Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 33

Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á k alkúninn Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur haft nóg að starfa að und- anförnu en sérð nú fram á að eiga tíma af- lögu fyrir sjálfan þig. Reyndu að finna þeirri tilfinningu heppilegan farveg svo að þú getir notið þín. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að leggja þitt af mörkum til þess að vináttan dafni. Hættu einhverjum einum hlut sem er skaðlegur heilsu þinni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér kann að finnast þú varnarlaus í hinum stóra heimi og þarft þá að leita skjóls hjá einhverjum sem veitt getur þér vörn. Ef þú sérð tækifæri til þess skaltu grípa það. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að finna þér eitthvert við- fangsefni sem auðgar frítíma þinn og býr þig betur undir átök dagsins. Grafðu aðeins dýpra og þá finnur þú styrkinn sem þú þarft til þess að skína. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú færð fréttir sem hrista upp í draum- órum þínum um hvernig hlutirnir ættu að vera eða munu verða. Sameiginleg fjármál koma til álita. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er til fyrirmyndar að geta við- urkennt mistök sín og lært af þeim. Leitaðu leiða til að auka þroska þinn og víðsýni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú hefur viljað breyta til í lífi þínu er þetta rétti dagurinn til að fikra sig inn á nýjar brautir. Fólk er glatt í sinni, hresst og fullt bjartsýni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Skemmtilegt síðdegi er í vænd- um með vinum og fjölskyldu. Segðu það sem þér finnst en kenndu ekki öðrum um líðan þína. Einbeittu þér að nánd og samskiptum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Maður er manns gaman segir máltækið og það á alltaf við. Ekki vegna þess að þú getir ekki rætt málin heldur vegna þess að þú ert ekki ræðinn í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú verður ekki undan því vikist að taka forystuna og koma ákveðnu verkefni í höfn. Dæmdu menn ekki of fljótt, sýndu held- ur umburðarlyndi og skilning. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það liggur í augum uppi að þú þarft að sleppa tökunum á ákveðnum hlutum í lífi þínu. Samskiptahæfni þín er mikil og því er lítil hætta á að þú troðir öðrum um tær. 19. feb. - 20. mars Fiskar Karllegir og kvenlegir eiginleikar hafa áhrif á framvinduna í dag. Nú verðurðu að gera upp við þig hver staðan er heima fyrir og hverju þú vilt bindast. Ég blaða oftar en ekki í ÁrbókÞingeyinga. Að þessu sinni dró ég út úr skápnum árbókina 1990, þar sem Guðrún N. Jakobs- dóttir á Víkingavatni skrifar um einn þessara kynlegu kvista, „Kunningja í Holti“. Þar segir að hann hafi átt marga ánægjustund heima hjá Guðbrandi í áfenginu þegar hann var í Reykjavík. Sungu þeir þá gjarna þessa vísu, sem Kunningi lærði í æsku: Ástin gerir ennþá mig ákaflega pína. Fæ ég ekki að faðma þig fallegasta Stína? Þar segir frá útför Hjartar Sig- urðssonar á Skinnastað, fátæks og umkomulítils vinnumanns. Þegar setja átti líkkistuna í gröfina reynd- ist hún of þröng, svo að kistan komst ekki niður og varð að víkka gröfina. Þá orti kaupakona á Skinnastað, sem Þórunn hét, syst- urdóttir Ólafar á Hlöðum: Sólarlöndin brosa björt bak við dauðahöfin. Þar mun ekki þröngt um Hjört þó að mjó sé gröfin. Bóndinn á Tindum gerði samning við Kölska um að hann fengi umráð yfir sál bóndans ef hann gæti slegið túnið á einni nóttu. Kölski varaðist ekki að Gnípatóftin var þaulvígð svo að hann náði ekki af henni gras- inu og kvað stöku þessa: Grýtt er hér á Gníputótt, glymur ljár í steinum. Þó túnið sé á Tindum mjótt þá tefur það fyrir einum. Kristbjörn Benjamínsson Kópa- skeri, f. 1905, segir frá því að í sínu ungdæmi hafi fjallagrös verið not- uð í fleira en mjólk, – þau voru stundum sett í blóðið til að spara rúgmjölið í blóðmörinn og amma hans setti þau saman við mjölið sem hún hafði í pottbrauðið. Fjallagrös- in voru holl og góð en menn gátu fengið leið á þeim: Æ, þú eilífi grasagrautur á Grenjaðarstað sem aldrei þrýtur. Leiðist mér að lepja þig, loks held ég þú drepir mig. Í Árbókinni 1963 segir Karl Kristjánsson frá skáldbóndanum í Kílakoti, Þórarni Sveinssyni. Á manndómsárum sínum stóð hann í strangri lífsbaráttu: Örðugan ég átti gang yfir hraun og klungur. Einatt lá mér fjall í fang frá því ég var ungur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stökur úr Árbók Þingeyinga „VILTU FÁ FRAMMISTÖÐUMATIÐ NÚNA EÐA EFTIR RÉTTARHÖLDIN?“ „VIÐ SKULUM VONA AÐ VIÐ ÞURFUM ALDREI AÐ NOTA ÞETTA!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vilja vera flugkappinn hennar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MJJJÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ.... BÚBOPPADÍBABÚPPADÚÚÚ KATTA- DJASS ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÞETTA VÆRI ERFIÐUR VÖLLUR! Hreyfing! Víkverji hefur að und-anförnu mætt reglulega á lík- amsræktarstöð, sem til skamms tíma hefði verið honum afar fjar- lægt. En nú eru breyttir tímar og áminning frá lækni kallaði á róttæk- ar aðgerðir. Skemmst er frá því að segja að sportið er ánetjandi og ljómandi skemmtilegt. Það er nota- leg tilfinning að þreytast, hitna og svitna og finna að hjartað örar slær. Að ganga kílómetra á brettinu á ögn skemmri tíma í dag en í gær er líka ágæt áskorun. Þetta er fínt vetrar- sport; með vorinu taka við fjall- göngur og ferðalög. x x x Fróðleikur! Um helgina gluggaðiVíkverji í Bændablaðið sem fylgdi Mogga á dögunum. Aðsendu greinarnar í blaðinu í vekja eftirtekt og eru góð tilbreyting frá öðru les- efni. Þarna leggja bændur og búalið orð í belg um til dæmis kolefnis- jöfnun, skólamál í dreifbýli, lífsham- ingjuna, orkupakkann og mjólkur- iðnað svo eitthvað sé nefnt: málefni sem eru ekki mikið rædd í öðrum blöðum. Allt eru þetta ágætlega rök- studdar greinar skrifaðar af lítt þekktu fólki sem er blessunarlega laust við þann félagslega réttlætis- boðskap sem er áberandi hjá svo- kölluðum álitsgjöfum sem áberandi eru í hefðbundnum fjölmiðlum. x x x Orðaleikir! Það er merkilegthvernig fínir titlar eru í dag not- aðir til að tjakka upp virðingu fyrir störfum og skapa möguleika á betra kaupi. Fínn titill getur fært fólk upp um launaflokka og þar með er til- ganginum náð. Einu sinni vann Vík- verji í fyrirtæki þar sem í starfslið- inu voru meðal annars símadama, húsvörður og ráðskona í mötuneyti. Teygðist úr vinudeginum fram á kvöld hitti maður stundum líka á skúringakonuna, sem í dag er víst kölluð ræstitæknir. En þá voru þau líka farin heim eftir langan vinnu- dag: konan á skiptiborðinu sem nú er fulltrúi í þjónustudeild, húsvörð- urinn eða með öðrum orðum um- sjónarmaður fasteigna og matar- tæknirinn sem einfaldast er að kalla eldhúskonu. vikverji@mbl.is Víkverji Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gerið beinar brautir hans. (Markúsarguðspjall 1.3)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.