Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 34

Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 34
34 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands Á aldarafmæli fullveldisins líta ýmsir yfir farinn veg, enda verð- ur glæsilegur árangur íslensku þjóðarinnar á síðustu öld lengi í manna minnum. Við breyttumst á hundrað árum úr því að vera veikburða ný- lenda á jaðri heimsins í sjálfstæða burðuga þjóð meðal þjóða. En það væri ekki úr vegi á þessum tíma- mótum að spyrja sig hvað við þurfum að gera til að fullveldishátíðin eftir hundrað ár – þ.e. árið 2118 – verði tífalt meira tilefni. Auðvitað veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér og fæstir spádómar eru líklegir til að reynast sannir út árið, hvað þá öldina. En afstaða okkar til framtíðarinnar byggist fyrst og fremst á tvennu: því sem við trúum að komi til með að gerast og því sem við viljum að gerist. Besta tilfellið er auðvitað að okkar per- sónulega spá gangi eftir en að við fáum líka það sem við vildum. En þegar við horfum á framtíðir í sam- hengi samfélaga vandast málið. Það er ekki nóg með að allir hafi sína persónulegu út- gáfu af trú og vilja, heldur er stjórnkerfi til staðar sem hefur stundum sína eigin fram- tíðarsýn – sem er stundum alveg ótengd framtíðarsýn borgaranna. En slíkt myndi reynast okkur dýrkeypt, og því er betra að allir stilli saman strengi. Í það minnsta þurfum við sameiginlega sýn á hvað er lík- legt að gerist. Raunveruleikinn er ekki alltaf samvinnu- þýður, en með góðum spám og góðri áætl- anagerð getum við í það minnsta reynt að móta framtíð þjóðarinnar á hátt sem reynist okkur vel. Stórar hugmyndir líklegri til árangurs Það virðist algilt þegar skoðaðar eru til- raunir þjóða til að móta sína framtíð fram til þessa að stórar og skýrar hugmyndir eru mun líklegri til árangurs en litlar hugmynd- ir. Eins og arkitektinn Daniel Burnham orðaði það: „Gerið engar smáar áætlanir; þær skortir galdrana sem hræra í blóði manna og munu því líklegast að engu verða.“ Á móti kemur að stórar strategískar fjár- festingar í óljósri framtíð virðast borga sig þegar þjóðin stendur heil að baki þeim. Við getum tekið dæmi um Panamaskurðinn, Apollo-áætlun Bandaríkjanna, ARPANet- rannsóknarverkefnið sem leiddi af sér int- ernetið, stofnun Airbus og vindorkufjárfest- ingar í Danmörku. Ekkert af þessu var örugg fjárfesting, en á bak við öll þessi stór- verk manna voru stórar hugmyndir sterkra þjóða. Það er svo opin spurning hvert við eigum að stefna þjóðinni. Tækifæri fyrir næstu öld Sumum þætti ágætis stórvirki að ljúka loks lýðveldisstofnun hér með upptöku á stjórnarskrá þjóðarinnar. Öðrum þætti gott að vinna markvisst að því að auka fjöl- breytni í atvinnulífinu til að hlífa landinu við áföllum í einstökum atvinnugreinum. Ein- hverjir myndu sjá það sem stórvirki að taka upp stöðugan gjaldmiðil í landinu. En þetta eru allt saman atriði sem má laga á örfáum árum ef vilji væri fyrir hendi. Stærri hugmynd, sem yrði verulegur akk- ur í því fyrir Ísland að vinna að, er að verða fyrst allra landa til að ná kolefnishlutleysi. Þetta er hvorki lítil né auðveld hugmynd, því skömm okkar í dag hljóðar upp á 3 millj- ónir tonna koltvísýringsígilda á ári. Það er áberandi minna en flestra landa, en þó ástand sem þarf að laga. Fáum dylst mikil- vægi þessa verkefnis, en það hefur minna verið fjallað um þá staðreynd að það land sem nær fyrst allra landa að ná hlutlausu kolefnisfótspori mun njóta gríðarlegrar vel- vildar í alþjóðasamfélaginu, og fyrirtæki frá því landi sem bjóða upp á loftslagslausnir munu geta selt öllum þær. Það má ekki van- meta áhrifamátt þess að ríki og þjóð vinni samhent að þessu stóra markmiði. Á sama hátt og Íslendingar hafa ítrekað á liðinni öld sameinast um stórvirki er nú tækifæri til að búa að góðri framtíð fyrir landið með því að ákveða saman að önnur öld íslensks fullveldis verði öld stórra hug- mynda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Öld stórra hugmynda ’ Á sama hátt og Íslendingar hafa ítrekað á liðinni öld sameinast um stórvirki er nú tækifæri til að búa að góðri framtíð fyrir landið með því að ákveða saman að önnur öld íslensks fullveldis verði öld stórra hugmynda. SMÁRI MCCARTHY, ÞINGMAÐUR PÍRATA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.