Morgunblaðið - 01.12.2018, Síða 37

Morgunblaðið - 01.12.2018, Síða 37
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 37 Fullveldi Íslands E ngum blöðum er um það að fletta að fullveldið hefur haft ríka þýðingu fyrir Ísland. Það gildir um hvort tveggja: Efnahag og menningu þjóð- arinnar. Fullveldislögunum, eða sambandslögunum eins og þau heita formlega, svipar að því leyti til stjórnarskrár að þau geyma fyrst og fremst grundvallarákvarðanir um stöðu landsins. Með þeim fékk Ísland nýjan sjálfstæðan sess í sam- félagi þjóðanna. Þó að Íslandi hafi farnast vel þegar á heildina er litið á liðinni öld verður ekki fram hjá því horft að ýmis veigamikil ákvæði í fullveldislög- unum hafa staðist misvel tímans tönn. Ákvæði um hlutleysi og norrænt myntsamstarf Eitt af þýðingarmestu ákvæðum laganna fól í sér yfirlýsingu um ævarandi hlutleysi. Um það var algjör einhugur. Eftir rúma tvo áratugi höfðu ytri aðstæður, sem við höfðum engin áhrif á, þó gert hlutleysið að engu. Samningar um hervernd Bandaríkjanna og ákvörðunin um aðild að Atlantshafsbandalaginu fólu svo í sér formlega kúvendingu frá fullveldislögunum. Minnihluti þjóðarinnar taldi reyndar lengi vel að með þessu fráhvarfi frá stefnu sam- bandslaganna hefði Ísland í raun glatað full- veldi sínu. Svo kom að því fyrir tveimur árum að Alþingi samþykkti án mótatkvæða þjóðarör- yggisstefnu þar sem því er slegið föstu að aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarf við Bandaríkin séu ein af forsendum fullveldis Íslands. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki breytt þessari stefnu þrátt fyrir ólíkar áherslur stjórnarflokkanna til varnarsamstarfsins. Með öðrum orðum: Hundrað árum síðar er einhugur á Alþingi um að treysta fullveldi landsins með gagnstæðum hætti við það sem fullveldislögin mæltu fyrir um. Við höfum hag- nýtt frelsið til að endurmeta grundvallaratriði í ljósi breyttra aðstæðna. Það hefur reynst happadrjúgt. Annað grundvallarákvæði fullveldislaganna mælti fyrir um að Ísland yrði áfram aðili að Norræna myntsambandinu meðan það héldist. Menn voru sem sagt á einu máli um að stöðug mynt í alþjóðlegu samstarfi treysti betur full- veldi landsins en sjálfstæð mynt sem ekki væri hlutgeng í milliríkjaviðskiptum sökum óstöð- ugleika. Þetta var mjög í anda hugsjóna Jóns forseta um frjáls viðskipti og hlutverk gjald- miðla. Vegna aðstæðna sem við réðum ekki við varð þetta ákvæði að engu þegar Norræna mynt- sambandið leystist upp skömmu eftir lok fyrri heimstyrjaldarinnar. Þannig urðu góð áform jafn skjótt að engu og við höfum aldrei náð tök- um á gjaldmiðilsmálunum síðan. Ekki er of- mælt að það sé einn helsti vandi hagstjórnar á Íslandi. Sterkari staða í fjölþjóðasamstarfi Það reyndi fljótt á fullveldið í samskiptum við aðrar þjóðir. Aðeins þremur árum eftir að við urðum fullvalda ríki nýttu Spánverjar yfirburða stöðu sína í tvíhliða viðskiptasamningi og knúðu okkur til að falla að hluta frá vínbanni sem sett hafði verið á grundvelli þjóðaratkvæðis. Þannig tryggðum við áfram hindrunarlausan aðgang að mikilvægasta markaði landsins fyrir aðal út- flutningsvöruna, saltfiskinn okkar. Einhverjir geta sagt sem svo að Spánverjar hafi með þessu tekið af okkur fullveldisráðin um það hvernig skipa ætti áfengissölumálum hér. Í reynd var þetta þó aðeins lexía um þá ein- földu staðreynd að í tvíhliða viðskiptasamn- ingum hafa stærri og voldugri þjóðir jafnan undirtökin. Ég held á hinn bóginn að við höfum sýnt styrk ungrar og smárrar fullvalda þjóðar með því að semja. Og fengum meira að segja um tíma forskot á Norðmenn sem þráuðust við að gefa eftir vegna fullveldissjónarmiða. Reynslan hefur því kennt okkur að staða okkar sem lítillar þjóðar í viðskipta- og efna- hagssamvinnu er sterkari í fjölþjóðasamstarfi. Þegar Bretar og Hollendingar gerðu kröfu á ís- lensk stjórnvöld um ríkisábyrgð á Icesave níu áratugum eftir Spánarsamningana réð það úr- slitum að við gátum varist með reglum sem Evrópusambandið hafði sett um þessi efni og EFTA-dómstóllinn staðfesti. Ef samband okkar við Breta hefði byggst á tvíhliða samningi er aftur á móti líklegt að farið hefði á sama veg og í glímunni við Spánverja. Með aðild að fjölþjóðlegum efnahags- og við- skiptasamningi, EES-samningnum, höfðum við ekki aðeins náð því marki að bæta efnahaginn heldur einnig að tryggja fullveldi landsins betur en í árdaga þess. Þegar spurt er hver sé framtíð hins fullvalda Íslands er ekki efni til annars en bjartsýni um vöxt og viðgang þjóðarinnar. Fjölmörg verkefni blasa við. Í ljósi fullveldisafmælisins er þó nær- tækast að horfa til þeirra áforma í fullveldislög- unum sem okkur tókst aldrei að koma í fram- kvæmd. Það er enn svo að stöðugur gjaldmiðill sem er hlutgengur í milliríkjaviðskiptum myndi styrkja efnahagslega stöðu þjóðarinnar og þar með treysta fullveldið. Núverandi skipan gjald- miðilsmála veikir ekki aðeins þjóðarbúskapinn heldur er hún undirrót alvarlegs misréttis og ranglætis í samfélaginu. Sniðganga gagnvart gjaldmiðlinum birtist með ýmsum hætti hjá þeim sem það geta; og það er ekki almenningur. Ríkisvaldið lætur stærsta fyrirtæki sitt, Lands- virkjun, starfa utan krónuhagkerfisins. Flest öflugustu fyrirtækin hafa líka farið með sam- þykki ríkisvaldsins út úr krónuhagkerfinu. Smærri fyrirtæki og launafólk er á hinn bóginn knúið til að nota krónuna. Í þessu er falið mis- rétti sem erfitt er að verja og vandséð hvernig unnt er að styðja skynsamlegum rökum. Frjálslyndi og víðsýni Jóns forseta Í ritgerð eftir Ásgeir Jónsson hagfræðing sem birtist í riti Hins íslenska bókmenntafélags um hugsjónir og stefnumál Jóns Sigurðssonar í til- efni af tvöhundruð ára afmæli hans segir um þetta álitaefni: „Því er ljóst að hvorki Jón Sig- urðsson né nokkur annar af leiðtogum sjálf- stæðisbaráttunnar leit á sjálfstæða mynt og/ eða sjálfstæða peningamálastjórn sem fullveld- ismarkmið í sjálfu sér. Af því sem Jón forseti ritaði verður ekki annað séð en hann hafi talið myntsamvinnu við önnur lönd heppilegan kost.“ Gjaldmiðilsmálið er stórt óleyst verkefni frá 1918. Á þessum tímamótum er í því sambandi alveg óhætt að segja hátt og skýrt: Meira, meira og enn meira af frjálslyndi og víðsýni Jóns forseta. Morgunblaðið/Árni Sæberg Meira af frjálslyndi Jóns forseta ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR, FORMAÐUR VIÐREISNAR ’ Það er enn svo að stöðugur gjaldmiðill sem er hlutgengur í milliríkjaviðskiptum myndi styrkja efnahagslega stöðu þjóðarinnar og þar með treysta fullveldið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.