Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 29

Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Kraftur í KR kl.10:30- 11:15, rútan fer frá Vesturgötu kl.10:10 og Aflagranda kl.10:20 - Félagsvist kl.13:00 - Útskurður kl.13:00 - Kapitólurnar kl.13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12:30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Bingó kl. 13.00. Myndlist kl. 12.30. Vatns- leikfimi kl. 14.30. Spjallhópur Boðans kl. 15.00. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10:30. Leikfimi kl. 12:50-13:30. Samprjón kl. 13:30-14:30. Bútasaumshópur kl. 13:00-16:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.10. Opin handverk- stofa kl.13.00. Boccia kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi 9-10, Opin handverkstofa 9-12, Bókabíllinn á svæðinu 13:10-13:30, Handaband - skapandi vinnustofa með leiðbeinendum 13-15:30, Söngstund við píanóið 13:30-14:15, Frjáls spilamennska 13-16:30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411-9450. Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:30 /8:15 /15:00. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9:30. Liðstyrkur . Sjál kl. 10:15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Saumanámskeið í Jónshúsi kl: 14:10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl. 13:00 – 16:00 allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl: 16:15 Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Leikfimi maríu kl. 10:00-10:45. Leikfimi Helgu Ben 11:00-11:30.. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.00 Boccia, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta. Gjábakki kl. 11.30 til 14.00 verðður Logy fataverslun með tískufatnað til sölu í anddyrinu hér í Gjábakka. Gullsmári Postulínshópur kl 9.00 Jóga kl 9.30 Handavinna/ Bridge kl 13.00 Jóga kl 17.00 Félagsvist kl 20.00 Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl 13- 14. Jóga kl. 14.15 – 15.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9, útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl. 10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls spi- lamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður Byrjum við Hringborðið kl. 08:50, frjáls tími í listas- miðju fyrir hádegi. Línudans fyrir byrjendur kl. 10:00. Myndlis- tarnámskeið kl. 12:30. Handavinnuhornið kl. 13:00, félagsvist hefst kl. 13:00. Kynning á nýjum leshóp kl. 14:00. Síðdegiskaffi. Allir velkom- nir. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga, gönguhópar kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju, inni í Egilshöll. Dans í Borgum kl. 11:00. Skartgripa- gerð kl. 13 í Borgum í dag og félagsvist kl. 13 í dag. Tréútksurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 og Kóræfing kl. 16:00 í Borgum í dag. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13.00 ( Ath. gler fellur niður fyrir hádegi.). Leir Skólabraut kl. 9.00. Billjard Selinu kl. 10.00. Kaffi og krossgátur í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum kl. 11.00. Handavinna Skólabraut kl. 13.00. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, Zumba Gold námskeið fyrir styttra komna/byrjen- dur kl. 9.45..ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leik- fimi kl. 11.30. Tanya leiðir alla hópanna. AÐ NÁ TÖKUM Á TÆKNINNI –tölvunámskeið dagana 21. og 28. nóv. 2018 – innritun feb@feb.is - s. 588-2111.Fimmtudaginn 22. nóvember bókmenntaklúbbur, kl. 14:00 - 15:45. Þá verður lesin og rædd bók Bjarna Harðarsonar "Í skugga drottins". fasteignir Elsku vinur minn hann Örn er látinn. Ég veit að hann er hvíldinni feginn og ég sé hann fyrir mér núna hlaupandi um og syngj- andi í leiðinni. Ég veit það líka að það var vel tekið á móti hon- um í Sumarlandinu því drengur var hann góður og snerti stað í hjarta allra sem honum kynnt- ust. Hann skilur eftir tómarúm sem verður seint fyllt og það verður aldrei eins að mæta í vinnuna. Hver annar mun segja okkur hvað við erum gullfal- legar og hvað við erum sætar og góðar! Örn er ég búin að þekkja alla mína ævi en kynntist honum ekki í raun fyrr en ég hóf aftur störf á Eini og Grenihlíð. Síðan eru liðin fimm ár og margt höf- um við gengið í gegnum, í blíðu og stríðu. Minningarnar hrann- ast upp og þær eru sko margar enda margir klukkutímarnir sem við eyddum saman, hvort sem var að nóttu eða degi. Hann var einstakur karakter og það sem einkenndi Örn var þessi óbilandi gleði og einlægni. Sama hvað gekk á, hvort sem var í veikindum eða meiðslum, hafði hann hlý orð, bros sem lýsti upp herbergið eða var tilbúinn í söng. Skap hafði hann þó líka og þrjósku sem var engu lík og maður lifandi hvað hann gat verið mikill prakkari. Besta dæmið um prakkara- skapinn hans var í þau nokkru skipti sem hann setti bruna- kerfið af stað. Það var ekkert grín því það þýddi svakalegan hávaða og allar hurðir skelltust með látum. Það var orðið þann- ig að um leið og kerfið fór af stað var spurt hvar Örn væri. Jú, hann var þó nokkuð oft sökudólgurinn og þegar hann var spurður af hverju hann Örn Arason ✝ Örn Arasonfæddist 16. mars 1955. Hann lést 25. október 2018. Útför Arnar fór fram 5. nóvember 2018. gerði þetta var svarið: „Guð sagði mér að gera það.“ Eða þegar hann bað mig að taka ol- sen olsen og ekki var brugðist við því strax, þá henti hann öllum spilun- um á gólfið og lét mig tína þau upp þangað til ég gafst upp og tók nokkur spil, sem hann vann að sjálf- sögðu með glott á vör. Söngelskur var hann líka og þrátt fyrir erfiðleika við að tjá sig gat hann sungið með öllum lögum. Bítlarnir voru ofarlega á lista og gömul popptónlist. Ég á svo margar minningar sem ég ætla að varðveita vel í hjarta mínu. Örn, eða Eagle eins og við djókuðum stundum saman með nafnið hans, hann var eins og örninn fljúgandi. Þrátt fyrir fjötra líkamans hætti hann ekki að fljúga. Hann hélt áfram að láta sig dreyma um uppáhaldsbílana sína eða mótorhjólin enda bíla- áhugamaður mikill. Hann hélt alltaf áfram að vilja fara út og skoða heiminn og hitta fólk sem hann gat tekið í höndina á og sagt því hversu gullfallegt það væri. Enda var það nokkrum sinnum sem við þurftum að hlaupa út og leita. Einu sinni man ég eftir því að Örn var kominn langleiðina að sund- lauginni á fullri ferð. Þá hefur honum liðið vel. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra þótt ég gæti það með allar þessar minningar en ég ætla að enda á orðunum sem við sögðum alltaf fyrir svefn- inn. Góða nótt, elsku besti vinur. Mér þykir vænt um þig! Ég veit að þú svarar á móti: Góða nótt elsku vina mín, mér þykir vænt um þig líka. Elsku Dísa, Svana, Freysi og aðrir ástvinir. Ég samhryggist ykkur innilega! Ég veit það og get lofað því að Örn Arason gleymist aldrei. Ástarkveðjur, Hulda. Ég ætlaði ekki að trúa því að þessi góði maður væri Karl Haraldsson ✝ Karl Haralds-son fæddist 26. febrúar 1946. Hann lést 19. október 2018. Útför hans fór fram 6. nóvember 2018. farinn. Ég hitti hann á fundum fyrir margt löngu. Hann var alltaf hress og ég vona að guð geymi hann. Ég sendi samúð- arkveðjur til ætt- ingja og vina. Konráð Stefán Konráðsson sendill. Í dag fylgjum við kærum frænda, Sig- urjóni Gunnarssyni, síðasta spölinn. Sonni eins og hann var ávallt kall- aður var eftirminnilegur maður. Lærði ungur matreiðslu og starf- aði við góðan orðstír á meðan hann hafði getu til, en Sonni greindist með Parkinson-sjúk- dóminn fyrir allmörgum árum, sem að lokum hafði sigur. Eftir að foreldrar og bræður Sonna fluttu á Álfaskeiðið varð mikill samgangur á milli þeirra og okk- ar fjölskyldu á Hverfisgötunni, enda bjuggu afi og amma okkar þar. Gunnar Halldór, faðir Sonna, og Haraldur, faðir okkar, voru bræður og bestu vinir. Alltaf var gott að koma á Álfaskeiðið og margt brallað þar og í hrauninu í kring. Sonni var höfðingi heim að sækja og ógleymanlegar voru veislurnar hjá Tobbu og honum á Arnarhrauninu í gamla daga, þar sem hann lék á als oddi og töfraði fram kræsingar með Demis Ro- ussos í græjunum. Sonni var áhugasamur um allt og alla, ávallt með svör á reiðum hönd- Sigurjón Gunnarsson ✝ Sigurjón Gunn-arsson fæddist 11. febrúar 1944. Hann lést 25. októ- ber 2018. Útför Sigurjóns fór fram 7. nóv- ember 2018. um, mikill smekk- maður á föt og bif- reiðar og átti nokkrar slíkar, yfir- leitt í kraftmeiri kantinum. Stundaði handknattleik með Haukum á yngri ár- um, þjálfaði yngri flokka félagsins, var öflugur formaður Handknattleiks- deildar Hauka 1978 og 1979 og varð meistaraflokkur karla Íslandsmeistarar utanhúss bæði árin, auk fleiri titla. Einnig var hann varaformaður hand- knattleiksdeildar og aðalstjórnar á níunda ártugnum. Golfíþróttina stundaði Sonni af kappi á meðan heilsan leyfði, var meðlimur í Golfklúbbnum Keili og einnig Golfklúbbi Sandgerðis, en hann var einnig formaður þess klúbbs um tíma en hann bjó um árabil í Sandgerði með Hrafnhildi þáver- andi sambýliskonu sinni. Sonni var hagmæltur og hafði gaman af að yrkja ljóð og skrifa greinar um hugðarefni sín, sum- ar hverjar í dagblöðin. Við systkinin á Hverfisgötunni þökkum ljúfa og ógleymanlega samfylgd og biðjum Guð að blessa minningu frænda okkar. Við sendum Svövu, Gunnari og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Sturla, Guðmundur (Gummi), Hildur og Ingimar. ✝ AðalheiðurHrefna Björns- dóttir, frá Skaga- strönd, fæddist í Austur-Húnavatns- sýslu 1. nóvember 1931. Hún lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Blönduósi 8. október 2018. Aðalheiður Hrefna var fædd á Skinnastöðum í Austur-Húnavatnssýslu, en ólst mest upp á Geirastöðum, sem var kot, hjáleiga, í Þingeyrarlandi, þar til hún flutti með foreldrum sínum til Skagastrandar, þar sem hún svo bjó alla tíð. Faðir henn- á saumastofu staðarins og sein- ast á elliheimilinu Sæborg. Hún fékk berkla og dvaldi á Vífilsstöðum frá 1952 um ein- hvern tíma og eftir það átti hún alla tíð miða í happdrætti SÍBS og þótti vænt um þau samtök. Hún var ein af þeim heppnu og kom aftur heim. Þann 13. júlí 1951 eignaðist hún soninn Björn Braga með Sig- mundi Jóhannssyni frá Skaga- strönd. Hún gekk í Kvennaskól- ann í Reykjavík veturinn 1957-1958 og giftist svo Gunnari Albertssyni frá Keldulandi á Skaga þann 30. maí 1959 en þau höfðu þá verið trúlofuð í tvö ár. Þeirra synir eru: Egill Bjarki, fæddur 16. september 1961, og Þráinn Bessi, fæddur 17. júlí 1969. Fyrir átti Gunnar soninn Svein Odd, fæddan 30. nóvember 1957. Aðalheiður Hrefna var jarð- sungin frá Hólaneskirkju 27. október 2018. ar, Björn Teitsson frá Kringlu, lést ár- ið 1945. Eftir það sá móðir hennar, Steinunn Jónsdóttir sem sem ættuð var frá Hnífsdal, ein um uppeldi hennar og miðsysturinnar, Margrétar Jón- fríðar, en elsta syst- irin Elínborg Teitný var flutt að heiman. Aðalheiður Hrefna byrjaði snemma að vinna og vann til dæmis lengi á símstöðinni á Skagaströnd og skrifstofu Kaup- félagsins á Skagaströnd meðan það var og hét. Seinna vann hún Móðir mín, Aðalheiður Hrefna Björnsdóttir frá Skagaströnd, lést 8. október og var jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skagaströnd 27. október síðastliðinn. Henni var ekkert gefið um Aðalheiðar- nafnið og var alltaf kölluð Hrefna. Mamma var hvunndagshetjan sem ekki vildi láta mikið fyrir sér fara og kannski ekki margir þekktu. Hógværð og lítillæti var hennar aðalsmerki, auk þess sem hún hafði sterka réttlætiskennd. Meðan ég var að alast upp vann hún ekki mikið úti heldur sinnti heimilinu og gerði það mjög vel. Hún smurði nesti fyrir mig að kvöldi fyrir næsta skóla- dag, svo var tilbúið eitthvað að borða fyrir skóla um morguninn. Hún smurði auðvitað líka fyrir aðra fjölskyldumeðlimi og gesti í morgunkaffi, miðdegis- og kvöld- kaffi. Svo bakaði hún oft og eldaði mat alla daga, fiskur í hádeginu og kjöt í kvöldmat. Þau pabbi voru með nokkrar kindur í mörg ár sem hún skírði allar með nafni. Fram að 12 ára aldri var ég mest í heimasaumuðum fötum sem mamma hafði búið til. Allt var notað og nýtt. Hún hugsaði vel um okkur bræður og ástúðin og umhyggjan skein í gegnum öll hennar verk þó hún tjáði ekki væntumþykju sína beint. Mamma átti ýmis áhugamál, eins og prjónaskap og blómarækt, en það er eitt áhugamál sem ekki fór hátt frekar en annað. Hún hafði mikið gaman af tónlist, alls kon- ar, hún hafði mjög gaman af gömlum blús, djassi og öllu þar í kring. Hún laumaði inn hjá mér áhuga á þessari tónlist og hverjir væru góðir. Það er eitt lag sem hún hélt mikið upp á, og það minnir mig alltaf á hana. Það er lagið, Summertime úr söngleikn- um Porgy and Bess, sungið af Ellu Fitzgerald og Louis Arms- trong. Sennilega rétt fyrir áttrætt byrjaði mamma að tapa minni sem svo kom í ljós að var sú slæma „pest“ Alzheimer, en hennar lán var að veikindin versnuðu hægt. Hún hefði orðið 87 ára núna 1. nóvember, hefði hún lifað. Seinasta árið sem hún lifði dvaldi hún á Heilbrigðis- stofnunni á Blönduósi og fór vel um hana þar hjá frábæru starfs- fólki. Ég heyrði að hún hefði haft gaman af að syngja þar og að hún hefði enn kunnað marga texta þrátt fyrir Alzheimerinn. Í fram- haldi af því frétti ég, orðinn 57 ára, að hún hefði verið í kvartett á Skagaströnd þegar hún var ung. Eins og með svo margt annað, hún talaði ekki um það og hældi sér aldrei af neinu. Hún sýndi sonum mínum tveim sömu góðvildina, þegar þeir voru í skólanum löbbuðu þeir oft til hennar, sem var stutt, í frí- mínútunum til að fá mjólk og brauð. Þegar hún sá þá koma labbandi eftir götunni byrjaði hún að græja fyrir þá samlokur eftir þeirra óskum. Í seinni tíð hugsaði ég oft heim af sjónum á laugardagsmorgnum og óskaði þess að vera á Odda- götu 5 í morgunkaffi, lágstemmd þægileg tónlist eða Rás 1 og hús- ið angaði af nýbakaðri Bestu- köku, sem mamma bakaði oft á laugardagsmorgnum. Þau pabbi byrjuðu að fá aðstoð við þrif þegar mamma var 69-70 ára og lengi vel tók mamma að- eins til og moppaði húsið áður en þrifakonan kom. Ég mun sakna hennar sárt. Takk fyrir allt, mamma mín. Egill Bjarki Gunnarsson. Aðalheiður Hrefna Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.