Morgunblaðið - 27.12.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Óskum öllum
viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og
gæfuríks komandi árs.
Þökkum ánægjuleg
viðskipti á liðnu ári.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Ath! Lokað í dag 27. des.
Gleðilegt ár
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Starfsmenn ferðaþjónustufyrirtækj-
anna stóðu víða vaktina á aðfangadag,
jóladag og í gær, annan í jólum. Hjá
Kynnisferðum, líkt og mörgum rútu-
fyrirtækjanna, var þjónustan nokkuð
hefðbundin þrátt fyrir jól.
„Það hefur gengið afskaplega vel
þessi jólin og töluvert verið að gera,“
segir Jóhanna Hreiðarsdóttir, rekstr-
arstjóri þjónustu og ferða Kynnis-
ferða. Hún segir að fyrirtækið hafi
boðið upp á Gullna hringinn, Suður-
ströndina og aðrar vinsælar leiðir öll
jólin, en eitthvað af lengri ferðum hafi
staðið til boða á aðfangadag auk síð-
ustu ferðar dagsins í Gullna hringinn.
„Við reynum að stilla þetta þannig af
að fólkið okkar komist heim í mat með
fjölskyldum sínum,“ segir Jóhanna. Á
jóladag fór fyrirtækið með 500 manns
í norðurljósaferð en ekki var farið í
gær vegna slæmra veðurskilyrða.
Í Bláa lóninu var einnig opið eins og
undanfarin ár yfir jól og gátu ferða-
menn tekið jólabaðið í lóninu. „Það er
búið að vera vel bókað hjá okkur eins
og almennt yfir hátíðarnar síðustu
ár,“ segir Helga Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri þróunar-, sölu- og
markaðssviðs Bláa lónsins. „Við finn-
um fyrir afslöppuðu og góðu and-
rúmslofti. Fólk er í auknum mæli að
njóta daganna hjá okkur, bæði lónsins
og annarrar þjónustu hjá okkur.“
Jólaböð og norð-
urljós á jólunum
Ferðamenn sóttu þjónustu um jólin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferðir Ferðamenn skoðuðu ýmist
náttúruna eða slöppuðu af um jólin.
Um 400 hlaupagarpar tóku þátt í
árlegu Kirkjuhlaupi Trimmklúbbs
Seltjarnarness sem fram fór í
vesturhluta höfuðborgarsvæðisins í
gær. Hlaupið hófst við Seltjarnar-
neskirkju og þaðan fóru hlauparar
fjórtán kílómetra leið fram hjá
þrettán kirkjum.
„Við fórum að æfa þennan dag og
hlaupa til að safna kirkjum, reyna
að hlaupa framhjá fleiri og fleiri
kirkjum og þetta fór út í slíkar öfg-
ar að menn voru farnir að hlaupa
alltof langt,“ sagði Ólafur Örn
Svansson, formaður Trimmklúbbs-
ins, í samtali við mbl.is í gær.
„Það er frjáls aðferð og sumir
hafa þá hefð að þeir verði að snerta
hurðina á hverri einustu kirkju á
meðan aðrir láta sér nægja að
hlaupa þessa vegalengd og sjá
kirkjurnar,“ sagði Ólafur en engin
tímataka er í hlaupinu og hlaup-
arar stoppuðu við hverja kirkju.
Hlupu milli kirkna
Um 400 tóku
þátt í árlegu
Kirkjuhlaupi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólahlaup Hlaupið var framhjá
Fríkirkjunni við Reykjavíkurtjörn.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Þeir hefðu átt að vera búnir að þessu fyrir löngu,“
segir Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf.,
um ákvörðun Japana um að segja sig úr Alþjóðahval-
veiðiráðinu (IWC). Hann telur ekki að ákvörðunin
muni hafa áhrif á hvalveiðar hér á landi.
Kristján segir sjaldgæft að Japanir segi sig úr al-
þjóðasamtökum og að nánast hafi verið talið vonlaust
að þeir segðu sig úr hvalveiðiráðinu. En pólitíkin hef-
ur tekið yfir. Þeir ætla ekki að láta ráðið berja á sér
lengur,“ segir Kristján, en þrjá fjórðu atkvæða þarf
til þess að breyta samþykktum ráðsins. Japanir hafa
ítrekað reynt að fá samþykkt að þeir fái að hefja
hvalveiðar í atvinnuskyni, án árangurs.
„Þessar vísindaveiðar sem þeir hafa stundað í
Suður-Íshafi kosta svakalegar upphæðir. Þeir hafa
verið að þessu í þrjátíu ár en ætla núna að veiða
innan 200 mílnanna eins og Ísland gerir,“ segir
Kristján. Japan er eini markaðurinn fyrir íslenskt
hvalkjöt, utan innanlandsmarkaðar, en Kristján tel-
ur ekki líklegt að ákvörðun Japana hafi áhrif á út-
flutning íslensks hvalkjöts. „Það er frjáls verslun
með þetta og magnið sem þeir munu veiða tel ég
ekki nein ósköp.“
Spurður hvort þetta muni hafa einhver áhrif á
starfsemi Hvals hf. segir Kristján svo ekki vera.
Hefðu átt að fara fyrir löngu
Morgunblaðið/Ómar
Hvalveiðar Kristján Loftsson fagnar úrsögn Japans úr Alþjóðahval-
veiðiráðinu. Hann telur ólíklegt að hún hafi einhver áhrif hér á landi.
Japan úr Alþjóðahvalveiðiráðinu Ekki áhrif hér á landi