Morgunblaðið - 27.12.2018, Page 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
ENZYMEDICA býður
gleðilegt ár!
DIGEST öflugustu meltingarensmín
á markaðnum, henta öllum
aldurshópum
ACID SOOTHE náttúruleg
lausn gegn brjóstsviða og
nábít sem virkar nánast
samstundis
Fæst nú á
25% afsl
ætti
á flestum
sölustöðu
m
GLEÐILEGT ÁR
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er í lagi að treysta sínum nán-
ustu fyrir sínum framtíðardraumum. Of mikið
umtal kallar bara á öfundarmenn sem gera
þér lífið leitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er engin ástæða fyrir þig til þess
að vera að væla yfir hlutunum. Gefðu þér
tíma til að skoða þær breytingar sem eru að
verða í lífi þínu. Ekki láta neikvæðnina ná
tangarhaldi á þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft á öllu þínu að halda til þess
að ljúka við það stóra verkefni sem þú hefur
tekið að þér. Í stað þess að eiga þér stóra
drauma – eins og vanalega – hafðu þá klikk-
aða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú hafir ýmislegt fyrir stafni er
eins og þér finnist eitthvert tómahljóð í tilver-
unni. Einbeittu þér að eigin þörfum og sýndu
fólki hvernig þú vilt að sé komið fram við þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Notaðu gaman til þess að rjúfa veggina
milli fólks. Að hitta fólk af tilviljun hefur mikla
þýðingu. Þú þarft jafnvægi í umhverfi þínu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er til lítils að hafa mörg orð um
hlutina ef þeim fylgja engar athafnir. Láttu
aðra vita af því sem þú ert að gera.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ekki þrýsta um of á að breytingar og
bætur verði gerðar á vinnustað þínum.
Reyndu ekki að benda á aðra heldur líttu í
eigin barm og breyttu til.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Flest okkar eiga það til að falla í
þá gryfju að taka okkar nánustu sem sjálf-
gefna. Mundu að meta þá daglega því þeir
eru ekki sjálfgefnir frekar en annað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Velgengni þín í starfi hefur stigið
þér svolítið til höfuðs. Reyndu að vinna þér
skilning annarra. Reynsla annarra getur veitt
okkur nýja innsýn í hlutina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að hafa alla þræði í hendi
þér áður en þú ræðst í þær framkvæmdir
sem þig dreymir um. Mundu að þú ert alveg
maður fyrir þinn hatt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í dag er rétt að huga að mark-
miðum og væntingum. Reyndu að skapa þér
tóm til útivistar á degi hverjum, því annars
áttu á hættu að innisetur spilli heilsu þinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ágætt að leyfa tilfinningunum
að njóta sín en um leið skaltu varast að láta
þær hlaupa með þig í gönur. Fáðu hlutlausan
aðila til aðstoðar því hann sér málið öðrum
augum.
Ingjaldur Ásmundsson í Ferj-unesi í Flóa hafði samband við
mig vegna vísu sem hér birtist í
Vísnahorni föstudaginn 14. desem-
ber og segir að þar sé farið rangt
með höfundinn og texta. Vísan sé
eftir afa sinn Eirík Guðmundsson,
sem fæddur var á Reykjum á
Skeiðum 1861 en ólst upp á Álfs-
stöðum á Skeiðum en gerðist síðan
bóndi í Ferjunesi í Villingaholts-
hreppi og bjó þar til dauðadags.
Tildrög vísunnar eru þau að
snemma á síðustu öld bjó í Garð-
inum maður að nafni Þorkell og
hlaut viðurnefnið Niss. Hann sást
kasta af sér vatni upp við vinnu-
skúr í alfaraleið og hentu menn
gaman að því. Vísan er svona eins
og Ingjaldur lærði hana, en afi
hans fór oft með hana:
Enn þótt flissi aldan byrst
aldrei hissa verðum;
þú mátt pissa af þinni list
Þorkell Niss frá Gerðum.
Gunnar J. Straumland yrkir á
Boðnarmiði „Dróttkveðin vetrar-
sólhvörf“:
Vetrarsólhvörf veita
vonir landsins sonum,
dátt þá foldar dætur
daga gera fagra.
Glitrar yfir gleði
glóð í björtum ljóðum,
framtíð kýs þá fremur
friðmál allra siða.
Það var bjart yfir Guðmundi
Arnfinnssyni á föstudaginn:
Þó desember sé dimmur næsta,
daginn fer að lengja senn,
skötuilminn kennum kæsta,
konur fagna því og menn.
Lífið er sem ljúfur draumur,
losti vex og dafnar trú,
í fjárhúsunum gleði og glaumur,
gott að vera hrútur nú.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason sá
borgarstjóra í kastljósi um bragg-
ann:
Dagur hann sagð’etta déskoti leitt
þó duglegur sé bæði’og klár
hann var ekki’á staðnum og vissi’ekki
neitt
hví virkuðu’ei kostnaðarspár!
Og Halldór Þorsteinsson orti:
Dagsins birta í desember
dvínar skarpt
nú borgarstjórn í basli er
braggast vart.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um gamla vísu, vetrar-
sólhvörf og bragga
FYRIR BÆNIR. „Ekki margar vísbendingar Stjóri! viÐ fundum eitt fótspor.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú gerir allar
stundir sérstakar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SÁSTU RISASTÓRA UPPBLÁSNA
JÓLASVEININN MINN?
LIFUM FYRIR DAGINN Í DAG!
MORGUNDAGURINN RENNUR
KANNSKI EKKI UPP!
ÉG VONA AÐ HANN GERI ÞAÐ! ÉG
HATA MÁNUDAGA!
FLOTT ÍBÚÐ,
FÍNT HVERFI?
Víkverji vonar að jólin hafi veriðgleðileg hjá lesendum hans. Þeg-
ar þetta er ritað er fullsnemmt að
segja til um það hvernig þau voru hjá
Víkverja. Hitt er þó víst að hann
hlakkar til að árinu 2018 ljúki og von-
ar að árið 2019 verði betra á allan hátt.
x x x
Hin árlega umræða um flugeldasöl-una er hafin. Fyrir nokkrum ár-
um fór að verða vart við það á netinu
að fólk var nánast skammað og hund-
elt, ef það keypti ekki flugeldana sína
hjá björgunarsveitunum. Nú hefur
Víkverji tekið eftir svipaðri þróun, en í
þá átt að fólk eigi bara alls ekki að
kaupa flugelda yfirhöfuð. Það er allt í
ökkla eða eyra.
x x x
Víkverji hefur sjaldnast sjálfurkeypt sér flugelda, hvorki af
björgunarsveitunum né af öðrum.
Honum dettur þó ekki í hug að vilja
reyna að hafa vit fyrir öðrum í þessum
efnum. Sprengi þeir sem vilja.
x x x
Víkverji veit ekki hvers hann óskarsér helst af árinu 2019. Hann bið-
ur þó ekki um mikið. Einn eða tveir
lottóvinningar væri alveg ágætt. Vík-
verji er raunar búinn að bíða heillengi
eftir því að fá þann stóra í lottóinu, og
er honum farið að leiðast biðin. Ætli
áramótaheitið hans verði þá ekki að
kaupa sér lottómiða svona einu sinni
eða tvisvar á árinu?
x x x
Þá kvíðir Víkverji fyrir janúar.Hann fer reglulega í líkamsrækt,
sem er að jafnaði ekki fjölmenn á þeim
tímum sem Víkverji kíkir í ræktina.
Nema í janúar. Þá fyllist hún af alls
kyns fólki, sem ætlar nú aldeilis að
snúa við blaðinu. Nokkrum tímum og
árskortum síðar er blaðið enn á sömu
hliðinni og Víkverji kemst aftur í lóðin
sín.
x x x
Það væri kannski ágætt ef áramóta-heitið í ár væri einfaldlega að
reyna að vera kannski ögn betri við
hvort annað. Það virðist ansi oft
gleymast yfir veturinn. Gleðilegt ár og
megi gæfa og gifta fylgja ykkur á nýju
ári. vikverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar
um þig, af lofsöng um dýrð þína
allan daginn.
(Sálm: 71.8)