Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018
Er hægt að hugsa sér lífiðán rafmagns, síma, nets,húsa, borga og allra nú-tímaþæginda?
Í Silfurlyklinum, framtíðarsögu
Sigrúnar Eldjárn, skrifar hún um
slíkt líf. Sigrún hefur skrifað og
myndskreytt tugi barnabóka.
Silfurlykillinn er spennusaga
sem fjallar um systkinin Sumarliða
og Sóldísi, pabba þeirra og stelp-
una Karítas. Sagan gerist í fram-
tíðinni þegar mannfólkið er búið að
eyðileggja heiminn og öll nútíma-
þægindi og tækni eru horfin. Jarð-
arbúar eru að fóta sig í nýju um-
hverfi, sumir á stöðugum flótta á
meðan aðrir reyna að byggja sér
skjól úr hlutum sem finnast á víða-
vangi.
Faðir Sumarliða og Sóldísar seg-
ir þeim frá
skrýtnum hlut-
um úr fortíðinni
eins og til dæm-
is farsíma sem
ekki er nothæf-
ur lengur en
Sóldís og Sum-
arliði trúa því
ekki að slíkt
hafi verið notað, ekki frekar en að
það hafi verið hægt að stinga snúr-
um í göt á vegg og þá hafi komið
ljós. Systkinin og pabbi þeirra hafa
komið sér ágætlega fyrir í gömlum
hjólalausum strætó en þeim stafar
ógn af nágrönnum sínum. Þau
ákveða að leggja af stað í ferðalag í
leit að Lovísu mömmu systkinanna
sem týndist þegar þau voru á
flótta. Til þess að finna Lovísu leita
þau að dal þar sem mamma þeirra
bjó forðum. Áður en að þau leggja
af stað í ferðina birtist stelpan
Karítas sem er á norðurleið í leit
að skjóli hjá góðu fólki og hún
slæst í för með fjölskyldunni.
Brestir, tilfinningar og kostir
mannsins í erfiðum aðstæðum
koma vel fram í sögunni þar sem
allt þarf að byggja frá grunni. Af
brestunum má nefna öfund, einelti,
lygi, valdabaráttu græðgi og
Barnabók
Silfurlykillinn bbbbn
Eftir Sigrúnu Eldjárn
Mál og menning, 2018.
Innb. 220 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Framtíðin í bak-
sýnisspeglinum
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Nú gefst þér tækifæri til að gleðja starfsfélaga, fjölskyldu
og vini með konunglegum kræsingum frá Veislulist
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega með
úrvals veitingum og persónulegri og góðri þjónustu.
Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum.
Þrjár mismunandi steikur ásamt meðlæti.
Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum.
Konunglegar kræsingar.
Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum.
Hátíðlegir smáréttir.
Jólasteikur Jólahlaðborð 1&2 Jólasmáréttir
Jólahlaðborð
Jólin 2018
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það var vel til fundið hjá Hönn-
unarmiðstöð að veita Basalt arki-
tektum Hönnunarverðlaun Íslands
2018. Hlýtur Basalt verðlaunin fyrir
arkitektúr í íslenskri baðmenningu
en stofan á heiðurinn af hönnun hót-
elsins The Retreat við Bláa Lónið,
og sjóbaðanna Geosea á Húsavík.
Nefndi dómefndin sérstaklega að
Basalt arkitektar hefðu lag á að
tvinna saman mannvirki og náttúru,
hvert smáatriði væri úthugsað og
rými hönnuð af virðingu og látleysi
þar sem „arkitektúrinn skapar
ramma fyrir einstaka upplifun gesta
í stórbrotinni náttúru landsins“.
Árangur Basalts er ekki síst
merkilegur í ljósi þess hve ung þessi
litla og metnaðarfulla arkitektastofa
er: „Við vorum þrjú sem stofnuðum
stofuna árið 2009 en áður var ég ein
af tíu eigendum annarrar stofu þar
sem öllum launþegum var sagt upp í
hruninu. Sú snögga breyting sem
varð á starfsumhverfi arkitekta við
hrunið var óvenjuleg, því yfirleitt
hefur fólk þó fengið að klára að
teikna þau verkefni sem þau voru að
vinna að þó að efnahagslifið færi nið-
ur í lægð – en í þetta skiptið var
penninn hreinlega stoppaður í miðu
lofti,“ segir Sigríður Sigþórsdóttir
sem í dag á og rekur Basalt með
Marcosi Zotes og Hrólfi Karli Cela.
Marcos og Hrólfur gerðust meðeig-
endur árið 2014 en Hrólfur minnist
þess hvernig hann stóð frammi fyrir
mjög erfiðum vinnumarkaði fyrir
áratug síðan: „Hrunið kom þegar ég
átti eitt ár eftir af arkitektanáminu,
og sá ég mér þann kost vænstan þeg-
ar ég kom aftur heim úr námi að bíða
átekta, bæta við mig kennslugráðu
og leggja stund á nám í siðfræði. Var
ég orðinn æði vel menntaður þegar
atvinnuhorfurnar fóru að skána,“
segir hann glettinn. „Það var ekki
einu sinni valkostur að reyna að
finna vinnu annars staðar, því um
allan heim var efnahagsástandið það
sama og lítið skárra framboðið af at-
vinnutækifærum í Evrópu.“
En smám saman rétti efnahags-
lífið úr kútnum og steypuhrærivél-
arnar fóru aftur í gang. Marcos segir
samt allt annan takt í byggingaverk-
efnum eftir hrun og arkitektar fái
betri tíma til að vinna að hönnuninni:
„Stéttin er á einu máli um það að það
hafi verið ákveðinn léttir að losna við
þau miklu læti sem höfðu verið í
byggingariðnaði og að fá betra ráð-
rúm til að sinna hönnun og undir-
búningi. Samhliða þessu þétti ís-
lenska hönnunarsamfélagið
raðirnar, Hönnunarmiðstöð verður
til og stjórnvöld leggja aukinn kraft í
að hlúa að íslenskri hönnun.“
Virðist þetta vera að skila sér í vel
heppnuðum byggingum, og var
kannski ekki seinna vænna, eins og
Sigríður bendir á: „Á sínum tíma
fengum við til okkar góðan gest frá
Slóveníu, en þar er mikil virðing bor-
in fyrir byggingarlist og mér vitandi
eina landið þar sem mynd af arkitekt
prýðir peningaseðil. En Slóvenar
eru líka kurteisir, og þegar þessi sér-
fræðingur staldraði við á Íslandi og
virti fyrir sér gæði þeirra bygginga
sem þá var verið að reisa, komst
hann þannig að orði að það virtist
eins og hér ætluðu menn ekki að
stoppa lengi.“
Byggingarnar hæfi
íslenskum aðstæðum
Talið berst yfir í gæði og sér-
kenni íslenskrar byggingarlistar.
Undanfarin ár hafa ný íslensk
mannvirki vakið verðskuldaða at-
hygli erlendis og hefur t.d. víða ver-
ið fjallað um hve vel tókst til við
hönnun nýja hótelsins við Bláa Lón-
ið. Sumum finnst hægt að greina
ákveðinn stíl – einhvers konar ís-
lenskan tón – í sköpunarverkum ís-
lenskra arkitekta á meðan aðrir
vilja meina að byggingarlist um all-
an heim sé að verða einsleitari og
þróunin á Íslandi aðeins lítill angi af
alþjóðlegri formfræði sem fer eins
og eldur um sinu um arkitekta-
samfélagið.
Sigríður segir íslenska arkitekta-
samfélagið óvenjulegt fyrir þær sak-
ir hve víða um heim fólkið í stéttinni
hefur menntað sig. Erfitt hafi verið
Hafa ráðrúm til að
sinna hönnuninni
Sigríður, Hrólfur og Marcos hjá Basalti segja það létti að
búa ekki lengur við þann asa sem ríkti árin fram að hruni
Útsýni Geosea sjóböðin í jaðri Húsavíkur falla inn í umhverfið á skemmtilegan hátt. Orka Eldfjallamiðstöðin hlaut verðlaun Hönnunarmiðstöðvar fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glóandi Marcos, Sigríður og Hrólfur kampakát á verðlaunahátíðinni í byrj-
un mánaðarins. Arkitektastofan Basalt var sett á laggirnar árið 2009.