Morgunblaðið - 27.12.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 27.12.2018, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018 Emelía Blöndal, hársnyrtir og leiðsögumaður hjá Íslenskumfjallaleiðsögumönnum, á 50 ára afmæli í dag. Emelía, sem erfædd og uppalin á Seyðisfirði, hafði starfað í meira en 20 ár sem hársnyrtir þegar hún ákvað að söðla um og gerðist leiðsögumaður. „Ég klippi samt aðeins á veturna á stofunni Primadonna á Grens- ásvegi.“ Sem leiðsögumaður fer Emelía mest í fimm til tíu daga gönguferðir um hálendi Íslands með erlenda ferðamenn. „Yfirleitt fær maður frekar vant fólk í ferðirnar en ég hef líka lent í að fá illa búið fólk sem er ekki í nógu góðu líkamlegu formi og þá verður að gera plan B.“ Í tilefni afmælisins er Emelía stödd í Dólómítafjöllunum á Ítalíu, í skíðaferð ásamt börnum sínum og tengdabörnum. „Við förum annað hvert ár í skíðaferð yfir jólin, þá í Alpana eða til Noregs.“ Aðalafmælisferð Emelíu var samt gönguferð í október síðastliðnum, sem hún fór í ásamt eiginmanni sínum og vinahópi með Leifi Erni Svav- arssyni, leiðsögumanni hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Gengið var upp í grunnbúðir Everest í Himalafjöllunum. „Grunnbúðirnar eru í 5.300 metra hæð en við fórum upp í 5.700 metra til að sjá betur yfir. Þetta var algjörlega geggjað ævintýri. Það ættu allir að sjá Himalaja- fjöllin einu sinni á ævinni.“ Þessi vinahópur fer saman í alls konar skemmtilegar ferðir, gönguferðir, gönguskíðaferðir og fjallaskíðafeðir. Eiginmaður Emelíu er Þórður Georg Hjörleifsson, rafvirki og skíða- þjálfari, og börn þeirra eru Margrét Eva 27 ára eðlisfræðingur, Hjör- leifur 25 ára viðskiptafræðingur og Georg Fannar 19 ára mennta- skólanemi. Hjónin Þórður og Emelía stödd í grunnbúðum Everest. Allir ættu að sjá Himalajafjöllin Emelía Blöndal er fimmtug í dag H era Hilmarsdóttir fæddist í Reykjavík 27.12. 1988 og ólst þar upp, fyrsta árið í Þing- holtunum en síðan í Hlíðunum, að undanskildu einu ári er móðir hennar var í framhaldsnámi í London og Hera var þar með henni. Hera var fyrst í Ísaksskóla: „Þar kenndi Herdís Egilsdóttir mér. Hún er frábær kennari, góð manneskja og mikill frumkvöðull í barnakennslu. Hún hefur verið mér kær hvatning allar götur síðan. Þegar ég fékk Edd- una fyrir Vonarstræti minntist ég á tvo kennara mína í þakkarræðunni, þær Herdísi og Önnu Flosadóttur, leiklistarkennara í Hlíðaskóla. Báðum þessum konum á ég margt að þakka.“ Hera fór síðan í Hlíðaskóla, var einn vetur í grunnskóla í London, síð- an aftur í Hlíðaskóla, stundaði nám við MH og lauk stúdentsprófi þaðan 2007. Hún stundaði tónlistarnám, fyrst við Tónmenntaskólann og síðan Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún lærði á selló. Hún stundaði leik- listarnám við LAMDA, The London Academy of Music and Dramatic Art, og útskrifaðist 2011. Hera lék fyrst í sjónvarpsmyndinni Hvíta dauða, er hún var fjögurra ára, og lék þá á móti móður sinni. Hún flutti ljóð í leiknum ljóðum er nefnd- ust Brotabrot og voru sýnd í Ríkis- sjónvarpinu er hún var níu ára. Hún tók þátt í leiksýningum í MH, Mar- tröð á jólanótt og sýningunni Fjöl- skyldusirkusnum, þar sem Guðný Halldórsdóttir uppgötvaði leikhæfi- leika hennar. Þá fékk hún Tréhaus- Hera Hilmarsdóttir leikkona – 30 ára Morgunblaðið/Hari Hera Með leik sínum í myndunum An Ordinary Man og Mortal Engines er Hera orðin þekktasta leikkona Íslands. Skær stjarna á uppleið Mæðgur Hera með móður sinni, Þóreyju Sigþórsdóttur leikkonu. Feðgin Hera með föður sínum, Hilm- ar Oddssyni kvikmyndaleikstjóra. Keflavík Áróra Svala Panadero Karvelsdóttir fædd- ist 28. febrúar 2017. Hún vó 3.040 g og var 47 cm löng. For- eldrar hennar eru Karvel Aðalsteinn Jónsson og Rhea Mee Gilza Pana- dero. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Laugarnar í Reykjavík Sími: 411 5000 • www.itr.is Við þökkum samveruna á árinu 2018 og hlökkum til samverustunda 2019 milljónir gesta á árinu 2018 2,3 Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.