Morgunblaðið - 01.12.2018, Side 32

Morgunblaðið - 01.12.2018, Side 32
32 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands Á 100 ára afmæli fullveldisins finnur maður fyrir nálægð sögunnar í hversdeginum. Lítur yfir farinn veg og sér hvernig hreyfingar samfélagsins dag frá degi verða efniviður í Íslandssöguna. Finnur fyrir ákveðnum þunga á öxlunum en á sama tíma stolti yfir því að fá að taka þátt í sögu þjóð- arinnar sem stjórnmálamaður og formaður þess flokks sem hefur í sinni 102 ára sögu haft gríðarleg áhrif á framþróun Íslands. Fram- sókn á stóran þátt í uppbyggingu atvinnu- tækifæra á tíma fullveldis Íslands og þá ekki síður í menntamálum og heilbrigðiskerfinu. Okkur hefur farnast vel Það verður víst ekki sagt um okkur Íslend- inga að við séum fjölmenn þjóð. Þeim mun mikilvægari verður hver og einn og framlag hans til samfélagsins og þróunar þess. Kannski er það hluti af ástæðu þess hvað okk- ur hefur auðnast að hreyfa okkur hratt frá fá- brotnu samfélagi til þess fjölbreytta og öfluga samfélags sem við byggjum í dag. Okkur Ís- lendingum hefur farnast vel sem fullvalda þjóð. Samfélag okkar er ekki fullkomið frekar en önnur samfélög. Við erum þó lánsöm að búa við mikinn jöfnuð og líklega mesta samfélags- lega hreyfanleika þannig að fólk getur unnið sig upp samfélagsstigann með hjálp öflugs menntakerfis og námslánakerfis sem sitjandi ríkisstjórn ætlar að breyta í átt að meiri stuðningi og jöfnuði en við höfum þekkt hér á landi áður. Menntun er lykilatriði í því að gefa fólki byr undir vængi og þá um leið samfélag- inu. Menntun er grundvöllur allra framfara og við setjum ávallt manngildi ofar auðgildi. Vélin sem knýr samfélagið Atvinnulífið er vélin sem knýr samfélagið áfram. Framsókn hefur ávallt verið umhugað um að byggja upp sterkt og fjölbreytt at- vinnulíf um allt land. Án atvinnu veikjast bæði samfélög og einstaklingar. Með atvinnu kem- ur styrkur og áræðni sem skilar fólki og byggðarlögum auknum lífsgæðum og sam- félaginu öllu tekjum til að halda utan um þá sem minna mega sín. Stundum þarf að taka umdeildar ákvarðanir til að snúa vörn í sókn. Slíkt verður ávallt að gera með manngildið í öndvegi. Frjálslyndi og farsæld Síðasta öld er af mörgum kölluð öld öfganna. Á þeirri öld lék Framsókn og samvinnu- hugsjónin oft lykilhlutverk í að leiða saman ólík öfl við stjórn landsins. Eins og segir í grunnstefnu flokksins aðhyllumst við frjáls- lynda hugmyndafræði og teljum farsælast að ná fram niðurstöðu með samvinnu ólíkra afla og hagsmuna sem byggð er á hófsemi og heið- arleika. Líklega hefur sjaldan verið nauðsyn- legra að rödd og hugmyndafræði Framsóknar heyrist en einmitt nú þegar pólar stjórnmál- anna verða ýktari. Nú er mikilvægt að hlusta vel á ólíkar raddir og leiða mál til lykta með samvinnu. Sátt manns og náttúru Framtíðin brosir við okkur. Framfarir eru stöðugar, bæði hvað varðar efnahag okkar og lýðræðislegt samfélag. Verkefni okkar stjórn- málamannanna er að þróa áfram samfélagið með því að skapa aðstæður og umhverfi sem gefur öllum tækifæri til að blómstra. Hvert skref sem tekið er verður að hlúa að þeim eig- inleikum sem mikilvægastir eru fyrir mann- eskju og samfélag. Síðustu 100 ár hafa sýnt okkur að Íslendingum eru allir vegir færir. Nú bíður okkar allra verkefnið að efla og styrkja samfélagið í sátt manns og náttúru. Eins og áður er samvinnan þar í lykilhlut- verki. Ég óska Íslendingum öllum til hamingju á hundrað ára afmæli fullveldis Íslands. SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON, FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS OG SAMGÖNGU- OG SVEITARSTJÓRNARRÁÐHERRA Morgunblaðið/Árni Sæberg Samvinna í lykilhlutverki ’ Líklega hefur sjaldan verið nauð- synlegra að rödd og hugmynda- fræði Framsóknar heyrist en ein- mitt nú þegar pólar stjórnmálanna verða ýktari. Nú er mikilvægt að hlusta vel á ólíkar raddir og leiða mál til lykta með samvinnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.