Morgunblaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands F ullveldisdagurinn 1. desember hefur aldrei verið haldinn með sama há- tíðarbrag og tíðkast hefur 17. júní frá stofnun lýðveldis 1944. Afmælis full- veldisins 1918 hefur þó ávallt verið minnst með einhverjum hætti frá 1919. Samkvæmt samningnum um samband Ís- lands og Danmerkur sem gerður var í júlí 1918 skyldu sambandslögin taka gildi – og Ísland þar með verða fullvalda ríki – 1. desember sama ár. Dagsetningin var líklega tilviljun. Þessi dagur hafði þá enga sérstöðu á Íslandi. En fyrst varð að samþykkja samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi og á þjóðþing- um beggja landanna. Íslendingar gengu rösk- lega til verksins. Alþingi samþykkti sambands- lagafrumvarpið 2. september og lögin voru staðfest í þjóðaratkvæðagreiðslu 19. október með tæplega 93% gildra atkvæða. Danska þingið var svifaseinna. Frumvarpið var ekki af- greitt fyrr en 29. nóvember og þá voru lögin send konungi sem staðfesti þau daginn eftir. Skeyti um það barst til Íslands þann sama dag. „Þarf að finna hentugri dag“ Samkoman sem haldin var við Stjórnarráðs- húsið 1. desember virðist hafa verið undirbúin með afar litlum fyrirvara, enda var hún stutt og fábrotin. Kannski voru menn ekki sannfærðir um að Danir myndu samþykkja lögin tím- anlega. Líklegra er þó að hér gæti áhrifa spænsku veikinnar sem um þær mundir lá eins og mara yfir þjóðlífinu öllu. Í Reykjavík höfðu á þriðja hundrað manns látist á stuttum tíma í nóvember. Hinn 25. nóvember mátti lesa í Morgunblaðinu að fullveldishátíð væri í undir- búningi meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn 1. desember. „Eigi vitum vér til þess að nokkuð slíkt sé í undirbúningi hér, en óneitanlega væri það þó vel viðeigandi, þó einhverjir erfiðleikar ef til vill kunni að vera á því sökum veikind- anna.“ Og blaðið bætti síðan við þessum orðum: „En framvegis verður erfitt að halda fyrsta dag desembermánaðar hátíðlegan sem þjóðhátíðar- dag Íslendinga. Daginn ber upp á versta tíma ársins, þegar allra veðra er von og hátíðahöld undir berum himni í flestum tilfellum ómögu- leg. Það þarf þá að finna einhvern hentugri dag til þess að minnast sjálfstæðis Íslands fram- vegis á viðeigandi hátt.“ Fagnaðarblæ skorti Samkoman við Stjórnarráðið 1. desember 1918 hófst kl. 11 að morgni. Nokkur hundruð manns voru viðstödd. Blásið var í lúðra og ræður flutt- ar og klukkan 12 stundvíslega var nýi ríkisfán- inn, tjúgufáninn, dreginn að húni í fyrsta sinn. Íslenskir fánar voru síðan dregnir upp víðast hvar í bænum að ósk stjórnarráðsins. Víða voru skreytingar í verslunargluggum. Engin önnur opinber samkoma var haldin, en um kvöldið var þó efnt til fagnaðar í Iðnó sem sum blöðin köll- uðu fullveldisskemmtun. Í frásögn Morgunblaðsins af samkomunni við Stjórnarráðshúsið daginn eftir segir: „Ís- lendingar eru þannig skapi farnir að þeir láta ógjarna bera á tilfinningum sínum. Þeir hrífast ekki eins og aðrar þjóðir af því sem fram fer, eða láta að minsta kosti ekki á því bera. Þetta kemur einna bezt í ljós á hátíðlegu stundunum, og svo var einnig í gær. Það virtist ekki vera neinn tiltakanlegur fagnaðarblær yfir þeim mikla mannfjölda, sem safnast hafði saman til að fagna fullveldinu, hvort sem það hefir stafað af skilningsleysi á þýðingu viðburðarins eða meðfæddu dullyndi þjóðarinnar.“ Stúdentar taka daginn í fóstur Ársafmælis fullveldisins 1919 var minnst með því að fánar voru dregnir á stengur víðs vegar um land. Sums staðar voru skip í höfnum fán- um skreytt. Lúðrafélagið Harpa lék nokkur lög framan við Stjórnarráðshúsið. Byrjað var á „Ó guð vors lands“ og endað á „Eldgamla Ísafold“. Ræðuhöld urðu engin. Frí var gefið í skólum Reykjavíkur og flestum búðum bæjarins var lokað um hádegi og svo var víðar í kaupstöðum. Meiri var viðhöfnin ekki þegar Íslendingar höfðu verið sjálfstæð þjóð í eitt ár. En sú venja skapaðist að gefa frí í skólum þennan dag. Ennfremur var verslunum og skrifstofum lok- að eftir hádegi. Þáttaskil urðu árið 1922 þegar stúdentar tóku fullveldisdaginn svo að segja í fóstur. Þeir efndu til samkomu með ræðuhöldum í Nýja bíói í Reykjavík. Að henni lokinni var gengið í skrúðgöngu að Alþingishúsinu, þar sem Há- skólinn var þá til húsa. Blaðið Lögrétta sagði að mikill mannfjöldi hefði þá verið á Austurvelli og lúðrasveit hefði leikið ættjarðarlög. Há- skólarektor ávarpaði fólkið af svölum þing- hússins. Næstu áratugina urðu svipaðar samkomur á vegum stúdenta uppistaðan í hátíðarhöld- unum í Reykjavík á fullveldisdaginn. Þetta voru fyrst og fremst menntamanna- samkomur. Dansleikir að kvöldi dagsins voru þó öllum opnir. En samkomur sniðar að þörf- um hins breiða fjölda voru engar og ekki er að sjá að nein tilbreyting hafi verið í boði fyrir börnin sem þó fengu frí úr skólunum. Stúd- entar merktu sér fullveldisdaginn enn sterkar með því að gera fjársöfnun til byggingar stúd- entagarðs að einu höfuðatriði dagskrárinnar. Svo var um langt árabil. Þá hefur það lengi verið hluti af dagskrá fullveldisdagsins hjá stúdentum að forystumenn þeirra leggi blóm- sveig á leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavalla- garði. Í stærri kaupstöðum úti á landi voru gjarn- an einhverjar samkomur þennan dag þar sem fyrirmenn fluttu ræður um sjálfstæðisbarátt- una. Þegar héraðsskólar með heimavistum Ljósmynd/Magnús Ólafsson Þegar styttan af fyrsta ráðherranum, Hannesi Hafstein, var tilbúin 1931 þótti við hæfi að afhjúpa hana á fullveldisdaginn. Mikið fjölmenni sótti athöfnina við Stjórnarráðið. Fullveldisdagurinn í 100 ár Afmælis fullveldisins 1. desember hefur ávallt verið minnst með einhverjum hætti. Veðurfar takmarkaði útihátíðir frá upphafi. Stúdentar tóku daginn snemma í fóstur. Það dró úr vægi fullveldisdagsins þegar 17. júní var valinn þjóðhátíðarardagur við stofnun lýðveldis 1944. Hér er stiklað á stóru um sögu dagsins. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.