Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Page 22
MARKMIÐIN 2019
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018
Eftir að hafa lyft 398 kílóum íréttstöðulyftu á heimsmeist-aramótinu í Finnlandi og sett
með því heimsmet lét Júlían J.K. Jó-
hannsson bæta sjö kílóum á stöngina
og bætti heimsmetið því tvisvar. Það
liggur beint við að spyrja hann út í
árið sem er senn á enda.
„Þetta var í raun mjög stórt ár hjá
mér. Bæði er þetta þannig að ég
keppti mjög oft og svo auðvitað þetta
met sem ég náði að bæta. Það má
kannski segja að árið hafi verið tví-
skipt í keppnum hjá mér.
Fimm mót á fyrri helmingi
árs, eitt á þeim seinni
Á fyrri helmingi ársins keppti ég
fimm sinnum, sem er mjög mikið. Í
kraftlyftingum er talið mjög gott að
taka fjögur mót á ári. En þessi mót á
fyrri hluta ársins gengu bara svona
upp og ofan, í heildina mjög vel þó að
ég hafi reyndar fallið úr á Evrópu-
meistaramóti vegna tæknigalla.
Eftir fimmta mótið á þessu hálfa
ári ákvað ég að taka alveg fullan und-
irbúning fyrir heimsmeistaramótið.
Ég tók því fimm mót á fyrri helmingi
árs og eitt mót á seinni helmingi árs-
ins 2018. Ég vildi vera gjörsamlega
einbeittur og í raun setja allt í þetta
eina mót. Bæði til að bæta upp fyrir
Evrópumótið, laga það sem þurfti að
laga og líka bara að ná því út úr mér
sem mér fannst ég eiga inni.“ Og það
skilaði sér svo um munaði.
„Já, það skilaði sér bara heldur
betur. Maður þarf að forgangsraða
þessum mótum. Auðvitað vill maður
keppa því það er skemmtilegt. Mað-
ur verður að velja mótin því maður
getur ekki keppt alls staðar,“ segir
Júlían.
Þú bættir heimsmet frá árinu 2011
tvisvar sinnum. Var þetta eitthvað
sem þú hafðir stefnt að lengi?
„Klárlega. Aðalatriðið var að ná
góðum samanlögðum árangri í öllum
greinum og klifra upp heimslistann
og stimpla mig bara soldið inn.
Markmið númer tvö var þetta met.
Þetta met er eitthvað sem ég er bú-
inn að horfa til í nokkur ár. Það hefur
lengi verið draumur að bæta það.“
Nýlega varstu útnefndur íþrótta-
karl Reykjavíkur. Hvaða þýðingu
hefur sú nafnbót?
„Fyrst og fremst auðvitað mikill
heiður og viðurkenning fyrir árang-
urinn og heilmikil hvatning.“
Hvernig ætli þessi afreksmaður
sjái árið 2019 fyrir sér.
„Ég er að verða búinn að skipu-
leggja þessi stærstu mót sem ég
keppi á og er að klára að skipuleggja
lokaundirbúning fyrir þau. Ég stefni
á að gefa mér meiri tíma milli móta í
undirbúning. Mér fannst þetta ár
sýna að það væri það sem ég þyrfti
að gera.“
Seturðu þér yfirleitt markmið í
upphafi árs?
„Maður er með alls konar mark-
mið í gangi. Sum eru til lengri tíma,
eins og að ná yfir 400 kílóum í rétt-
stöðulyftu, það var búið að vera
markmið í mörg ár hjá mér.
Núna hef ég sett mér mörg mark-
mið, hvort sem er sæti á mótum,
kílóafjöldi eða annað. Þau eru öll
skrifleg. Ég er kominn með svona
flest markmið fyrir þetta ár, en ekki
öll. En það er líka allt í lagi. Ég hef
stundum sett markið aðeins hærra
og þá fagnað því að komast langleið-
ina.“
Júlían segist hafa stundað það
mjög lengi að setja sér skrifleg
markmið.
„Ég held að þetta sé nauðsynlegt.
Þegar þú setur þér markmið þarftu
soldið að sjá það fyrir þér. Ég held að
þetta sé mjög mikilvægt.“
Þá er auðvitað ekki út vegi að biðja
hann að deila einhverjum af stóru
markmiðunum fyrir árið 2019.
„Ég ætla að setja smá pressu á
sjálfan mig og segja frá því að ég hef
sett mér það markmið að vera í topp
þremur sætum á Evrópumeistara-
mótinu í Tékklandi í maí. Þetta er
ekki óraunhæft, en það getur auðvit-
að allt gerst,“ segir Júlían sem um
þessar mundir er í fjórða sæti heims-
listans í sínum þyngdarflokki.
Þegar Júlían er ekki í lyftinga-
salnum er hann annaðhvort í
vinnunni, en hann starfar á meðferð-
Júlían J.K. Jóhannsson tvíbætti heimsmet í rétt-
stöðulyftu á árinu. Nýtt met hans er 405 kíló.
Hann hafði lengi haft auga á þessu tiltekna heims-
meti og sló það ekki fyrir neina tilviljun heldur
hafði unnið markvisst að því lengi og undirbjó sig
vel fyrir mótið. Hann er búinn að setja sér mark-
mið fyrir næsta ár sem eru skrifleg og nákvæm.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Júlían J.K. Jóhannsson
setur sér skrifleg
markmið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hafði lengi ætlað að bæta heimsmetið
Elísabet Margeirsdóttir komstenn á ný í fréttirnar á árinufyrir það afrek sitt að ljúka
409 kílómetra hlaupi í Góbí-eyði-
mörkinni í Kína. Hún segir þó kíló-
metrafjöldann ekki alltaf vera aðal-
málið, hlaupin gefi henni tækifæri til
að sjá heiminn og ferðast til framandi
staða. En hvernig hefur árið 2018
verið hjá þessum ofurhlaupara?
„2018 er búið að vera bara ótrúlega
skemmtilegt ár og fjölbreytt. Ég fór í
miklu fleiri og betri hlaup á árinu en
ég bjóst við að ég myndi gera. Ég
byrjaði árið á því að fara til Hong
Kong í janúar og hljóp 100 kílómetra
hlaup þar sem mér gekk hrikalega
vel. Þessi tími ársins, vetrartíminn,
hann gefur alveg vel af sér þótt flestir
taki sér hlé á þessum tíma. Þannig að
tímabilið byrjaði frekar snemma hjá
mér.
Eitt af því sem stendur uppúr á
árinu er að ég fór til Bútan sem er
land í miðjum Himalaja-fjöllunum.
Þar fór ég í mína fyrstu áfanga-
hlaupakeppni. Þar voru sex hlaupa-
dagar, samtals 200 kílómetrar í miklu
fjalllendi, hlaupið í áföngum. Þetta
var eitt skemmtilegasta ferðalag sem
ég hef upplifað, að fá að kynnast nýju
landi á hlaupum og sjá ótrúlega mikið
og margt sem maður myndi aldrei sjá
nema í einhvers konar svona við-
burði.
Þetta er fámenn keppni en samt
góð keppni. Það var allt lagt í það að
vinna þessa keppni í Bútan,“ segir
Elísabet. Og það tókst henni. Þar
með fæddist hugmyndin um að fara í
Góbí-hlaupið. „Hlaupið í Bútan var
gott búst, gaf mér ótrúlega mikið.
Stuttu eftir það ákvað ég að fara í
þetta Góbí-hlaup og þá var það orðið
aðalmarkmiðið strax eftir Lauga-
vegshlaupið. Ég beið eftir að það
kláraðist þannig að ég gæti bara ein-
blínt á þetta Góbí-hlaup. Allar keppn-
ir í aðdragandanum voru hugsaðar
sem æfingar fyrir það. Góbí-hlaupið
stóð auðvitað uppúr á árinu.“
Elísabet náði að ljúka hlaupinu á
undir 100 klukkustundum, eða 97
klukkustundum og 11 mínútum ná-
kvæmlega. „Þetta var frábært
hlaupaár og það var algjör bónus að
það hafi tekist svona vel. Ég var búin
að setja mér háleitt markmið. Ég var
búin að setja mér það markmið að
fara þetta á undir 100 klukkustund-
um. Það má alveg segja að vikuna áð-
ur þá var ég alveg að efast um þetta,
ég væri að teygja mig aðeins of langt
og ætti ekki að vera með svona brjál-
aðar væntingar. Þú veist ekkert
hvort þú nærð þessu fyrr en það er
mjög langt liðið á hlaupið sjálft. En
það tókst.“
Hún segir skipulag skipta öllu máli
í svona hlaupum, en setur hún sér
skrifleg markmið?
„Ég á rosalega erfitt með að plana
fram í tímann. Það fer bara allur fók-
us á næsta verkefni. Svo veit maður
ekki alveg hvað það leiðir af sér. Auð-
vitað er mjög gott ef maður nær að
setja niður markmið fyrir árið, ef þú
Markmiðin skipta öllu máli
Elísabet Margeirsdóttir utanvegahlaupari
setti sér skýrt markmið um að hlaupa eitt erf-
iðasta utanvegahlaup í heimi, 409 kílómetra
hlaup um Góbí-eyðimörkina, á undir 100
klukkustundum og það tókst. Hún er komin
með ný markmið fyrir árið framundan.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Elísabet Margeirsdótir segir
vegalengdir í hlaupum ekki
skipta mestu máli.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon