Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 2

Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 2
2 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands Útgefandi Árvakur Umsjón Stefán Gunnar Sveinsson Blaðamenn Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Auglýsingar Böðvar Bergsson, Erling A. Ágústsson Prentun Landsprent Forsíðumyndina tók Magnús Ólafsson Guðni Th. Jóhannesson, forseti lýðveldisins, ræddi við Morgunblaðið um hin merku tímamót sem felast í 100 ára afmæli fullveldis Íslands. 28-29 Framtíðin er í okkar höndum Þess er minnst í dag að eitt hundrað ár eru liðin frá gildistöku sambandslagasamningsins, hinni sönnu sigurstund sjálfstæðis- baráttunnar. Eftir á að hyggja getur verið auðvelt að líta framhjá þessari stund og þeim mikla merkisdegi sem 1. desem- ber 1918 er í sögu þjóðarinnar, eða að taka þeim árangri sem þá náðist sem gefnum. Það væri þó misráðið. Það var alls ekki sjálfgefið að sú mikla barátta sem hófst á fjórða áratug 19. ald- ar myndi á innan við einni öld skila sér í því að Ísland væri á ný orðið að frjálsu og fullvalda ríki. Það var alls ekki sjálfgefið að á innan við öld næðist að byggja hér upp innviði og efnahag landsins, svo að fámennasta þjóð Evrópu gæti staðið á eigin fótum. Fullveldið er einhver dýrmætasta eign hverrar þjóðar. Eign sem Íslendingar fengu ekki áreynslulaust. Vonandi ber ís- lenska þjóðin gæfu til að varðveita fullveldi sitt um ókomna tíð, eins og hún hefur nú gert í heila öld. Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Magnús Ólafsson Fullvalda þjóð í 100 ár Gunnar Þór Bjarnason sagnfræð- ingur gaf nýverið út bókina Hinir út- völdu um fullveldisárið. Hann grein- ir frá helstu viðburðum ársins í ítarlegu viðtali. 4, 6, 8-9 Hvað gerðist á árinu 1918? Formenn og fulltrúar stjórnmála- flokkanna senda íslensku þjóðinni kveðjur á fullveldisdaginn og hug- leiða mikilvægi fullveldisins fyrir ís- lenska þjóð og framtíðina. 30-37 Þjóðinni árnað heilla Hver var aðdragandi þess að Ísland fékk fullveldi sitt 1. desember 1918? Hvernig hefur deginum verið fagnað bæði þá og síðar? 20-22, 24-25, 26-27 Aðdragandi og eftirmál fullveldis Leitað var til nokkurra valinkunnra einstaklinga og þeir beðnir um að rita hugleiðingar um þýðingu full- veldisins frá ýmsum sjónarhornum. 14,16, 38-45 Hver er þýðing fullveldisins? Íslendingasögurnar hafa lengi lifað með þjóðinni. Þær hafa nú verið gefn- ar út í nýrri heildarútgáfu í tilefni af fullveldisafmælinu og var rætt við að- standendur útgáfunnar. 12 Ný heildarútgáfa Íslendingasagnanna Séra Hjálmar Jónsson orti hátíðar- sálm og Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi lag við sálminn. Hann verður frumfluttur í Dómkirkjunni á morg- un, sunnudag. 46 Hátíðarsálmur í tilefni dagsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.