Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Side 2
Hvernig verður árið 2019? Árið verður köflótt. Það koma góðir kaflar og slæmir, eins og í lífinu. Ég sé verkfall og ég sé líka hræðslu við annað hrun. Ég upplifi svolítið stress í fólki. Það er hrætt við verk- föll, efnahagslífið og eldgos. Það er skjálfti í fólki. Sérðu náttúruhamfarir? Já, já, ég geri það. Það er alveg viðbúið að það komi jarðskjálfti og eldgos. Hvernig verður veðurfarið, fáum við gott sumar? Já, það verður miklu betra en þetta árið. Hvað notar þú til þess að spá fyrir um árið? Ég spái í spil og kristalskúlu. Kemur þetta til þín í myndum? Já, ég er skyggn, þannig að ég fæ þetta mikið til mín í myndum. Er eitthvað sérstakt sem þjóðin á að varast á árinu? Ég held að fólk þurfi að hlúa að sér og passa upp á kvíðann. Ég sé óttakvíða hjá þjóðinni. Hvað með pólítíkina, hvað sérðu í þeim efnum? Klaustursþingmennirnir segja ekki af sér. Ég sé ekki annað en að ríkisstjórnin haldi áfram á þessu ári. Hvað er það jákvæðasta við árið 2019? Veðráttan finnst mér í heildina vera fín og það léttir á fólki. En þitt ár, áttu gott ár í vændum? Já, ég á von á því, ég er búin að eiga tvö frekar erfið ár. Ég fór í hnéskiptiaðgerð núna í haust og er að jafna mig eftir það. Ég vona að 2019 verði ár með trukki hjá mér. Ertu búin að finna í gegnum vinnu þína tilgang lífsins? Já. Að þroska sálina mína, klárlega. Og mesta áskor- un lífsins er þolinmæði. Morgunblaðið/Ásdís HRÖNN FRIÐRIKSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Köflótt 2019 Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Harmleikurinn í umferðinni milli jóla og nýárs, þegar lítið barn ogtvær konur létust, færir ákveðinn drunga yfir hátíðina. Það ererfitt að hugsa til þess að það sem átti að vera ævintýraferð í nýju landi hafi skyndilega breyst í skelfilegan og nær óhugsandi hrylling. Hugurinn er hjá þeim sem eiga um sárt að binda vegna banaslyssins við Núpsvötn. Átján manns eru látnir í umferð- inni á árinu 2018. Sú tala er skelfi- lega há en samt segir hún vitan- lega ekki alla söguna. Þá eru ótaldir þeir sem slasast alvarlega og aðstandendur látinna og slas- aðra, sem slysin hafa líka mikil áhrif á. Aldrei verður hægt að koma í veg fyrir öll slys, líklega átta sig flestir á því. En það hlýtur að vera skylda okkar, ekki síst sem gest- gjafa allra þeirra ferðamanna sem hingað sækja ár hvert, að gera allt sem hægt er til að gera vegina sem öruggasta. Er í alvörunni ekki hægt að gera meira? Af hverju eru ennþá einbreiðar brýr á hringveginum? Gerum við nóg til að koma í veg fyrir hættur á vegunum? Líklega verða aldrei allir sammála um í hvaða verkefni á að setja fé. Hvaða vegur er verstur, á hverju liggur helst og svo framvegis. En það er því miður ljóst að vegakerfið annar ekki öllu því sem á það er lagt. Önnur jólin í röð verður banaslys í umferðinni á slóðum þar sem margir ferðamenn fara um á þessum árstíma. Við hljótum að geta gert meira, það bara getur ekki annað verið. Það skiptir öllu máli að fólk komist heilt heim, hver sem vegurinn kann að vera. Kerti skreyti- mynd ThinkstockPhotos Er hægt að gera meira? Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Af hverju eru ennþáeinbreiðar brýr áhringveginum? Gerumvið nóg til að koma í veg fyrir hættur á vegunum? Maríanna Gunnarsdóttir Nei, en ég á ættingja sem gera það. Ofvirk sprengjufjölskylda. SPURNING DAGSINS Kaupir þú mikið af flugeldum? Bjarni Arason Nei. Við fjölskyldan erum að reyna að hætta því. Svanhildur Valsdóttir Nei. Ekki í seinni tíð. Óttar Sigurðsson Ekki þetta árið. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Hrönn Friðriksdóttir er spámiðill og býður hún upp á einkatíma í spámiðlun. Hún leggur áherslu á að skoða nútíð og framtíð, hæfileika og styrkleika, ástarmál, fjármál og heilsu. Einnig heldur hún skyggnilýsingar fyrir hópa og ræður drauma.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.