Morgunblaðið - 01.12.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 01.12.2018, Síða 25
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 25 Fullveldi Íslands hinni íslenzku og dönsku þjóð á herðar“. Lorck sagði jafnframt að venjulega væri ekki auðvelt að skilja tilfinningar annarra, en að þó teldi hann að hinir íslensku bræður sín- ir myndu skilja að það væri ekki „í alla staði auðvelt hinni dönsku þjóð, sem hingað til hef- ir fundið til þess að hún var smáþjóð, að taka þátt í því sem skeður í dag“. Hins vegar myndi Guð, sem elskaði rétt en hataði órétt, launa hinni dönsku þjóð fyrir það að hafa látið sér „umhugað um, að gera eigi bræðraþjóð sinni rangt til í þessu máli“. Bað Lorck í framhaldinu Guð um að blessa bæði framtíð Íslands og Danmerkur og að lokum að hann myndi varðveita konunginn. Lúðraflokkur Reynis Gíslasonar lék þá lag- ið „Kong Christian stod ved højen mast“, há- tíðarsöng þjóðhöfðingja Danmerkur. Að því loknu hrópaði Ágúst H. Bjarnason prófessor „Lengi lifi konungur vor, hans hátign Krist- ján 10.“ og fagnaði mannfjöldinn því með ní- földu húrrahrópi fyrir konungi ríkjanna tveggja. Vaxandi bróðurþel og samvinna Jóhannes Jóhannesson bæjarfógeti, forseti sameinaðs þings og formaður íslensku samn- inganefndarinnar í sambandsmálinu flutti þar næst minni Danmerkur, og þakkaði dönskum stjórnvöldum fyrir að viðurkenna fullveldi landsins. „Oss er þetta því ljúfara og skyldara sem Danmörk er fyrsta ríkið, sem viðurkennt hefir fullveldi Íslands og hefir nú síðast sýnt oss þann mikla sóma og hið hlýja bróðurþel, að láta herskip bíða hér, eingöngu til þess að heiðra fána vorn við þetta tækifæri og láta í ljósi samúð sína við oss og samfagna oss á þessari stundu,“ sagði Jóhannes. Sagðist Jóhannes þess fullviss að hann tal- aði fyrir munn hvers einasta Íslendings þegar hann léti í ljós þá innilegu ósk og von, að Dan- merkurríki mætti „eflast og blómgast, að ósk- ir og vonir, sem því hafa verið hjartfólgnar um mörg ár,megi rætast og að ætíð megi fara vaxandi bróðurþel og samvinna milli dönsku og íslenzku þjóðanna, báðum til gagns og sóma“. Í kjölfarið var leikinn þjóðsöngur Dan- merkur, „Der er et yndigt land“ og var hróp- að húrra fyrir Danmörku. Athöfninni við Stjórnarráðið lauk svo á því að Sigurður Jónsson hrópaði „Lengi lifi hið íslenska ríki“, og segir í Ísafold að „varð þá húrrahróps- þörfin svo mikil að aldrei ætlaði enda að taka.“ Lúðraflokkurinn flutti að lokum „Ó, Guð vors lands“, og var þá hinni lágstemmdu athöfn við Stjórnarráðið lokið. Kom blöðunum saman um að hún hefði farið vel og virðulega fram. Mun hafa verið nokkur mannfjöldi í bænum fram eftir kvöldi. Þá var fullveld- isskemmtun haldin í Iðnó, sem haldin var að tilstuðlan einstaklinga. Var ágóðanum af skemmtuninni varið til hjálparstarfsemi vegna spænsku veikinnar. Enginn „tiltakanlegur fagnaðarblær“ Í Morgunblaðinu var hins vegar kvartað yfir því að Íslendingar hefðu lítið látið bera á til- finningum sínum þennan dag. „Íslendingar eru þannig skapi farnir, að þeir láta ógjarna bera á tilfinningum sínum. Þeir hrífast ekki eins og aðrar þjóðir af því sem fram fer, eða láta að minnsta kosti ekki á því bera. Þetta kemur einna bezt í ljós á hátíðlegu stund- unum, og svo var einnig í gær. Það virtist ekki vera neinn tiltakanlegur fagnaðarblær yfir þeim mikla mannfjölda, sem safnast hafði saman til að fagna fullveldinu, hvort sem það hefir stafað af skilningsleysi á þýðingu við- burðarins, eða meðfæddu dullyndi þjóð- arinnar.“ Þrátt fyrir það sagði í Morgunblaðinu að „hátíðlegur blær“ hefði verið „að ýmsu leyti“ yfir athöfninni. „Það mátti sjá á mörgum, að þeir fundu að stundin, sem leið um hádegið í gær, var alvöruþrungin stund, og lengi munu menn minnast augnabliksins, þegar klofinn, íslenskur fáni sveif að hún í fyrsta sinn.“ Að lokum nefndi Morgunblaðið að tvær fánas- tengur hefðu staðið auðar fyrir aftan stjórn- arráðshúsið, en þar hafði venjulega verið flaggað danska fánanum, Dannebrog, við hlið íslenska fánans. Var það mjög táknrænt að sögn blaðsins. „Þær minntu á síðasta þáttinn í fullveldisbaráttunni og klofni fáninn sýndi að nýtt tímabil var hafið í sögu þjóðarinnar.“ Ljósmyndasafn Íslands/ Þorleifur Þorleifsson Þessi ljósmynd eftir Þorleif Þorleifsson sýnir Victor Lorenz Lorck, skipherra á varðskipinu Islands Falk, standa fyrir framan Stjórnarráðið í þann mund sem fáni Íslands var dreginn að húni. Íslendingar! Hans hátign konungurinn hef- ur staðfest sambandslögin í gær, og í dag ganga þau í gildi. Ísland er orðið viðurkennt fullvalda ríki. Þessi dagur er mikill dagur sögu þjóðar vorrar. Þessi dagur er runninn af þeirri baráttu, sem háð hefur verið í þessu landi allt að því í heila öld. Hún hefur þroskað oss, baráttan, um leið og hún hefur fært oss að markinu. Saga hennar verður ekki sögð í dag. Hún lifir í hjörtum þjóðarinnar. Þar lifir einnig minning þeirra, sem með mestri trúmennsku hafa vakað yfir málum vorum. Hér engin nöfn. Þó aðeins eitt, sem sagan hefur lyft hátt yfir öll önnur á sínum breiðu vængjum. Nafn Jóns Sigurðssonar. Hann var foringinn meðan hann lifði. Og minning hans hefur síðan hann dó verið leiðarstjarna þessarar þjóðar. Í dag eru tímamót. Í dag byrjar ný saga, saga hins viðurkennda íslenska ríkis. Fyrstu drættina í þeirri sögu skapar sú kynslóð, sem nú lifir, frá þeim æðsta, konunginum, til þess, sem minnstan á máttinn. Það eru ekki aðeins stjórnmálamennirnir, er miklu ráða um mál þjóðarinnar, sem skapa hina nýju sögu. Nei, það eru allir. Bóndinn, sem stendur við orfið og ræktar jörð sína, hann á hlutdeild í þeirri sögu, daglaunamaður- inn, sem veltir steininum úr götunni, hann á hlutdeild í þeirri sögu, sjómaðurinn, sem sit- ur við árarkeipinn, hann á þar hlutdeild. Allir, sem inna lífsstarf sitt af hendi með al- úð og samviskusemi, auka veg hins íslenska ríkis. Og sú er skylda vor allra. Hans hátign konungurinn hefur, með því að undirskrifa sambandslögin, leitt þá hug- sjón inn í veruleikann, sem vakti fyrir föður hans, Friðrik konungi 8., sem öðrum fremur hafði djúpan skilning á málum vorum. Og í gær hefur konungurinn gefið út úrskurð um þjóðfána íslands, sem blaktir frá því í dag yfir hinu íslenska ríki. Hlýr hugur hinn- ar íslensku þjóðar andar á móti konungi vorum. Fáninn er tákn fullveldis vors. Fáninn er mynd þeirra hugsjóna, sem þjóð vor á feg- urstar. Hvert stórverk, sem unnið er af oss, eykur veg fánans. Hvort sem það er unnið á höfunum, í baráttunni við brim og úfnar öldur, eða á svæði framkvæmdanna, eða í vísindum og fögrum listum. Því göfugri sem þjóð vor er, þess göfugri verður fáni vor. Vegur hans og frami er frægð þjóðar vorr- ar og konungs vors. Vér biðjum alföður að vaka yfir íslenska ríkinu og konungi vorum. Vér biðjum alföður að styrkja oss til að lyfta fánanum til frægðar og frama. Gifta lands vors og konungs vors fylgi fána vorum. Svo drögum vér hann að hún. Hátíðarræða Sigurðar Eggerz 1. desember 1918

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.