Morgunblaðið - 27.12.2018, Page 14

Morgunblaðið - 27.12.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð- inu barst tilkynning um sexleytið í gærmorgun um eld í sumarhúsi í Sléttuhlíð við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Húsið var alelda og að hruni komið er slökkvilið kom á vettvang. Að sögn vaktstjóra hjá slökkvi- liðinu er ekki vitað til þess að neinn hafi verið í húsinu, en það var fólk í nærliggjandi sumarhúsi sem tilkynnti um eldinn. Fyrsta tilkynning um eldinn var að það logaði í skúr á staðnum, en er á vettvang var komið reyndist eldurinn hins vegar í um 50 fer- metra sumarhúsi, sem nú er hrunið. Einn dælubíll vann að því í gær að slökkva í glæðunum og sagði vaktstjóri bárujárn liggja yfir brunarústunum sem hefði gert slökkviliðsmönnum erfiðara um vik að slökkva eldinn að fullu. Sumarbústaður brann við Kaldárselsveg Margrét Þóra Þórsdóttir Alexander Gunnar Kristjánsson Gott skíðafæri er í Hlíðarfjalli og margir nýttu tækifærið í gær, á öðr- um degi jóla, til að koma blóðinu á hreyfingu. Skíðasvæðið hefur verið opið frá því á fimmtudag og aðsókn með ágætum. „Það hefur verið alveg þokkaleg umferð hingað til og greinilegt að fólki þykir gott að hafa þennan val- kost þegar kemur að útiveru,“ sagði- Ásdís Sigurðardóttir, rekstrarstjóri hjá Hlíðarfjalli við Akureyri. Ásdís sagði færið hafa verið gott og að mikil og almenn gleði hefði verið ríkjandi í fjallinu. „Það eru allir ánægðir með að komast á skíði, fá tækifæri til að kom- ast út í hreina loftið og hreyfa sig á milli þess sem menn gera jólasteik- inni skil. Fólk er ánægt með að hér sé opið yfir jólin,“ sagði Ásdís. Stefnt er að því að lyftur í Hlíðarfjalli verði opnar alla daga sem eftir lifir árs, sem og á nýársdag, „og bara almennt fram á vor nema veður hamli,“ segir Ásdís. Síðustu daga hefur aðeins gengið á snjóinn en þó er enn tölu- vert í fjallinu. Enn bíða höfuðborgarbúar þess að skíðasvæði borgarinnar í Bláfjöllum og Skálafelli verði opnuð í fyrsta sinn í vetur. Magnús Árnason, framkvæmda- stjóri skíðasvæðanna, segir ljóst að ekki takist að opna milli jóla og nýárs en heldur í vonina um að það verði hægt snemma á nýju ári. „Það gæti snjóað í fjöll um næstu helgi. Svo þarf ekki nema þrjá góða daga til þess að það verði fært.“ Magnús segir vetrinum nú svipa til næstsíðasta vetrar þegar ekki tókst að opna fyrr en eftir áramót. Þegar loks tókst að opna hafi færið hins vegar verið gott og svæðin opin lengi. Morgunblaðið/Margrét Þóra Árennilegir Vinirnir Óli og Sölvi skemmtu sér konunglega í brekkunum í Hlíðarfjalli í gær. Jólastemning í Hlíðarfjalli  Opið milli jóla og nýárs  Bláfjöll enn í sumardvala Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Aukið álag er á Hjálparsíma Rauða krossins yfir hátíðarnar og er helsta ástæða þess einmanaleiki, meðal þeirra sem eru ekki með fjölskyldu og nákomnum á jólunum. Hanna Ruth Ólafsdóttir, verkefnafulltrúi hjá Hjálparsíma Rauða krossins, segist finna vel fyrir því að fleiri hringi í 1717 yfir hátíðarnar. „Það er alltaf aðeins meira að gera í kringum þennan árstíma. Þá hring- ir helst fólk sem kvíðir fyrir því að vera eitt um jólin en einnig hafa fjár- hagsáhyggjur og annað áhrif á fólk í kringum hátíðarnar,“ segir Hanna. Svipaður fjöldi og undanfarin ár hringdi í Hjálparsímann að sögn Hönnu en tveir sjálfboðaliðar voru á vakt á aðfangadagskvöld. Síminn er opinn öllum stundum og ungir sem aldnir nýta sér þjónustuna. Sjálf- boðaliðar Rauða krossins hvetja inn- hringjendur að nýta sér úrræði sem eru til staðar. „Við bendum fólki á að leita til samtaka eins og Hjálpræðishersins og borða með öðrum svo dæmi sé nefnt. Stundum þarf fólk hvatningu til að koma sér af stað og heyra að fleiri eru í þeirra sporum,“ segir Hanna. „Við erum svo heppin að vera með alveg ótrúlega sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að taka vaktir á þessum tím- um og spjalla við fólk, veita því sál- rænan stuðning og hvatningu.“ Aukið álag á vinalínu á jólum  Helsta ástæða hringinga í 1717 er einmanaleiki Morgunblaðið/Golli Einmanaleiki Margir finna fyrir einmanaleika á jólunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.