Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 38

Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 38
38 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands Þ að var þegjandalegur mannfjöldi, sem safnaðist saman í kringum Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg sunnudaginn 1. desember 1918. Ár- ið hafði hafist á einhverri mestu fimbultíð í manna minnum, Frostavetrinum mikla; mannskæð stórstyrjöld hafði geisað allt sumarið í Norðurálfunni; um haustið hafði spænska veikin borist til Íslands og kostað mörg hundruð mannslíf; Katla hafði gosið með svo miklum krafti, að eldstrókarnir sáust frá Reykjavík; og um miðjan nóvember höfðu fréttir hermt, að Norðurálfuófriðnum mikla væri að vísu lokið, en valdhöfum verið steypt af stóli í Þýskalandi og víðar. Á hádegi þennan vetrardag sveif íslenski ríkisfáninn að húni á Stjórnarráðshúsinu, og um leið voru fánar dregnir á stöng víðs vegar um bæinn og ann- ars staðar á Íslandi. Tilkynnt var, að Ísland væri orðið fullvalda ríki í konungssambandi við Dana, eins og samist hafði um milli Íslendinga og Dana þá um sumarið. Frá ytri höfninni kvað við 21 skot frá dönsku varðskipi til heið- urs hinu nýja íslenska konungsríki. Lúðrasveit lék þjóðsöngva Danmerkur og Íslands, og gestir hrópuðu húrra fyrir konungi, Dan- mörku og Íslandi. Hvenær varð Ísland ríki? Því var mannfjöldinn við Stjórnarráðshúsið al- varlegur í bragði, að margt hafði gengið á árið á undan og ærin verkefni biðu einnig hins nýja ríkis, sem fámenn þjóð og fátæk hafði gerst svo djörf að stofna eftir sjötíu ára þref við Dani, sem voru lengi að skilja, að Íslendingar voru ekki Danir, þótt þeir vildu gjarnan vera vinir þessarar geðfelldu menningarþjóðar, sem tilviljun hafði tengt við Ísland allt frá 1380, er norska krúnan féll í hendur Danakon- ungi. Það er síðan álitamál, hvort þjóðin var í raun að endurheimta fornt fullveldi eða öðlast það í fyrsta sinn. Tvær kenningar um ríkið eru fyrirferðarmestar í stjórnmálaheimspeki. Aðra má kenna við Hegel, og hún er, að ríkið sé vettvangur málamiðlana, einingarafl. Sam- kvæmt henni mátti segja, að til hefði verið ís- lenskt ríki fullvalda þjóðar allt frá stofnun Al- þingis sumarið 930, enda gerðu Íslendingar fyrsta milliríkjasamninginn (við Noreg) árið 1022. Meginstefið í Íslendingasögum er ein- mitt, hvernig miðla megi málum með ein- staklingum, sem búa við lög án ríkisvalds. Þótt Íslendingar hefðu selt fullveldið í hendur Danakonungi með einveldishyllingunni 1662, endurheimtu þeir það, þegar hann afsalaði sér einveldi 1849, og Dana var aðeins að við- urkenna það, eins og Jón Sigurðsson, leiðtogi Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni, hélt fram. Hina kenninguna um ríkið setti Weber fram, en samkvæmt henni er það stofnun með einka- rétt á að beita valdi á tilteknu svæði. Ef miðað er við þessa skilgreiningu, þá varð íslenskt ríki líklega ekki til fyrr en 1. desember 1918. Fyrir þann tíma höfðu Danir allt úrslitavald á Ís- landi, og önnuðust þeir þess vegna til dæmis landhelgisgæslu, en heldur slælega. Það voru Danir, en ekki Íslendingar, sem gerðu samn- ing við Breta 1901 um þriggja mílna landhelgi, sem rann ekki út fyrr en 1951. Ekki verður hins vegar um það deilt, að ís- lenska konungsríkið, sem stofnað var 1. des- ember 1918, var ríki í skilningi beggja, Hegels og Webers: í senn vettvangur málamiðlana og stofnun með einkarétt á valdbeitingu. Tóku Ís- lendingar landhelgisgæslu smám saman í eigin hendur næstu tvo áratugi. Haustið 1921 reyndi mjög á hið veikburða íslenska ríki. Komm- únistar höfðu rænt völdum í Rússlandi fjórum árum áður og stefndu leynt og ljóst að heims- byltingu. Árið 1921 neitaði hópur Íslendinga undir áhrifum þeirra að hlýða yfirvöldum, sem mælt höfðu að ráði lækna fyrir um brottvísun erlends gests þeirra, en hann hafði reynst vera með smitsjúkdóm í augum. Þurfti þá að safna varaliði til stuðnings lögreglu í því skyni að framfylgja boði yfirvalda. Næstu árin færðist þessi hópur í aukana og stofnaði haustið 1930 kommúnistaflokk Íslands, sem óðar gekk í Al- þjóðasamband kommúnista. Hafnaði flokk- urinn algerlega því stjórnarfyrirkomulagi, sem Íslendingar höfðu þegið með stjórn- arskránni 1874 og gerði ráð fyrir sömu al- mennu mannréttindum og annars staðar á Vesturlöndum, dreifingu valdsins og takmörk- un þess. Þessi flokkur vildi gera byltingu og safna öllu valdi saman á einni hendi, og skáld hans, Jóhannes úr Kötlum, kvað: Sovét-Ísland, óskalandið, – hvenær kemur þú? Árin 1929-1938 sendi íslenski flokkurinn alls 23 manns í leynilegar þjálfunarbúðir fyrir byltingarmenn í Moskvu, miklu fleiri hlutfalls- lega en nokkur annar kommúnistaflokkur í heiminum, enda tókst kommúnistum að sigra lögregluna í miklum götubardaga í Reykjavík 9. nóvember 1932, Gúttóslagnum svonefnda, eins og formaður kommúnistaflokksins, Brynj- ólfur Bjarnason, skrifaði hreykinn yfirboð- urum sínum í Moskvu um skömmu síðar. Hlutleysi og hervernd Hið nýja konungsríki norður í Dumbshafi lýsti strax yfir hlutleysi, eins og Danir höfðu gert í Norðurálfuófriðnum mikla, og gekk ekki í Þjóðabandalagið, sem stofnað hafði verið eftir ófriðinn. En yfirlýsingar um hlutleysi eru marklitlar, nema eitthvert afl sé á bak við þær. Í raun og veru naut Ísland verndar breska flotans árin milli stríða. Bretar höfðu engan áhuga á að leggja Ísland undir sig, en þeir vildu koma í veg fyrir, að önnur stórveldi hefðu hér veruleg ítök. Væntanlega var það skýr- ingin á því, að Ísland fylgdi ekki með, þegar Svíar fengu Noreg 1814 í sárabætur fyrir Finnland, þótt verið hefði norskt skattland. Bretar töldu sér ekki stafa nein hætta af Dön- um. Þrátt fyrir óbeina vernd Breta fundu Ís- lendingar þó til vanmáttar síns fyrstu áratugi hins nýja konungsríkis. Brýnasta úrlausn- arefnið var að selja fisk, einu vöruna, sem þjóðin átti nóg af. Þótt samþykkt hefði verið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1908 að banna all- an innflutning áfengis til landsins, hurfu Ís- lendingar til dæmis árið 1922 frá banni á inn- flutningi léttra vína að kröfu Spánverja, og þeir tóku ekki þátt í viðskiptaþvingunum Þjóðabandalagsins gegn Ítalíu árið 1935 vegna Eþíópíustríðsins. Vildu þeir ekki missa góða markaði fyrir fisk á Spáni og Ítalíu. Lengst gengu Íslendingar í að skerða fullveldið vegna viðskiptahagsmuna vorið 1939, þegar Her- mann Jónasson, þá forsætis- og dóms- málaráðherra, lét að kröfu þýska ræðismanns- ins í Reykjavík gera upptæka bók um fangabúðir nasista. Í Norðurálfuófriðnum mikla 1914-1918 höfðu Bretar tekið í sínar hendur stjórn allra siglinga til og frá Íslandi, og þegar seinni heimsstyrjöldin skall á, töldu þeir sig verða að koma í veg fyrir, að þýskir nasistar legðu undir sig landið, og hernámu það þess vegna vorið 1940. Var það vissulega frekleg skerðing á full- veldi Íslands, en í hjarta sínu voru flestir Ís- lendingar því samt fegnir, að Bretar hernámu landið, ekki Þjóðverjar, eins og Ólafur Thors trúði breska sendiherranum fyrir, þegar sá gekk á fund ríkisstjórnarinnar 10. maí 1940. Íslendingum tókst síðan með lagni og hygg- indum að semja sem fullvalda þjóð við Banda- ríkjamenn vorið 1941 um, að þeir tækju við hervernd landsins, en breska hernámsliðið hyrfi á brott. Með því sögðu Íslendingar í raun skilið við hlutleysisstefnuna frá 1918. Þótt kommúnistar, sem nú kölluðu sig sósíalista, hefðu hægt um sig í baráttunni fyrir Sovét- Íslandi fyrstu árin eftir að Hitler réðst á sinn fyrri bandamann, Stalín, sumarið 1941, hófu þeir eftir stríð harða baráttu gegn frekara varnarsamstarfi við Vesturveldin, eins og Ein- ar Olgeirsson, formaður Sósíalistaflokksins, fékk fyrirmæli um í Moskvu á leynifundi með Georgí Dímítrov haustið 1945. Áttu lögreglan og varalið hennar fullt í fangi með að ráða við ofbeldisseggi úr þeirra röðum í götuóeirðum í Reykjavík árin 1946 og 1949. Sósíalistar nutu þessi árin miklu meira fylgis en komm- únistaflokkar í öðrum Norðurálfulöndum, fengu hvorki meira né minna en 19,5% at- kvæða í þingkosningunum 1946 og sama hlut- fall árið 1949. Voru orsakirnar eflaust marg- þættar. Gegn íslenskum þjónum hins austræna jötuns Í hinum hörðu átökum um varnir landsins eftir síðari heimsstyrjöld nutu íslenskir komm- únistar og sósíalistar þess, að í menningarlífi landsins höfðu þeir yfirburði. Þeir höfðu eftir fyrirmælum frá Alþjóðasambandi kommúnista stofnað Félag byltingarsinnaðra rithöfunda árið 1933, bókaútgáfuna Heimskringlu árið 1935 og bókafélagið Mál og menningu árið 1937, en það varð strax öflugt. Nokkrir kunn- ustu rithöfundar landsins voru ákafir stal- ínistar, þar á meðal Halldór Kiljan Laxness og Þórbergur Þórðarson að ógleymdum Jóhann- esi úr Kötlum. Vörðu þeir með ráðum og dáð ofbeldisverk rússnesku ráðstjórnarinnar, árásirnar á Pólland og Finnland 1939, hernám Eystrasaltsríkja 1940 og valdarán komm- únista í löndum Mið- og Austur-Evrópu eftir stríð, jafnframt því sem þeir vísuðu á bug frá- sögnum ótal sjónarvotta um fjöldaaftökur, hungursneyðir af mannavöldum, þrælabúðir og nauðungarflutninga. En nú risu nokkrir dáðustu rithöfundar þjóðarinnar upp gegn ís- lenskum þjónum hins austræna jötuns. Þeir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, Tómas Guð- mundsson og Guðmundur G. Hagalín höfðu allir staðið ungir menn við Stjórnarráðshúsið 1. desember 1918 og horft á, þegar íslenski rík- isfáninn var í fyrsta sinn dreginn að húni. Dav- íð minntist þá föður síns og annarra eyfirskra bænda, sem höfðu rætt um sambandsmálið í baðstofunni heima í Fagraskógi: „Hver átti að ráða hér ríkjum? Íslendingar sjálfir. Þeir höfðu helgað sér landið með blóði og sveita og þúsund ára erfðum.“ Tómasi fannst hann standa frammi fyrir þjóð, sem komin væri um langan veg út úr nótt og dauða, en hefði lifað af vegna þess, að hún hefði varðveitt vonina um þennan dag í hjarta sínu. Hagalín sá fyrir sér ósýnilega fylkingu frá fyrri tíð, frækna for- ingja, en líka vaðmálsklædda bændur og sjó- menn í skinnstökkum, sem átt hefðu sér draum um frelsi og fullveldi. Hagalín varð fyrstur til að skera upp herör gegn liðsmönnum Sovét-Íslands. Hann birti þegar árið 1943 bókina Gróður og sandfok um óholl áhrif kommúnista í íslensku menningar- lífi. Tómas flutti kvæði á Árnesingamóti í júní Að fengnu fullveldi: Ísland eða Sovét-Ísland? Flestir ráðamenn þeirrar litlu þjóðar, sem varð fullvalda í skammdeginu fyrir hundrað árum, hafa fylgt fordæmi Staðarhóls-Páls, sem kraup forðum fyrir konungi með öðrum fæti, en stóð í hinn og sagði: Ég lýt hátigninni, en stend á réttinum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson hannesgi@hi.is ’ Í hinum hörðu átökum um varnir landsins eftir síðari heimsstyrjöld nutu íslenskir kommúnistar og sósíalistar þess, að í menningar- lífi landsins höfðu þeir yfirburði. ’ Kalda stríðið stóð ekki milli tveggja stórvelda, heldur um það, hvort vestræn lýðræðisríki ættu að veita fyrirhugaðri heims- byltingu kommúnista og land- vinningum Rússa viðnám.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.