Morgunblaðið - 27.12.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018
Óskum viðskiptavinum okkar og
landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Starfsmenn Jöfurs.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vonir standa til þess hjá forsvars-
mönnum Flugfélagsins Ernis að
taka inn aðra
Dornier 328-100-
flugvél snemma
næsta sumar.
Félagið fékk í
rekstur sinn vél
þessarar gerðar
nú í sumar sem
á aðventunni fór
í fyrstu ferð-
irnar; það er
áætlunarflug til
Húsavíkur,
Hafnar og Vestmannaeyja. Byrjar
svo í Bíldudalsflugi strax á nýju
ári. Flugvélin sem er árgerð 1998
hefur reynst í alla staði vel. Hún
kemst fljótt í flughæð, notar stutta
braut og er hraðfleyg; aðeins 37
mínútur til Húsavíkur og korter til
Eyja.
Breyta þarf flotanum
Í dag er Ernir með fjórar
skrúfuþotur af gerðinni Jet
Stream í útgerð sinni, en Hörður
Guðmundsson, forstjóri Ernis, seg-
ir að nú þurfi að stokka spilin.
Óhentugt sé til dæmis vegna þjálf-
unar áhafna, skoðana, viðhalds og
annars tilfallandi að vera með að-
eins eina vél af ákveðinni tegund í
útgerð. Meira þurfi til.
„Tvær vélar af sömu gerð bakka
hvor aðra upp, til dæmis þegar
önnur þarf í stórskoðun sem tekur
kannski 4-6 mánuði. Við höfum
verið í sambandi við flugrekanda
erlendis sem getur látið okkur í té
aðra Dornier-vél. Það er góðar lík-
ur á að við tökum hana, enda bjóð-
ast góð kjör. Hugsanlega myndum
við þá fækka Jet Stream-
vélunum,“ segir Hörður.
Sinnum ólíkum verkefnum
Vélar af gerðinni Dornier 328-
100 taka 32 farþega og Jet Stream
er átján manna. Þessar ólíku
stærðir segir Hörður henta vel
fyrir þau verkefni sem Ernir hefur
með höndum, en auk fyrrgreindra
áfangastaða flýgur félagið norður á
Gjögur á Ströndum einu sinni til
tvisvar í viku. Til Bíldudals er flog-
ið frá Reykjavík fimm daga í viku
og allt að daglega til Húsavíkur og
Eyja, stundum tvær ferðir á dag.
„Verkefnin sem við sinnum eru
ólík og því væri gott að hafa vélar
af að minnsta kosti tveimur stærð-
um,“ segir Hörður. „Auk áætl-
unarflugsins, þar sem við erum að
flytja um 50 þúsund farþega á ári,
hafa verið talsverð umsvif hjá okk-
ur í leiguflugi með ferðafólki og
alltaf öðru hvoru förum við í
sjúkraflug þar sem fólk þarf með
hraði til nágrannalandanna í líf-
færaskipti. Allt eru þetta molar
sem þó líka eru brauð. Á þessu
byggist starfsemi Ernis og því að
við erum sveigjanleg. Aðstæður í
flugrekstri eru síbreytilegar og
þeim verður að mæta strax.“
Miklar álögur
Sem kunnugt er skilaði starfs-
hópur á vegum samgönguráðherra
nýlega tillögum þar sem gert er
ráð fyrir niðurgreiðslu á flugfar-
gjöldum fólks sem býr í 200-300
km akstursfjarlægð frá höfuð-
borgarsvæðinu. Myndi fólk sem á
þessum slóðum býr fá 50% niður-
greiðslu á flugfargjöldum til og frá
svæðinu, þó mest fjórar ferðir
fram og til baka. Nefndin gerir
einnig tillögu um breytingar á til
dæmis rekstri flugvalla landsins.
Hugmyndir þessar segir Hörður
Guðmundsson vera áhugaverðar,
þó að nákvæm útfærsla þeirra
liggi ekki fyrir. Ef vel takist verði
flugið með þessu orðið valkostur
fyrir fleiri og farþegum geti fjölg-
að. Niðurgreiðsla á öðrum sam-
göngukostum hér á landi sé líka
alsiða, svo sem strætisvagnaferðir
og ferjusiglingar. Rök séu því fyrir
að flugið megi styrkja af opinberu
fé, enda séu það almennings-
samgöngur.
„Þetta þarf allt að skoðast í
stóru samhengi. Álögur á flugið
eru miklar, svo sem yfirflugs- og
lendingargjöld, kolefnisgjöld, elds-
neytisskattar, farþegagjöld og svo
mætti áfram telja. Alls greiðir
Ernir á ári hverju í skatta og gjöld
til ríkisins, ríkisfyrirtækja og eftir-
litsstofnana um 350 milljónir króna
á ári,“ segir Hörður. Hann tiltekur
að í dag njóti flug Ernis á Bíldu-
dal, Gjögurs og til Hafnar stuðn-
ings frá ríkinu, sem geri þá þjón-
ustu mögulega.
Eyjaflug á mörkunum
En hvernig nýtir fólk sér annars
flugið? Er farþegafjöldinn sá að
flugið beri sig?
„Sitt hvorum megin við helg-
arnar er oft talsvert af farþegum.
Svo dettur þetta gjarnan niður í
miðri viku, sem breytir samt ekki
því að við fljúgum og höldum áætl-
un. Jafnvel þótt ferðin sé með tapi.
Vegna veðurs, svo sem þoku og
misvinda, er líka oft ófært til Eyja
og alveg á mörkum að flug þangað
sé raunhæft eða borgi sig,“ segir
Hörður Guðmundsson, forstjóri
Ernis, að síðustu.
Flogið til Eyja á 15 mínútum
Ný Dornier-vél Ernis reynist vel Öflug í innanlandsfluginu Hraðfleyg og þarf ekki langar
flugbrautir Nýrri vél hugsanlega bætt við fljótlega Aðstæður í flugrekstri eru síbreytilegar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áhöfn Frá vinstri talið: Þráinn Hafsteinsson flugstjóri, Unnur Guðný María Gunnarsdóttir flugfreyja og Andreas
Zingg, þjálfunarflugstjóri frá Austurríki, sem hefur verið Ernisfólki til halds og trausts að undanförnu.
Hörður
Guðmundsson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyjaflug Dornier-vélin TF ORI og svipsterkt Helgafellið í baksýn.
„Ég sé ekki fyrir mér að við
förum neitt að herja á nýja
áfangastaði eða fara í sam-
keppni við þá sem fyrir eru.
Við höldum okkar striki en
reynum frekar að skapa okkur
nýverkefni,“ segir Hörður sem
hefur lifað og hrærst í fluginu
síðan á unglingsárum. Erni
stofnaði hann með sínu fólkið
árið 1969 og þá var heima-
höfnin á Ísafirði. Var farþega-
og póstflug í sjávarplássin
vestra þá hryggurinn í starf-
seminni sem varði til 1995. Þá
var hún lögð í dvala en sett
aftur á fót 2003, þá með
heimahöfn í Reykjavík.
„Rætur Ernis eru á Vest-
fjörðum og í þjónustu út um
land. Um daginn var ég spurð-
ur að því hvort gefa ætti Dor-
niernum nafn sem verður auð-
vitað gert. Og með vísan til
upprunans er vel við hæfi að
velja vélinni fallegt vestfirsk
nafn, til dæmis staðarheiti, og
þar er af nægu að taka,“ segir
Hörður að síðustu.
Sköpum okk-
ur ný verk-
efni í fluginu
RÆTUR Á VESTFJÖRÐUM