Morgunblaðið - 19.11.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.11.2018, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Sandra Mjöll Jónsdóttir, sem fagnar 30 ára afmæli sínu í dag,hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín og rann-sóknir. Heimssamtök kvenna í nýsköpun (GWIIN) völdu hana sem frumkvöðul ársins 2017 og hún fékk hvatningarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu í ár. Hún er lífeindafræðingur að mennt og lauk doktorsprófi í fyrra. Hún stofnaði Platome Líftækni ásamt Ólafi E. Sig- urjónssyni en er hætt störfum þar og er nýtekin við sem vöru- stjóri hjá íslenska lyfjafyrirtæk- inu Florealis. „Ég er ábyrg fyrir vöru- stefnu fyrirtækisins og því að koma nýjum vörum, lyfjum og lækningavörum á markað. Þetta er mjög fjölbreytt starf þar sem maður þarf að sinna skapandi hugmyndavinnu, vís- indum og markaðsmálum, öllu á sama degi. Florealis er ný- sköpunarfyrirtæki, með níu starfsmenn. Sjö starfa hér á landi og tveir í Svíþjóð en við höfum tvöfaldast á einu ári. Þetta er eina íslenska lyfjafyr- irtækið sem býður upp á við- urkennd jurtalyf sem eru skráð í sérlyfjaskrá eins og önnur lyf.“ Florealis setti á markað í ágúst lyfið Sefitude sem er eina lausa- sölulyfið gegn vægum svefnvandamálum og kvíða. „Það fékk gíf- urlegar miklar viðtökur og varð uppselt fyrstu vikuna. Við urðum að vera að fljót að fylla á hillurnar. Við hittum greinilega á gat á mark- aðnum þar sem fáar aðrar lausnir eru í boði. Það var kominn tími á vægt svefn- og kvíðalyf sem væri ekki ávanabindandi og ylli ekki sljóleika.“ Sandra hefur mikinn áhuga á nýsköpun og hefur flutt fyrirlestra um þau mál. Hún verður með fyrirlestur næstkomandi fimmtudag, 22. nóvember, í hátíðarsal Háskóla Íslands kl 12. „Svo reyni ég að slaka á þess á milli og finnst gaman að vera með fjölskyldunni, les bækur og spila á píanó.“ Eiginmaður Söndru er Þór Friðriksson, læknir og verkfræðingur og vinnur hjá Össuri, og dóttir þeirra er Birta 4 ára. Þau hjónin tóku sér foreldrafrí um helgina í tilefni afmælisins og eyddu kærkomnum tíma saman. Í dag heldur hún hins vegar upp á afmælið með fyr- irlestri um nýsköpun á vegum viðskiptahraðals sem heitir Snjallræði. Frumkvöðull Sandra verður með fyrirlestur bæði í dag og á fimmtudaginn um nýsköpun. Með brennandi áhuga á nýsköpun Sandra Mjöll Jónsdóttir er þrítug í dag H eiðar Bjarndal Jóns- son fæddist í Reykja- vík 19.11. 1948 en ólst upp í Neðri-Dal í Biskupstungum. Hann stundaði barnaskólanám í Biskupstungum og Héraðsskólann á Laugarvatni, lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1968, stundaði síðan nám við landbúnaðar- háskóla í Noregi 1968, lauk fyrri önn Lögregluskóla ríkisins 1975 og seinni önninni 1977 og hefur auk þess lokið ýmsum námskeiðum er lúta að löggæslustörfum. Heiðar stundaði landbúnaðarstörf á unglingsárum og með skóla, vann við brúarsmíði, stundaði almenna verkamannavinnu, stjórnaði síðan þungavinnuvélum hjá Þórisósi hf. og var við vörubifreiðaakstur hjá Vörðufelli hf um skeið. Heiðar hóf störf í lögreglunni í Ár- nessýslu vorið 1975. Hann var skip- aður lögregluvarðstjóri haustið 1990 og sinnti því starfi til 2013 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Heiðar var formaður Lögreglu- félags Suðurlands 1987-97, sat í varastjórn Landssambands lög- reglumanna 1992-96 og sat í aðal- stjórn frá sambandsins 1996-98 og í orlofsnefnd sambandsins í rúm 30 ár. Hann var sæmdur gullmerki Landssambandsins fyrir félagsstörf. Heiðar er spurður um áhugamál eftir að hann hætti störfum: „Við hjónin höfum alltaf verið dugleg að ferðast og ekki síst eftir að ég hætti að vinna. Við komum Heiðar Bjarndal Jónsson, fv. lögregluvarðstjóri – 70 ára Fjölskyldan Heiðar og Kolbrún með börnum, tengdabörnum og barnabörnum á suðrænum slóðum. Í húsbíl um Evrópu – frjáls eins og fuglinn Hjónin Heiðar og Kolbrún Þau eiga fjögur börn og hafa verið gift í 36 ár. Vopnafjörður Salka María Ingólfsdóttir fæddist 24. janúar 2018 á Landspítal- anum í Reykjavík. Hún vó 4.075 g og var 52 cm að lengd. Foreldrar Sölku Maríu eru Eyrún Guðbergsdóttir og Ingólfur Daði Jónsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.