Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 37

Morgunblaðið - 19.11.2018, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum ICQC 2018-20 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Trúlega er bókin Að búa til ofurlítinn skemmtigarð eftir Einar E. Sæ- mundsen landslagsarkitekt fyrsta og eina yfirlitsverkið um sögu og þróun íslenskrar garðhönnunar eða lands- lagsarkitektúrs. Og þótt skemmti- garðar séu ekki ýkja margir á Ís- landi miðað við annars staðar í Evrópu er bókin heilmikill doð- rantur, hátt í 400 ríkulega mynd- skreyttar blaðsíður með ítarlegri heimildaskrá. Undirtitill bókarinnar er Íslensk garðsaga – landslags- arkitektúr til gagns og prýði og er hún gefin út af Hinu íslenska bóka- menntafélagi. Einar var í hlutastarfi sem dósent við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í um áratug upp úr alda- mótum. Hann var bæði einn stofnenda Fé- lags íslenskra landslags- arkitekta, FÍLA, árið 1978 og teiknistof- unnar Landmót- unar þar sem hann starfaði í aldarfjórðung og um skeið garðyrkjustjóri hjá Kópa- vogsbæ. „Hugmyndin að bókinni kviknaði í lok níunda áratugar lið- innar aldar þegar landslags- arkitektar í nágrannalöndunum voru að gefa út bækur um sögu garða og þvíumlíkt. Mig langaði að gefa út svipaða bók, en um nærumhverfið,“ segir Einar. Frá landnámi til 1980 Svo leið tíminn. Í LBH hafði verið notast við kennsluefni sem hann og kollegar hans höfðu safnað saman héðan og þaðan í áranna rás og búið til hefti, sem þeir notuðu í kennsl- unni. „Kennsluheftið var í stöðugri þróun og margsinnis endurútgefið. Árið 2014 sótti ég um og fékk styrk til að vinna handrit að bók sem byggðist á þessu hefti, gerði síðan útgáfusamning og hófst handa við að semja verk um sögu og þróun ís- lenskrar garðhönnunar eða lands- lagshönnunar frá landnámi til ársins 1980. Bókin byggist því að hluta á gömlum grunni og ýmsu efni sem lá fyrir.“ Einar leiðir lesendur í gegnum fjölda þekktra og lítt þekktra skemmtigarða, segir sögu þeirra hvers fyrir sig, setur umhverfis- mótun í samhengi við rætur íslenskr- ar menningar og þróun lýðfræði á Ís- landi og lýsir um leið áhrifum alþjóðlegra strauma og stefna. „Þótt bókin sé á fræðilegum nót- um með vísan í bæði ósýnilega og sýnilega garða sagna og annála er hún ætluð almenningi, en ekki bara einhverjum „sértrúarsöfnuði“. Ég nálgast viðfangsefnið sem landslags- arkitekt með áherslu á skipulag og samfélagsgildi garðanna, sem eru hvort tveggja í senn afþreyingar- og skemmtigarðar, eða lystigarðar eins og þeir eru líka kallaðir. Athvarf fyr- ir almenning frá lífsins önn og amstri. Kennarareynslan kom mér til góða því ég hef tamið mér að segja hlutina á skýran hátt. Efnistökin eru öðruvísi en í hefðbundnum garða- bókum þar sem tré og blóm eru mest til umfjöllunar. “ Ýmsir kimar þjóðlífsins Einar bendir á að í seinni tíð hafi sagnfræðingar í auknum mæli fjallað um ákveðna og afmarkaða menning- arþætti eins og leiklistarsögu eða sögu íslensks landbúnaðar svo dæmi séu tekin. „Áður fyrr beindu þeir sjónum aðallega að stjórnmálum og stjórnsýslu, en með aukinni umfjöll- un um ýmsa kima þjóðfélagsins, sem – rétt eins og skemmtigarðarnir – skapa menningarumhverfi okkar, hefur Íslandssagan smám saman orðið fyllri.“ Spurður hvort Íslendingar hafi verið eftirbátar nágranna sinna á Norðurlöndum hvað skemmtigarða áhrærir segir hann garðsöguna vissulega stutta. „Við byrjuðum eig- inlega ekki að gróðursetja tré fyrr en undir aldamótin 1900. Upp úr 1800 voru þó dæmi um nytjagarða þar sem ræktaðar voru kartöflur og kál. Í bókinni segi ég frá bóndanum á Skriðu í Hörgárdal, sem gerði sér til dundurs að gróðursetja reyni- plöntur, sem hann ræktaði upp og var mjög hreykinn af. Jónasi Hall- grímssyni, sveitunga hans, þótti mikið til koma og gat um þessi undur og stórmerki í dagbók sinni.“ Tveir frumkvöðlar og viðauki Í bókinni fjallar Einar sérstaklega um feril tveggja frumkvöðla í stétt landslagsarkitekta, þeirra Jóns H. Björnssonar, jafnan kenndur við Alaska, og Reynis Vilhjálmssonar. „Efalítið mun mörgum þykja fengur í viðauka bókarinnar, greininni Laukagarður, sem Guðrún P. Helga- dóttir, fyrrverandi skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík, skrifaði 1981 um ræktun nytjajurta og nýt- ingu grasa í lækningaskyni fyrr á öldum. Guðrún var bókmenntafræð- ingur að mennt og safnaði heim- ildum úr miðaldabókmenntum.“ Einar upplýsir að bókartitillinn vísi til umræðu á Alþingi árið 1893 þegar rætt var nefndarálit um ráð- stöfun fjár frá alþingishússsjóði til að prýða svæðið kringum þinghúsið. Niðurstaða nefndarinnar hafi verið „að búa til ofurlítinn skemmtigarð“ sunnan við þinghúsið þar sem þing- menn gætu setið og gengið sér til skemmtunar. „Alþingi Íslendinga breyttist þennan eina dag í alls- herjar fræðslufund um garðyrkju og gerð garða,“ skrifar höfundurinn í formála. Fyrsta útilistaverkið sett upp „Alþingisgarðurinn er fyrsti garð- urinn sem var hannaður áður en framkvæmdir við hann hófust. Hins vegar er Austurvöllur fyrsti almenn- ingsgarðurinn í Reykjavík. Hann á rætur að rekja til þess að árið 1874 fékk Reykjavík styttu af mynd- höggvaranum Bertel Thorvaldsen að gjöf frá Kaupmannahafnarborg í til- efni 1000 ára afmælis Íslands- byggðar. Þá var það tekið til bragðs að dubba upp sneið af Austurvelli til að skapa sómasamlega umgjörð fyrir listaverkið, sem sett var upp ári síð- ar. Garðurinn var svo girtur af og framan af bara opinn á sunnudögum. Löngu síðar var þetta fyrsta úti- listaverk borgarinnar flutt í Hljóm- skálagarðinn þar sem það stendur enn,“ segir Einar. Þótt hann hafi árum saman sank- að að sér miklu efni um allt mögulegt sem lýtur að görðum segir hann hóp- vinnuna með ýmsum sérfræðingum við að koma öllu heim og saman í lok- in hafa verið drýgri en hann reiknaði með. „Hún er enda býsna digur heimildaskráin,“ segir hann og bætir við að bókin komi út af tilviljun en ekki af tilefni 40 ára afmælis Félags íslenskra landslagsarkitekta. „Skemmtileg tilviljun,“ segir hann og kveðst vonast til að framtíð- arfélagar muni í fyllingu tímans skrifa garðsöguna frá 1980. Morgunblaðið/Hari Landslagsarkitekt Einar í Alþingisgarðinum, fyrsta garðinum á Íslandi, sem hannaður var áður en framkvæmdir hófust. Hugmyndin var að búa til „ofurlítinn skemmtigarð“ þar sem hægt væri að sitja eða ganga sér til skemmtunar. Athvarf frá dagsins önn og amstri  Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt sendi nýverið frá sér bókina Að búa til ofurlítinn skemmtigarð  Yfirlitsverk um sögu og þróun íslenskrar garðhönnunar eða landslagsarkitektúrs Bandaríska leikkonan og fyrir- sætan Paz de la Huerta hefur höfð- að mál gegn framleiðandanum fyrrverandi, Harvey Weinstein, og sakað hann um að hafa nauðgað henni tvisvar í New York árið 2010 og þess á milli áreitt hana kynferð- islega. Málið höfðaði Huerta í Los Angeles í síðustu viku. Fyrir ári sagðist lögreglan í New York vera að rannsaka ásakanir Huerta á hendur Weinstein og hefur ekki enn ákært Weinstein fyrir þessar sakir. Hins vegar hefur hann verið ákærður fyrir að nauðga annarri konu. Um ári eftir að nauðganirnar eiga að hafa átt sér stað var Huerta sagt upp störfum hjá sjónvarpsstöð- inni HBO þar sem hún fór með hlut- verk í þáttunum Boardwalk Emp- ire. Í málshöfðuninni segir að líklega hafi Weinstein komið að uppsögninni og vísað í ljósmynd sem tekin var af honum og leik- stjóranum Martin Scorsese, einum framleiðenda þáttanna, fáeinum vikum áður en Huerta var sagt upp. Lögsækir Huerta í einum þátta Board- walk Empire. Henni var óvænt sagt upp störfum af framleiðandanum HBO og telur að Weinstein beri ábyrgð á því. Sakar Weinstein um tvær nauðganir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.