Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 17
30.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 ég er frekar stór en maður finnur að á milli þeirra ríkir jafningjasamband. Ilmur er nátt- úrlega snilldarleikkona,“ segir hann. „Annars er ég bara eins og aðrir, hlakka til að sjá! Ég veit að þetta verður gott, með Balt- asar þarna fremstan í flokki, hann hefur svo mikinn metnað og er ósérhlífinn.“ Snjó sópað af Austurvelli Aðspurður hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við tökur Ófærðar II þarf Ólafur Darri að hugsa sig aðeins um. „Jú, ég er með eina góða sögu. Sagan á að gerast um haust en tökur voru frá hausti og yf- ir á vetur. Það var eiginlega bara snjór á jörðu frá október og fram í febrúar. Við áttum eftir að taka nokrar stórar snjólausar útisenur, og sérstaklega eina sem var skotin á Austurvelli. Við vorum komin í þrot með það og niður- staðan var að fresta tökum á senunni í mánuð. Og auðvitað, íslenskt veður er dásamlegt, um leið og þessi ákvörðun var tekin leysti snjó. Það var enginn snjór í mánuð. Svo byrjuðum við að skjóta í byrjun maí og hvað gerðist! Þá nátt- úrulega byrjaði að snjóa. Menn voru að sópa snjóinn af Austurvelli,“ segir hann og hlær. „Við náðum ekki að klára síðustu senurnar fyrr en í ágúst. Við erum ekkert þau einu sem íslenskt veðurfar hefur strítt. Russell Crowe, sem tók Noah hér á landi, sagði við Ben Stiller áður en hann byrjaði tökur á The Secret Life of Walter Mitty, „you have to dominate the weather“. Þetta er það sem íslenskir kvik- myndagerðarmenn þekkja mjög vel. Það er aldrei hægt að treysta á íslenska veðrið. Það er ekkert til sem heitir „dominate“ þegar kemur að því.“ Þú kynntist Ben Stiller við tökur á þeirri mynd. Eruð þið í einhverju sambandi? „Já, við reynum að hittast þegar ég er í New York og hittumst nú síðast í haust,“ segir hann og hálfafsakar sig fyrir að „namedroppa“ eins og það kallast. Blaðamaður sleppir honum samt ekkert alveg. Er Stiller skemmtilegur? „Já, hann er frábær manneskja og hefur reynst mér mjög vel síðan við lékum saman í Walter Mitty. Ég lék líka hjá honum í Zoo- lander 2. Það stóð til að ég myndi leika lítið hlutverk í frábæru nýju sjónvarpsseríunni hans, Escape at Dannemora, en ég gat það ekki af því að ég var að leika í Ófærð,“ segir hann. „Það er ekki hægt að gera allt. Þó að mann langi það yfirleitt.“ Dæturnar alsælar í svítu Það styttist í hátíðirnar þegar viðtalið er tekið og Ólafur Darri aðeins búinn að vera um sólar- hring á landinu. Það þarf að fara að leyfa manninum að sinna fjölskyldunni eftir langa fjarveru og njóta jólanna. Hann segir það hafa verið yndislegt að koma heim til konunnar og knúsa stelpurnar sínar, sem eru fjögurra og átta ára gamlar. Hann nefnir að stuðningurinn frá frábærri stórfjölskyldu geri honum kleift að sinna starfi sínu jafn vel og hann gerir. „En auðvitað kostar þetta fórnir, sérstak- lega frá konunni minni sem er sjálf magnaður listamaður og dansari. Það hefur verið mjög mikið álag á henni að púsla og láta allt ganga upp hér heima samhliða sinni vinnu á meðan ég er erlendis. Það þarf sérstaka manneskju til þess að þetta gangi upp og ég er mjög þakk- látur og lánsamur þegar kemur að konunni minni,“ segir hann. Ólafur Darri fékk fjölskylduna í heimsókn til sín erlendis þegar tækifæri gafst og gat það verið afskaplega spennandi fyrir litlar stúlkur. „Þær komu þegar ég var í tökum af Murder Mystery í Montreal og voru hjá mér í þrjár vikur,“ segir Ólafur Darri og segir frá því að þar hafði verið leigð íbúð fyrir hann með það fyrir augum að fjölskyldan gæti komið og dval- ið hjá honum. „Íbúðin var ekki nógu hugguleg og ég er nú ekki vanur að kvarta en var ekki spenntur að fá fjölskylduna þangað. Þessu var svo sann- arlega kippt í liðinn og við enduðum á svítu á fimm stjörnu hóteli í miðborg Montreal. Það sem var svo sjúklega fyndið var að þarna vor- um við í þrjár vikur með dætur okkar sem voru eins og blómi í eggi með fólk sem þjónaði þeim á alla kanta. Við vorum alltaf að reyna að segja við þær: „Elskurnar mínar, þetta er ekki eins og lífið er! Við höfum ekki efni á svona, þetta verður ekki svona alltaf!““ segir hann og skellihlær. Við förum að slá botninn í spjallið en for- vitnilegt er að heyra að lokum hvað sé fram- undan á nýju ári. „Efst á listanum er gott frí með fjölskyld- unni eftir langa vinnutörn. Annars mun ég leika í nýrri seríu fyrir Sagafilm, Ráðherrann. Tökur hefjast á næsta ári. Svo er ég að fara að lesa inn á nýja seríu fyrir Netflix sem heitir The Dark Crystal sem er brúðuleikarasería. Svo heldur NOS4AT2 vonandi áfram og Balt- asar var eitthvað að tala um Ófærð III um daginn. Það er sumsé byrjað að pæla í næstu seríu en þetta tekur auðvitað langan tíma og fjármögnunin er erfið því þetta er svakalega dýrt í framleiðslu. En ef Ófærð II gengur vel, sem allt stefnir í, verður það auðveldara,“ segir hann. „Við Ilmur, ásamt fjölda annarra leikara, erum líka í tveggja ára samstarfi við Íslands- banka vegna Reykjavíkurmaraþonsins sem mun halda áfram á næsta ári. Góðgerðarmál hafa verið mér ofarlega í huga undanfarið og það eru forréttindi að fá tækifæri til að leggja þeim lið,“ segir hann. „Annars vona ég bara að ég fái áfram að glíma við ólík og áhugaverð hlutverk sem ögra mér og upplifa þakklæti fyrir þau tækifæri sem bjóðast.“ Þetta áttu að vera lokaorð viðtalsins. Það varð ekki. Þar sem við stöndum upp frá borð- inu vindur kona nokkur sér að Ólafi Darra. Hún hafði fengið forskot á sæluna og séð fyrstu tvo þætti Ófærðar II í bíó kvöldinu áður og vill þakka honum. Miðað við orð hennar á þjóðin eftir að eiga góðar stundir í skammdeg- inu yfir sjónvarpinu, að fylgjast með Andra og Hinriku og öllum hinum í Ófærð. „Til hamingju með sýninguna í gær, svaka- lega flott! Ég er enn með gæsahúð!“ Ólafur Darri ljómar. „Takk! Þakka þér kærlega fyrir að segja þetta, en gaman!“ Morgunblaðið/Ásdís Ólafur Darri lék með Ben Stiller í The Secret Life of Walter Mitty og tókst með þeim góður vin- skapur sem haldist hefur síðan. Þeir hittast við tækifæri þegar Ólafur Darri er í New York. „Ég hef stundum sagt að uppáhaldsaugnablikin mín í Ófærð I, þegar ég horfði á hana, voru þessi samskipti á milli Hinriku og Andra, og Andra og Ásgeirs,“ segir Ólafur Darri, en hann leikur á móti Ilmi Kristjánsdóttur og Ingvari Sigurðssyni í Ófærð. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.