Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 Fullveldi Íslands Í sland hefur leitast eftir náinni samvinnu við nágrannaríki allt frá fullveldisstofnun 1. desember 1918. Þannig hafa landsmenn náð að styrkja efnahaginn, tryggja öryggi og renna styrkari stoðum undir menningu og nýsköpun. Samvinnan hefur verið það náin og á þeim forsendum að í raun er hægt að tala um að Ísland hafi leitað skjóls hjá vinaþjóðum. Allt frá landnámi hefur Ísland verið í skjóli stærri og voldugri ríkja þó að vissulega hafi verulegur kostnaður fylgt náinni samvinnu á stundum. Í þessari grein verður leitast við að greina hvernig íslenskir ráðamenn hafa frá fullveldisstofnun leitast við að styrkja fullveldi Íslands. Stærð ríkja virðist ekki skipta sköpum þeg- ar kemur að velsæld og mörg smáríki hafa sýnt fram á að þau eru fullfær um að byggja upp skilvirka stjórnsýslu. Í samanburði við stór ríki eru lítil ríki hins vegar háðari alþjóða- viðskiptum vegna lítils heimamarkaðar og eiga erfiðara með að verjast utanaðkomandi árás- um. Einnig þurfa þau að vera meira vakandi fyrir því að nýjustu straumar og stefnur berist til þeirra. Auk þessa þá getur stjórnsýsla lítils ríkis og þar með talið utanríkisþjónusta aldrei orðið eins umfangsmikil og stórs ríkis. Ofangreind staða smáríkja kallar á að þau bregðist við og íhugi vandlega hvernig þau tryggi sem best fullveldi sitt. Samkvæmt kenningunni um skjól í smáríkjafræðum, af- sprengi alþjóðastjórnmála, leita lítil ríki skjóls hjá einstaka ríkjum og alþjóðastofnunum til að tryggja góð lífskjör, varnir og nýtímavæðingu. Þannig greinir skjólskenningin að smáríki sækist eftir þrenns konar skjóli; efnahagslegu, pólitísku og félagslegu. Með því að leita skjóls leitast smáríki við að draga úr líkum á því að þau verði fyrir ytri áföllum, fá aðstoð við að glíma við áföll ef þau dynja yfir og njóta í kjöl- farið hjálpar við endurreisn. Efnahaglegt skjól Þrátt fyrir harða sjálfstæðisbaráttu lögðu ís- lenskir ráðamenn sig fram um það að vinna ná- ið með dönskum stjórnvöldum á millistríðs- árunum til að styrkja nýfengið fullveldi. Danmörk hætti beinum fjárstuðningi til Ís- lands við fullveldisstofnun en hélt áfram að skilgreina Ísland sem hluta af dönsku mark- aðssvæði. Þetta skipti sköpum fyrir útflutning frá landinu þar sem oft var krafist vöruskipta í viðskiptum og innflutningur sem ekki kom Ís- lendingum að notum fór til Danmerkur. Sam- skipti landanna rofnuðu hins vegar þegar Þjóðverjar hernámu Danmörku vorið 1940. Ísland leitaði einnig efnahaglegs skjól hjá Bretlandi en íslensk stjórnvöld tengdu krón- una við breska pundið á fyrri hluta 3. áratug- arins. Þetta leiddi til stöðugasta gengistíma- bils í sögu Íslands sem varði til ársins 1939. Eftir gengisfellingu það ár var krónan tengd bandaríkjadal og hélst sú tenging í áratug. Hernám Breta árið 1940 var vissulega áfall fyrir fullvalda þjóð en Bretar tryggðu alþjóða- viðskipti og herverndarsamningurinn við Bandaríkin sem gerður var árið 1941 tryggði ekki einungis varnir heldur einnig viðskipti og umfangsmikla uppbyggingu innanlands og efnahagsaðstoð. Í lok styrjaldarinnar hafði skjól Breta og Bandaríkjanna gert Ísland að einu ríkasta landi heims. Erfitt er að sjá fyrir sér efnahag Íslands án stuðnings Bandaríkjanna á eftirstríðsárunum og þeirrar fjárhagslegu aðstoðar sem Banda- ríkin veittu Íslandi allt til ársins 2006. Sama má segja um mikilvægi þess að vera hluti af dönskum markaði á millistríðsárunum þó að minna hafi farið fyrir því í opinberri umræðu. Ein meginástæða þess að íslensk stjórnvöld ákváðu að gerast stofnaðilar að Alþjóðabank- anum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í lok seinni heimsstyrjaldarinnar var viðleitni til að styrkja efnahagslega stöðu landsins á óvissu- tímum. Ísland naut um langt árabil sérfræði- þekkingar, styrkja og hagstæðra lána frá þess- um stofnunum og nú síðast í kjölfar banka- hrunsins. Norðurlöndin veittu Íslendingum einnig mikilvægt skjól með því að taka þátt í fjármögnum láns á vegum Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins eftir hrun. Þau veittu Íslandi einnig fjárhagsstuðning við inngönguna í EFTA árið 1970. Eftir að draga fór úr beinum efnahagsstuðn- ingi Bandaríkjanna á 7. áratug síðustu aldar áttu íslensk stjórnvöld ekki annan kost en að reyna að tryggja hagstæðari markaðsaðgang að mörkuðum Evrópuríkja. En samhliða EFTA-aðildinni og áður en að aðildinni að EES kom höfðu Íslendingar notið efnahags- legs skjóls af sameiginlegum norrænum vinnu- markaði. Íslensk stjórnvöld hafa þannig ætíð leitað efnahagslegs skjóls með því að tryggja sér að- ild að stærri markaði og með þátttöku í alþjóð- legu regluverki sem setur leikreglur á mark- aðnum. Þetta hefur styrkt efnahagslegt full- veldi Íslands. Pólitískt skjól Sú staðreynd að dönsk stjórnvöld sáu um framkvæmd utanríkisstefnu Íslands á milli- stríðsárunum tryggði að þau veittu mikilvægt diplómatískt skjól við gerð viðskiptasamninga. Íslensk stjórnvöld höfðu í fyrstu enga burði, hvorki þekkingarlega né stjórnsýslulega, til að sinna þessari samningagerð. Dönsk stjórnvöld tryggðu einnig pólitískt skjól sem landið þurfi á að halda með landhelgisgæslu alveg fram að síðari heimsstyrjöldinni. Landhelgisgæslan nýtur enn í dag umtalsverðs skjóls af sam- vinnu við dönsk stjórnvöld. Danmörk var hins vegar, allt frá byrjun 19. aldar, of veikburða til að veita Íslandi skjól þegar mest á reyndi, það er í Napóleónstríð- unum og fyrri og seinni heimsstyrjöldinni. Í seinni heimsstyrjöldinni tóku Bandaríkin við sem skjólsveitandi af Bretum og í kjölfarið veitti varnarsamvinnan við Bandaríkin og að- ildin að NATO ekki aðeins hernaðarlegt skjól heldur einnig diplómatískt skjól þegar kom að útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Ísland nýtur einnig diplómatísks skjóls af náinni samvinnu við ríki Norðurlandanna innan alþjóðastofnana og í samningaviðræðum við önnur ríki. Íslands naut skjóls af reglum og viðmiðum alþjóðakerfisins á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna rétt eins og skjólskenningin kveður á um. Fullveldi lítilla ríkja ber að virða rétt eins og fullveldi stærri ríkja. Ísland naut ekki síst al- þjóðlegrar þróunar í hafrétti, þegar kom að út- færslu fiskveiðilögsögunnar. Breytingar í haf- rétti, sem bundu hendur stærri og voldugri ríkja, gerðu Íslandi kleift að stækka fiskveiði- lögsöguna. Í kjölfar brotthvarfs bandaríska hersins árið 2007 hafa íslensk stjórnvöld brugðið á það ráð að gera öryggissamninga við önnur nágranna- ríki eins og Kanada, Noreg, Danmörku og Bretland og tryggja tímabundnar loftvarnir með viðveru flugherja Finnlands og Svíþjóðar og tiltekinna NATO-ríkja á landinu. Ísland nýtur einnig góðs af náinni tæknisamvinnu við Noreg hvað varðar netöryggi og varnarmál. Þessi ríki gegna því veigameira hlutverki í vörnum landsins en áður, þar sem þau eru orð- in beinir skjólsveitendur. Aðildin að Schengen hefur einnig veitt víðtækara og mikilvægara skjól en margir töldu í fyrstu að yrði raunin, sérstaklega á sviði lögreglusamstarfs. Að þessu sögðu má draga þá ályktun að það pólitíska skjól sem Ísland hefur notið í formi varna og utanríkisþjónustu, og viðmiða og leikreglna alþjóðakerfisins, hafi skipt sköpum fyrir fullveldi landsins. Félagsleg skjól Þrátt fyrir mikil áhrif bandarískrar menningar og nýsköpunar á landsmenn frá stríðsárunum héldu íslensk stjórnvöld áfram að leita fyrst og fremst eftir félagslegu skjóli hjá Norðurlönd- unum, einkum Danmörku. Leitað var fyrir- mynda við áframhaldandi uppbyggingu stjórn- sýslunnar og velferðarkerfisins og íslensk löggjöf á mörgum sviðum tók áfram mið af danskri löggjöf. Eftir síðari heimsstyrjöldina tók Kaup- mannahöfn fljótlega aftur við sem miðstöð ís- lenskra stúdenta erlendis þar sem þeir héldu Fullveldi Íslands og alþjóðasamvinna í 100 ár Íslendingar hafa allt frá upphafsárum fullveldis leitast við styrkja efnahagslega, pólitíska og menningarlega stöðu sína með náinni samvinnu við nágrannaríki sín. Baldur Þórhallsson baldurt@hi.is Bjarni Benediktsson ræðir hér við Dean Acheson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna á ár- unum 1949-1953, en sterk tengsl Íslands við Bandaríkin veittu Íslandi ekki bara hernaðarlegt skjól, heldur einnig diplómatískt skjól í landhelgismálunum að mati höfundar. ’Fullveldi Íslands hefur veriðtryggt með því að leita skjóls og almennt hafa stjórnvöld forðast að standa ein á báti án formlegra bandamanna í ólgusjó alþjóðastjórnmála.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.