Morgunblaðið - 27.12.2018, Page 21

Morgunblaðið - 27.12.2018, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018 Blámahjúpaður Keilir Þegar dagarnir eru sem stystir í norðri getur birta sólar skapað magnaðar andstæður. Hér sést landslag Reykjaness blátt gagnvart roðagullnum himni í suðri. Hari Skógarbændurnir okkar settu fram það markmið á dögunum að innan tíu ára gætu þeir höggvið úr ís- lenskum skógi fimm- tíu þúsund jólatré og þar með annað allri innlendri þörf fyrir jólin. Íslenskir skóg- arbændur hafa á síð- ustu áratugum gróðursett þessa mikilvægu auð- lind, skóginn, sem gerir landið allt byggilegra. Segja má að Vig- dís Finnbogadóttir forseti hafi í upphafi ferils síns gerst verndari og talsmaður trésins: ,,þar sem þrjú tré koma saman, þar er skógur“, var hennar hvatning. Og bænd- urnir hlýddu nýju kalli og hafa plantað skóginum ásamt Skógræktinni og hug- sjónafólki skóg- ræktarfélaganna. Þessu kalli skóg- arbændanna er vel tekið og þá vaknar sú spurning hvort bændurnir eigi ekki líka að setja fram þá hugsjón að þeir vilji í samstarfi við neytendur fram- leiða allt kjöt og allar mjólkur- vörur sem neytt er í landinu og geri sáttmála við ríkisvaldið um markmiðin. Við eigum einhver heilnæmustu og hollustu matvæli hér á jörð og byggjum landið allt með framleiðslu á þeim afurðum. Er einhver á móti því að íslenskir bændur framleiði allt kjöt og all- ar mjólkurvörur og skili þeim með gæðunum og á ásættanlegu verði til neytenda? Ekki einu sinni Kaupmannasamtökin eða heildsalarnir gætu lagst gegn þessu því fólkið sem verslar við þá er að stærstum hluta á þessari skoðun, og inn við beinið eru þeir stoltastir af matnum sem þeir selja fyrir íslenska bændur. Hér ríkir opinbert kæruleysi, því miður, í þessum málum og of lítill skilningur stjórnmálamanna eða ákvarðanir þeirra segja manni það. Þeir ætla með ferskt kjöt inn í landið, þeir leyfa ferða- mönnum að bera með sér kílói af kjöti. Í Nýja-Sjálandi og Banda- ríkjunum væri fólki vísað til föðurhúsanna fyrir slíkt fram- ferði. Eitt sinn munaði litlu hjá mér á ferð um Bandaríkin, þeir fundu tvo banana í farangri mínum, það munaði hársbreidd að mér yrði vísað úr landi. Ég bið bæði bændur og ráða- menn landsins að hugleiða ræðu mína. Það verður ekki bætt ef við höldum áfram á þeirri braut að ganga sífellt meira og meira á hagsmuni íslenskrar landbún- aðarframleiðslu, við eigum góða bændur og fjölskyldubúskap sem er umgjörð um einstakt matvæla- land Íslands. Gjöfin í tilefni hundrað ára fullveldis Íslands væri best sú að styrkja stöðu ís- lenskrar matvælaframleiðslu og landbúnaðarins. Eftir Guðna Ágústsson » „… þar sem þrjú tré koma saman, þar er skógur“. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Jólatréð, kjötið og mjólkur- vörurnar frá íslenskum bændum Fjölmörg tækifæri geta falist í að sam- þætta landbúnað og náttúruvernd. Í byrj- un jólamánaðarins skrifuðum ég og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bænda- samtaka Íslands, und- ir samstarfsyfirlýs- ingu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Bændasamtak- anna. Yfirlýsingin lýsir vilja til að vinna saman að málefnum náttúruverndar og landbúnaðar og var undirrituð í Landbúnaðarhá- skólanum á Hvanneyri. Það var vel við hæfi að skrifa undir á þeim góða stað því árið 2002 var svæðið friðlýst og árið 2011 var friðlýsta svæðið stækkað og fékk þá nafnið Anda- kíll. Markmið friðlýs- inganna er að stuðla að varðveislu og við- haldi votlendis og bú- svæða fjölmargra fuglategunda, tryggja aðgengi almennings að svæðinu til nátt- úruskoðunar og tryggja möguleika á rannsóknum á svæð- inu. Ljóst er að frið- lýsingarnar 2002 og 2011 og sú landbúnaðarstarfsemi sem fer fram á Hvanneyri fara einkar vel saman því þar hefur tekist að samþætta blómlegan landbúnað við mikilvægar aðgerðir til verndar náttúrunni. Markmið samstarfsyfirlýsingar- innar er einmitt að kanna hvernig þessi tvö mikilvægu viðfangsefni, náttúruvernd og íslenskur land- búnaður, geta samtvinnast frekar. Umhverfisyfirvöld hafa það í sín- um reynslubanka að vinna með bændum í ýmiss konar skógrækt- ar- og landgræðsluverkefnum, til að mynda Bændur græða landið. Sum þeirra verkefna fela í sér endurheimt vistkerfa og stuðla þannig að náttúruvernd. Nú er hugsunin sú að taka skrefið lengra og vinna að frekari nýsköpun í náttúruvernd í samstarfi við bændur. Þeir eru vörslumenn lands og stór hluti landsins er í þeirra umsjón. Staðbundin þekking heima- fólks mikilvæg Fjölmörg tækifæri geta falist í því að samrýma landbúnað og náttúruvernd. Þar er hægt að nefna aukin umhverfisgæði lands sem nýtur formlegrar verndar sem getur aftur skilað sér í meiri gæðum vara sem þar eru fram- leiddar. Svæði sem eru friðlýst komast á ákveðinn stall og njóta af þeim sökum aukinna vinsælda hjá íslenskum og erlendum ferða- mönnum. Ferðamenn þarf að þjónusta með ýmsum hætti og má sjá fyrir sér sölu á vörum beint frá býli og leiðsögn staðkunnugs heimafólks um vernduð eða frið- lýst svæði. Leiðsögn heimamanna getur veitt ferðamanninum meiri innsýn í samlegðaráhrif nátt- úruverndarinnar og þess landbún- aðar sem þar er stundaður. Við greiningu tækifæra eins og þeirra sem hér eru tekin dæmi af er mikilvægt að vanmeta ekki þau verðmæti sem felast í hinni stað- bundnu þekkingu bænda og heimafólks. Um það mun sam- starfið snúast; að greina í sam- vinnu við bændur hvernig nýting lands til landbúnaðar og nátt- úruverndin geta spilað saman og stutt hvort annað. Ég er spenntur að hefja þetta samstarf við Bændasamtök Ís- lands og bjartsýnn á að uppskeran verði góð. Eftir Guðmund Inga Guðbrandsson »Hugsunin er sú að vinna að frekari ný- sköpun í náttúruvernd í samstarfi við bændur. Þeir eru vörslumenn lands og stór hluti landsins í þeirra um- sjón. Guðmundur Ingi Guðbrandsson Höfundur er umhverfis- og auðlindaráðherra. Tækifæri í samþættingu landbúnar og náttúruverndar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.