Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 32
32 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
Fullveldi Íslands
Á
100 ára afmæli fullveldisins finnur
maður fyrir nálægð sögunnar í
hversdeginum. Lítur yfir farinn
veg og sér hvernig hreyfingar
samfélagsins dag frá degi verða
efniviður í Íslandssöguna. Finnur fyrir
ákveðnum þunga á öxlunum en á sama tíma
stolti yfir því að fá að taka þátt í sögu þjóð-
arinnar sem stjórnmálamaður og formaður
þess flokks sem hefur í sinni 102 ára sögu haft
gríðarleg áhrif á framþróun Íslands. Fram-
sókn á stóran þátt í uppbyggingu atvinnu-
tækifæra á tíma fullveldis Íslands og þá ekki
síður í menntamálum og heilbrigðiskerfinu.
Okkur hefur farnast vel
Það verður víst ekki sagt um okkur Íslend-
inga að við séum fjölmenn þjóð. Þeim mun
mikilvægari verður hver og einn og framlag
hans til samfélagsins og þróunar þess.
Kannski er það hluti af ástæðu þess hvað okk-
ur hefur auðnast að hreyfa okkur hratt frá fá-
brotnu samfélagi til þess fjölbreytta og öfluga
samfélags sem við byggjum í dag. Okkur Ís-
lendingum hefur farnast vel sem fullvalda
þjóð.
Samfélag okkar er ekki fullkomið frekar en
önnur samfélög. Við erum þó lánsöm að búa
við mikinn jöfnuð og líklega mesta samfélags-
lega hreyfanleika þannig að fólk getur unnið
sig upp samfélagsstigann með hjálp öflugs
menntakerfis og námslánakerfis sem sitjandi
ríkisstjórn ætlar að breyta í átt að meiri
stuðningi og jöfnuði en við höfum þekkt hér á
landi áður. Menntun er lykilatriði í því að gefa
fólki byr undir vængi og þá um leið samfélag-
inu. Menntun er grundvöllur allra framfara og
við setjum ávallt manngildi ofar auðgildi.
Vélin sem knýr samfélagið
Atvinnulífið er vélin sem knýr samfélagið
áfram. Framsókn hefur ávallt verið umhugað
um að byggja upp sterkt og fjölbreytt at-
vinnulíf um allt land. Án atvinnu veikjast bæði
samfélög og einstaklingar. Með atvinnu kem-
ur styrkur og áræðni sem skilar fólki og
byggðarlögum auknum lífsgæðum og sam-
félaginu öllu tekjum til að halda utan um þá
sem minna mega sín. Stundum þarf að taka
umdeildar ákvarðanir til að snúa vörn í sókn.
Slíkt verður ávallt að gera með manngildið í
öndvegi.
Frjálslyndi og farsæld
Síðasta öld er af mörgum kölluð öld öfganna.
Á þeirri öld lék Framsókn og samvinnu-
hugsjónin oft lykilhlutverk í að leiða saman
ólík öfl við stjórn landsins. Eins og segir í
grunnstefnu flokksins aðhyllumst við frjáls-
lynda hugmyndafræði og teljum farsælast að
ná fram niðurstöðu með samvinnu ólíkra afla
og hagsmuna sem byggð er á hófsemi og heið-
arleika. Líklega hefur sjaldan verið nauðsyn-
legra að rödd og hugmyndafræði Framsóknar
heyrist en einmitt nú þegar pólar stjórnmál-
anna verða ýktari. Nú er mikilvægt að hlusta
vel á ólíkar raddir og leiða mál til lykta með
samvinnu.
Sátt manns og náttúru
Framtíðin brosir við okkur. Framfarir eru
stöðugar, bæði hvað varðar efnahag okkar og
lýðræðislegt samfélag. Verkefni okkar stjórn-
málamannanna er að þróa áfram samfélagið
með því að skapa aðstæður og umhverfi sem
gefur öllum tækifæri til að blómstra. Hvert
skref sem tekið er verður að hlúa að þeim eig-
inleikum sem mikilvægastir eru fyrir mann-
eskju og samfélag. Síðustu 100 ár hafa sýnt
okkur að Íslendingum eru allir vegir færir.
Nú bíður okkar allra verkefnið að efla og
styrkja samfélagið í sátt manns og náttúru.
Eins og áður er samvinnan þar í lykilhlut-
verki.
Ég óska Íslendingum öllum til hamingju á
hundrað ára afmæli fullveldis Íslands.
SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON, FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS OG SAMGÖNGU- OG SVEITARSTJÓRNARRÁÐHERRA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samvinna í lykilhlutverki
’
Líklega hefur sjaldan verið nauð-
synlegra að rödd og hugmynda-
fræði Framsóknar heyrist en ein-
mitt nú þegar pólar stjórnmálanna
verða ýktari. Nú er mikilvægt að
hlusta vel á ólíkar raddir og leiða
mál til lykta með samvinnu.