Morgunblaðið - 27.12.2018, Síða 44
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Lokað 31. desember og 1. janúar
ÚTSALAN
ER HAFIN
YFIR 3.000 VÖRULIÐIR
á lækkuðu verði
ALLT AÐ
70%
AF
VÖLDUM VÖRUM
Ari Eldjárn efnir til uppistandssýn-
ingar þriðja árið í röð kl. 19.30, ann-
að kvöld, 28. desember, í Háskóla-
bíói. Í fyrra mættu 8.000 manns til
að kveðja árið á Áramótaskopi með
uppistandaranum. Árið 2018 verður
í forgrunni, en Ari mun ræða allt
milli himins og jarðar og leggur
áherslu á að kveðja árið með eftir-
minnilegum hætti.
Ari Eldjárn veldur
heilmiklu uppistandi
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 361. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Ég mun njóta þess að spila hérna
heima og gera eins vel og ég get og
svo er markmiðið alltaf að komast
aftur út, þar vil ég spila. Ég set
stefnuna út en á meðan ég er enn
þá heima mun ég gefa allt í þetta
og vonandi hjálpa liðinu að vinna
titil,“ segir Njarðvíkingurinn Elvar
Már Friðriksson, sem er leikmaður
desembermánaðar hjá Morgun-
blaðinu. »2-3
Hjálpa liðinu vonandi
til að vinna titil
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Blásið verður til gamaldags dansi-
balls í Iðnó í kvöld kl. 20. Þá koma
fram Teitur Magnússon með hljóm-
sveit og hljómsveitin Bagdad Broth-
ers og leika fyrir dansi. Teitur mun
ásamt hljómsveit flytja lög af plöt-
um sínum 27 og Orna í bland við
hressandi tökulög og Bagdad Broth-
ers munu leika frum-
samin lög í léttum dúr.
„Búast má við því að
uppákoma þessi
verði hin besta
skemmtun, og
ágætasta afsök-
un til að sletta
aðeins úr klauf-
unum,“ seg-
ir á Face-
book um
ballið.
Teitur og Bagdad
Brothers í Iðnó
skólans í Reykjavík. Valgreinar
nemenda og tengsl við atvinnulífið
veita innsýn og færni á fjölbreyttara
sviði en annars er í bóknámi.
„Frá 2008 til 2015 eða frá því ég
var sex til þrettán ára að aldri bjó ég
í Bandaríkjunum með foreldrum
mínum og þar náði ég enskunni. Þá
var faðir minn fréttamaður Ríkis-
útvarpsins í Washington. Þegar við
fluttum heim fór ég í Garðaskóla í
Garðabæ og tók ég 9. og 10. bekk
grunnskólans og þar gat ég tekið all-
marga framhaldsskólaáfanga í
tungumálum og stærðfræði. Ég var
því kominn vel áleiðis að stúdents-
prófinu þegar ég byrjaði í fram-
haldsskóla. Þar gat ég líka tekið
ýmis skemmtileg valfög, eins og raf-
tækni, myndvinnslu, skyndihjálp og
þýsku,“ segir Dýrleif Birna.
Verkfræði eða fjármál
Fimmtu og síðustu námsönnina
fyrir stúdentsútskrift tók hún svo í
fjarnámi, en hún býr nú með for-
eldrum sínum í Brussel í Belgíu. Þar
er Sveinn Helgason fulltrúi Íslands
hjá NATO en móðir hennar, Kristín
Guðbrandsdóttir, er sjálfstætt starf-
andi.
„Ég kom heim í byrjun desember
til þess að fara yfir námsefnið með
kennurunum. Skellti mér síðan í
lokaverkefnin og kynningar og gekk
vel. Jú, árin sjö í Bandaríkjunum
voru mjög þroskandi og ekki síður
er áhugavert að vera núna í allt öðru
menningarumhverfi í Brussel; þar
sem hjarta Evrópu slær. Í framtíð-
inni hef ég síðan áhuga á að læra
verkfræði eða eitthvað tengt fjár-
málum,“ segir Dýrleif, sem á náms-
tímanum var öflug í félagsstörfum
fyrir skólann sinn. Þá var hún einnig
í liði skólans sem hreppti annað sæt-
ið á heimsmeistaramótinu í vél-
mennaforritun í Mexíkó síðastliðið
sumar, en 192 lið hófu þar keppni.
Við útskrift hlaut hún einnig raun-
greinaverðlaun HR, skólaverðlaun
Upplýsingatækniskólans, verðlaun
fyrir framúrskarandi árangur í ís-
lensku og stærðfræði auk viður-
kenningar fyrir félagsstörf í þágu
nemenda.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að ná stúdentsprófinu á fimm önn-
um er vissulega krefjandi, en allt
snýst þetta um rétt hugarfar og gott
skipulag. Ég sagði sjálfri mér að
takmarkið væri raunhæft og vann
samkvæmt því. Skólinn er líka
skemmtilegur og námið var áhuga-
vert,“ segir Dýrleif Birna Sveins-
dóttir. Hún brautskráðist frá Tækni-
skólanum, skóla atvinnulífsins, fáum
dögum fyrir jól; fyrst nema af stúd-
entsbrautinni K2. Hún er jafnframt
yngsti nemandinn í sögu Tækniskól-
ans sem útskrifast með stúdents-
próf.
Náði enskunni
í Bandaríkjunum
Brautskráðir nemendur frá
Tækniskólanum fyrir jól voru alls
262 og komu þeir úr alls 10 skólum
og deildum. Þeir sem útskrifast af
K2 eru með menntun sem tekur mið
af aðgangskröfum í tækni-, verk-
fræði- og tölvunarfræðideild Há-
Sautján ára stúdent
Raunhæft takmark og rétt hugarfar Skemmtilegur
skóli og krefjandi nám Var í fjarnámi frá Brussel
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stolt Dýrleif Birna Sveinsdóttir með foreldrum sínum, þeim Kristínu Guðbrandsdóttur og Sveini Helgasyni.