Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands Þ egar Íslendingar fögnuðu fullveldi þann 1. desember 1918 var mjög erfitt ár senn á enda. Harður vetur, spænska veikin, Kötlugos; allt hafði lagst á eitt til að reyna þolrif landsmanna. Hátíðahöldin voru því skipulögð með hófstilltum hætti en samt varð margt sem lagðist á sveif með Íslendingum. Veðrið var fagurt. Íslenski fáninn var dreginn að hún í fyrsta sinn. Þegar fullveldinu var lýst fyrir framan Stjórnarráðið ætlaði húrrahrópunum aldrei að linna. Fullveldið skipti landsmenn máli. Sá sigur sem var staðfestur þann 1. desember 1918 sýndi að miklu má áorka þó að ytri aðstæður séu ekki endilega hagfelldar. Saga fullveld- isins hefur æ síðan einkennst af sóknarhug sem oft hefur skilað okkur langt. Íslendingar voru fámennasta þjóð sögunnar til að keppa á Heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu í sum- ar og er það afrek í sjálfu sér. Þó að íslenska viðhorfið sé reyndar að það sé ekki nema sjálf- sagt að ná árangri á við miklu stærri þjóðir. Svipaður baráttuandi liggur á bak við stofn- un Háskóla Íslands, byggingu Landspítalans, uppbyggingu menningarstofnana og baráttu fjöldahreyfinga á borð við verkalýðshreyf- inguna og kvennahreyfinguna sem breyttu samfélagi okkar til góðs. Almannatryggingar og vinnulöggjöf, fæðingarorlof og leikskólar; allt eru þetta mikilvægar stoðir samfélagsins sem við byggjum nú. Hið fullvalda Ísland 2018 væri líklega óþekkjanlegt þeim sem söfnuðust fyrir framan Stjórnarráðið 1918. Saga full- veldisins hefur ekki verið saga værðar og hvíldar. Unnið hefur verið unnið sleitulaust til að ná þeim mikla árangri sem náðst hefur. En margir draumar hafa ræst og Ísland trónir nú á toppi ýmissa þeirra lista sem mæla hagsæld og velferð. Samfélagið hefur orðið fjölbreytt- ara, uppruni landsmanna er nú fjölbreyttari en árið 1918 og þeir eiga ólíka sögu og bak- grunn. Aflgjafi að árangri Það er ekki nokkur vafi á því að fullveldið reyndist aflgjafi til að ná öllum þessum ár- angri. Við vildum ráða örlögum okkar sjálf og það reyndist farsælt þó að við höfum ekki liðið gegnum öldina átakalaust. Hitamál hafa reglu- lega skipt þjóðinni í ólík horn þar sem tekist hefur verið á um ólík sjónarmið. Ekki síst hef- ur það verið á vettvangi alþjóðlegra samskipta en líka í kjarabaráttu og jafnréttisbaráttu. Þegar áföll hafa dunið yfir hafa landsmenn sett þessi mál til hliðar og staðið saman sem einn. Samstaða mun skipta máli í þeim áskor- unum sem blasa við fullveldinu á komandi öld. Loftslagsbreytingar munu hafa veruleg áhrif á alla mannlega tilveru. Þar þurfum við að snúa vörn í sókn. Fyrstu skrefin hafa verið stigin með nýrri stórhuga aðgerðaáætlun í loftslags- málum þar sem stefnt er að orkuskiptum í samgöngum og stóraukinni kolefnisbindingu en fyrir liggur að endurskoða þarf áætlunina reglulega og fylgja henni aftur af krafti og baráttuhug ef árangur á að nást. Tæknibreytingar eru önnur stór áskorun sem mun hafa áhrif á öll svið mannlegs lífs; menntakerfi, vinnumarkað, stjórnmál og mannleg samskipti. Þær verða í forgrunni í allri stefnumótun stjórnvalda næstu árin með það að markmiði að tæknin þjóni fólki en ekki öfugt. Í öllum þeim umbreytingum má aldrei missa sjónar á mennskunni og mannúðinni sem verður að vera okkar leiðarljós. Enginn verði skilinn eftir Enn ein áskorunin er sú að tryggja að um leið og við tökumst á við þessar áskoranir stuðlum við um leið að auknum jöfnuði. Það er vel þekkt að miklar samfélagsbreytingar hafa oft þau áhrif að einhverjir hagnast og aðrir eru hliðarsettir. Við sjáum merki um að tæknibylt- ingin hefur haft þessi áhrif nú þegar. Því er mikilvægt að jöfnuður og velferð allra verði í öndvegi á næstu öld fullveldisins, að enginn verði skilinn eftir. Við hátíðahöld dagsins var lögð áhersla á að hlusta eftir sjónarmiðum barna og ungs fólks. Það segir mikið um samfélag hvernig það býr að börnum og það er sérstakt umhugsunarefni að andleg vanlíðan ungs fólks virðist fara vax- andi þrátt fyrir ytri velmegun. Það er sérstakt verkefni að tryggja að menntakerfið mæti öll- um börnum á þeirra eigin forsendum og eins að öll börn fái jöfn tækifæri. Enn fremur þarf aðgengi barna að góðri heilbrigðisþjónustu að vera tryggt. Síðast en ekki síst eiga raddir barna að heyrast oft og víða og áhrif þeirra á samfélag okkar að aukast. Á árinu höfum við minnst þess með ýmsum viðburðum um land allt að 100 ár eru liðin síð- an íslenska þjóðin fékk fullveldi. Í dag ná þessi hátíðahöld hámarki með sérstakri hátíða- dagskrá og viðburðum víða um land. Ég hvet landsmenn alla til að taka þátt en gefa sér líka tíma til að ígrunda hvert skuli stefna næstu hundrað árin og hvað skiptir okkur mestu máli. Eru það langir og strangir vinnudagar? Skoðanaskipti á samfélagsmiðlum um alla skapaða hluti í frítímanum? Kapphlaup um að eiga sem mest og helst meira en nágranninn? Eða liggur mesti ágóðinn í góðri samveru? Stöldrum við og sjáum fegurðina í mannlegu samfélagi. Gleðilega hátíð. Morgunblaðið/Hari Hundrað ára fullveldi ’ Það er ekki nokkur vafi á því að fullveldið reyndist aflgjafi til að ná öllum þessum árangri. Við vildum ráða örlögum okkar sjálf og það reyndist farsælt þó að við höfum ekki liðið gegnum öldina átakalaust. KATRÍN JAKOBSDÓTTIR, FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSLANDS OG FORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.