn, glaður og reifur gleymist hann engum. Löngu og farsælu lífi er lokið. Við áttum sameiginlegan ættföður, Hjálm Stefánsson á Keldulandi í Skagafirði. Á ára- bilinu 1954-1975 stjórnaði Jón stærsta heimili í Rangárþingi, Héraðsskólanum í Skógum, af al- úð, festu og fyrirhyggju. Þá var óskabarn mitt, Skógasafn að vaxa á legg. Skólastjórinn í Skógum var formaður safnstjórnar. Í krafti þess hafði Jón afgerandi áhrif á æviferil minn. Árið 1959 réðist ég starfsmaður safnsins með hlutastarf í Héraðsskólanum. Ég og fjölskylda mín fluttumst að Skógum. Ég minnist í þökk mik- ilsverðrar vináttu Jóns og Guð- rúnar konu hans við aldraða for- eldra mína í framandi umhverfi. Í samstarfi efndum við Jón til tímaritsins Goðasteins árið 1962 og héldum því úti í 25 ár, lögðum til eigið efni og birtum þar mikils- vert megn þjóðfræði og annarra þátta er hollvinir ritsins létu í té, efni sem að drjúgum hluta til hefði ella farið forgörðum. Einnig gáf- um við út Ljóð Rangæinga. Bæk- ur Jóns á sviði sagnfræði, þjóð- fræði og mannfræði skipta tugum. Sérstakt gildi hafa viðtalsbækur hans með samtölum við aldrað fólk, nú löngu horfið af heimi. Þjóðfræðibækur hans, þýddar á aðrar þjóðtungur, hafa farið vítt um lönd. Ein þeirra var í fyrra metsölubók suður á Ítalíu. Vinsemdin og hlýjan sem Jón og Guðrún veittu mér og mínum öll árin verður aldrei fullþökkuð. Segja má að þau hafi með nokkr- um hætti verið kjölfesta í lífi mínu. Að koma til þeirra var eins og að koma í góð foreldrahús og verður ekki lengra til jafnað. Vík varð milli vina er Jón og fjölskylda fluttu frá Skógum, fundum fækk- aði en vináttan hélst söm og jöfn. Bótin var sú að fjölskyldan hafði búið sér hér óskaathvarf hátt í hlíð, í háreistu sumarhúsi, nú um- luktu fögrum skógi fyrir eigin at- beina fjölskyldu. Tilvera hússins leiddi til þess að við áttum því láni að fagna að fá Jón og fjölskyldu í heimsókn af og til og þá var gam- an að minnast genginna stunda. Gott er að búa að góðum minn- ingum. Ég og fjölskylda mín send- um Guðrúnu og börnum hennar þakkar- og samúðarkveðjur. Þórður Tómasson. Æ er mér í minni mynd frá liðnum dögum er eitt sunnlenskt sumar sól um Skóga sendi. Þá ég heilu hjarta heita ósk til Alvalds sendi í heiðið háa, hugans vængjum borna; mér að mætti auðnast mína daga lifa mest sem mætur nafni, mannablóminn kvenna, bláum skrýddur „blaser“, brúnn sem sólar mögur, „húmors“ svara hraður, hress í fjöri og anda, gráum haddi hærður, hnakkakerrtur, kátur, kúnstner lífs og lista, líka pennans höldur … Fráleitt hefur fölnað, fjölgi lífs þó árum, mín sú ósk né minnkað, máðst né niður fallið! Heilla bið ég horfnum, heiðursstólinn sat hann, réttum megin mun hann minna bæna allra! Jón B. Guðlaugsson. Þótt sitthvað bæri á milli okkar Jóns Hjálmarssonar á ytra borði, áttum við ýmislegt sameiginlegt. Nefni ég þar smámuni einsog það að við áttum sama afmælisdag 28. mars og langlífið sem varð okkar hlutskipti. En meira mátti sín langtíma- minni okkar um tilveru íslenskrar þjóðar og hvað úr henni kann að verða þegar fram í sækir. – En svo langlífur sem Jón var og mikil- virkur til hinstu stundar, leyfi ég mér þó að kveðja vin minn sem hann var nokkuð á þriðja manns- aldur með yfirfærðum orðum Johns Fuller prófessors og skálds: Í aftansælu þú flýrð ei þitt fall, til forgarða dauðans þig rekur skjótt. Þér ymur í fjarska klukkunnar kall og kvöldið veit dóm sinn að verða nótt. Ingvar Gíslason. Það var í byrjun október árið 1960 að ég lagði af stað í fyrsta sinn til langdvalar fjarri bernsku- heimili mínu, heimalningur austan úr Landbroti. Eftir fárra daga dvöl hjá frændfólki í Mýrdal lá leiðin út undir Eyjafjöll til að setj- ast í Héraðsskólann í Skógum. Þangað kom ég síðla dags og kom mér fyrir í heimavist þar sem mér var ætluð vetrardvöl, var þar einn því að flestir aðrir nemendur komu ekki í skólann fyrr en tveim- ur dögum síðar. Næsta morgun fór ég snemma á stjá til að kynna mér aðstæður. Þennan haustdag var fagurt um að litast í Skógum, í lognbjartri sólkyrrð morgunsins. Ég var á rölti fyrir framan skól- ann þegar birtist maður, fremur grannvaxinn, vel farinn í andliti, dökk- og hrokkinhærður, kvikur á fæti og hafði hratt á hæli. Hann heilsaði mér hlýlega og bauð mig velkominn, innti eftir ætt og upp- runa og lagði mér nokkrar lífs- reglur af festu og vinsemd. Þarna hitti ég Jón Rafnar Hjálmarsson í fyrsta sinn. Í hönd fóru þrír merkilegir vetur við nám undir forystu og í umsjá Jóns R. og þess einvalaliðs kennara sem hann stýrði. Ekkert tímabil í lífi mínu er mér jafneftirminnilegt og veturnir 1960-1963 og kemur þar margt til. Jóni og félögum hans var afar ljós sú ábyrgð sem þeir báru og þeir öxluðu hana af mikilli alvöru, agi þótti stundum strangur og áminningu skólastjóra vildi eng- inn þurfa að hlíta. En umhyggja og velvild í garð nemenda og löng- un og vilji til að koma þeim til þroska blasti líka við. Það var ekki að ástæðulausu að Héraðsskólinn Skógum hafði á sér hið besta orð á landsvísu og umsóknir um skóla- vist voru á hverju hausti miklu fleiri en unnt var að verða við. Jón R. Hjálmarsson var skóla- stjóri Héraðsskólans í Skógum (og Gagnfræðaskólans á Selfossi í tvö ár) til 1975. Þá breytti hann til og gerðist fræðslustjóri Suðurlandsumdæmis en því starfi gegndi hann til 1990, var því virt- ur skólamaður alla sína opinberu starfsævi. En starfsgleði Jóns og starfsorka var miklu meiri en svo að það nægði honum. Hann var fræðari af lífi og sál til æviloka og afköst hans voru ótrúleg, í út- varpi, sjónvarpi, blöðum og tíma- ritum og bókum. Allt það var með sama hætti, forvitnilegt, aðgengi- legt og áheyrilegt/læsilegt. Hann hafði til að bera snilli sem birtist, hvort sem hann talaði eða skrifaði, í því að manni fannst að orðin væru alltaf hæfilega mörg og al- veg rétt valin til að koma til skila því sem hann vildi segja, á ljósan og skilmerkilegan hátt. Ég hef verið svo lánsamur á síðari árum að eiga alloft félag við Jón R. Hjálmarsson og hans góðu konu, Guðrúnu Hjörleifsdóttur. Jón leit gjarnan til mín á vinnu- stað og líka kom ég stundum til þeirra á heimili þeirra við Dal- braut og naut gestrisni þeirra og glaðværðar. Ógleymanleg er ferð okkar með eldri borgara í Reykjavík inn á Fjallabaksveg syðri fyrir aðeins rúmu ári þar sem ég sat undir stýri en þau hjónin sátu við hlið mér og Jón fór á kostum sem far- arstjóri sem oft áður í fegurð öræfanna. Ég bið honum Guðs blessunar og votta Guðrúnu og afkomendum þeirra samúð mína. Meira: mbl.is/minningar Helgi Magnússon. Nú er komið að leiðarlokum. Sameiginlegu ferðalagi Jóns R. Hjálmarssonar og Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er endanlega lokið. Samstarf Jóns og FEB hefur varað í áratugi þar sem Jón hefur skipulagt og leitt margar ferðir á vegum félagsins í gegnum tíðina. Síðasta ferð Jóns sem fararstjóra á vegum félagsins var sumarið 2017, á einn uppáhaldsstað hans og margra annarra, í Friðlandið að Fjallabaki. Þar þekkti Jón hvern krók og kima og kunni sög- ur bæði fornar og nýjar. Ég sem framkvæmdastjóri hjá félaginu átti þess kost, var reyndar beðinn um af Jóni sjálfum, honum til halds og trausts, að fara í ferðir með honum enda maðurinn kom- inn nokkuð yfir nírætt þegar leiðir okkar lágu saman. Það var unun að hlýða á Jón í essinu sínu stand- andi á einhverri klettabrúninni í skyrtu og fráhnepptum jakka, frekar eins og hann væri á leið á fund í borginni en staddur í óbyggðum Íslands. Árið 2016 var Jón gerður að heiðursfélaga í FEB – Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Við það tækifæri var þetta sagt m.a.: „Kom að stjórn félagsins, sat í ferðanefnd og leiðsögumaður í fjölda ferða á vegum félagsins og er enn að.“ En nú hefur Jón lagt af stað í sitt síðasta ferðalag. Hvert það leiðir veit ég ekki, en eins og ég kynntist Jóni R. Hjámarssyni með bros á vör og glettnisglampa í augum þá má það vera eitthvað út í bláinn. Fyrir hönd stjórnar, starfsfólks og ferðafélaga í FEB – Félagi eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni í gegnum tíðina sendi ég Guðrúnu Hjörleifsdóttur, eigin- konu Jóns, og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Gísli Jafetsson, fram- kvæmdastjóri FEB. Þegar Bítlarnir voru um það bil að sigra heiminn um miðjan sjö- unda áratuginn lentu þeir óvænt í fyrirstöðu í héraðsskólanum á Skógum. Fyrirstaðan var Jón R. Hjálmarsson skólastjóri. Hann hafði síður en svo á móti tónlist en undraði sig á þessum hávaða í söng og tónlist um ástina og í ást- arjátningum. Hávaði ætti væntan- lega að hafa einhverja merkingu og tilgang. Hann skoraði á helstu boðbera Bítlanna, að mæta sér með grammófón í sal skólans. Það varð úr. Þeir spiluðu lög Bítlanna „All you need is love“ og „Love me do“. Jón spilaði Árstíðirnar eftir Vivaldi og skýrði með hvaða hætti tónlistin lýsti árstíðunum og átök- um í náttúrunni. Tilheyrandi há- vaði gaf til kynna grimmd vetr- arins og svo ekki sé talað um vorleysingarnar. Þá var flutning- ur Finlandiu eftir Sibelius ekki síður hávær við túlkun á ógn og spennu í stríði Finna við Rússa. Það var eins og fallbyssurnar væru komnar inn á gólf í salnum á Skógum. Bítlarnir voru fáfengi- legir þetta kvöld. Jón var hugsjónarmaður á sviði mennta og menningar. Hann lagði líf og sál í skólastarfið og undir hans stjórn og með þrotlausri vinnu urðu Skógar að mennta- og menningarsetri héraðsins. Það var honum metnaðarmál að und- irbúa nemendur fyrir lífið svo all- ar dyr stæðu þeim opnar. Í skól- anum var haldið uppi öflugu menningarstarfi og á hverjum vetri voru haldnar skemmtanir í skólanum með leiklist og söng og íþróttamót. Eftir veturinn voru allir nemendur búnir að fá að spreyta sig á öllum þessum svið- um. Menningarstarf í héraðinu fékk mikla liðveislu með Jóni. Hann lagði mörgu lið og var í forystu. Við byggingu Byggðasafnsins á Skógum munaði án efa mest um þátttöku og stuðning hans alla tíð. Hann stofnaði og stóð fyrir útgáfu héraðsritsins Goðasteins um ára- tuga skeið og var í fararbroddi þeirra sem varðveittu sögu og menningu héraðsins. Jón tók ábyrgð sína sem skóla- stjóri alvarlega. Hann hafði orð á því að hann hefði í skólastjóratíð sinni oft verið áhyggjufullur um heilsu, heilbrigði og líf 130 nem- enda, sem voru í heimavist allan veturinn. Að rísa undir þeirri ábyrgð sem foreldrar og forráða- menn nemenda reiddu sig á. Hann var þakklátur fyrir það að koma á sínum langa ferli öllum nemend- um heilum heim. Það var festa í öllu skólastarfinu. Hann hafði á orði að nemendur ættu að vera prúð en frjálsleg í fasi en einhvers staðar væru þó mörk. Fyrir kom að áminna þurfti fyrir brot á skólareglum. Það vildi enginn fá athugasemd eins og „og þú frá þessu heimili“, þegar hún var sett fram með tilheyrandi tjáningu um undrun og vonbrigði. Jón þekkti alla nemendur sína frá Skóga- skóla og fylgdist svo vel með þeim að hann gat til síðasta dags rakið ætt, uppruna og lífshlaup hvers og eins. Síðast heimsóttum við Þóra þau Jón og Guðrúnu á 64 ára brúðkaupsafmæli þeirra í haust. Fundur við þau var eins og venju- lega gleðilegur og uppbyggilegur. Jón áritaði og gaf okkur þá nýút- komna bók sína. Jón hefur verið mér leiðbeinandi og fyrirmynd. Ég er þakklátur fyrir stuðning hans og vináttu. Guðrúnu, börnum og fjölskyld- um þeirra vottum við samúð. Jón HB Snorrason. Jón Rafnar Hjálmarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.