Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 23
30.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík 2-3 svefnherbergi 2 baðherbergi Flott hönnun, vandaður frágangur Frábært útsýni Geymsla og stæði í bílakjallara Hægt að velja um tilbúnar íbúðir eða íbúðir í byggingu Alg jör paradís fyrir golfara Verð frá 32.700.000 iskr. (246.000 evrur, gengi 1evra/133 Ikr) Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 GLÆSILEGAR LÚXUSÍBÚÐIR Las Colinas margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni Júlían Jóhann Karl Jóhannsson er með sterkustu kraftlyftingarmönnum heims. Ljósmynd/europowerlift-ing arheimilinu Stuðlum, eða að sinna háskólanámi sínu í sagnfræði. Hann er búinn með tvö ár en á eitt eftir. „Ég hef verið að taka þetta nám að- eins hægar, enda er nóg annað að gera. Hef kannski ekki verið alveg jafn skipulagður í náminu og í kraft- lyftingunum, en það er líka í góðu lagi.“ En ætli hann setji sér einhver persónuleg mark- mið, ótengd íþróttum? „Já, það er kannski soldið klisjukennt, en mig langar að lesa meira á næsta ári og auðvitað að byrja á þessari BA-ritgerð í sagn- fræðinni. En eins og einn vinur minn orðar það þá hef ég hingað til látið það duga að skrifa söguna,“ segir hann og hlær. Hann hefur stundað kraftlyftingar frá 15 ára aldri, eða í 10 ár. Margt hefur breyst í greininni á þessum tíma. „Það sem gerðist um það leyti sem ég byrjaði var að Kraftlyftinga- sambandið var að koma aftur inn í ÍSÍ. Á þessum 10 árum sem það hef- ur verið innan ÍSÍ hafa orðið miklar breytingar. Þetta er miklu opnara og það er fleira fólk að stunda þetta. Ekki einsleitur hópur heldur alls konar fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins ef svo má að orði komast. Ég held að það sé alltaf já- kvætt þegar það er breiðari þjóð- félagshópur í einhverju svona,“ segir Júlían og bætir við að konur hafi sér- staklega komið sterkar inn í lyfting- arnar á undanförnum áratug. „Ég kom inn í eitt kraftlyftingafélag um daginn og það var fullur salur af kon- um sem voru að taka hrikalega á því. Svo komu mennirnir þeirra úr spinn- ing-tíma að kíkja aðeins á þær. Ég hugsaði, já ok, það hefur margt breyst.“ ’Ég ætla að setja smá-pressu á sjálfan migog segja frá því að ég hefsett mér það markmið að vera í topp þremur sætum á Evrópumeistaramótinu í Tékklandi í maí. Þetta er ekki óraunhæft, en það getur auðvitað allt gerst getur. En svo finnst mér líka gaman að hafa smá óvissu og geta verið sveigjanleg. Fyrir mér snýst þetta ekki endi- lega um að setja upp markmið fyrir allt árið, en það þarf alltaf að vera eitthvað markmið. Ég hélt kannski áður að markmiðin skiptu ekki svona miklu, en þau skipta öllu máli. Þau gera þetta skemmtilegt. Ef þú ert að stunda eitthvað þá er bara miklu skemmtilegra að hafa eitthvað að stefna að. Annars hafa æfingarnar ekki eins mikinn tilgang. Hver æfing hefur sinn tilgang.“ Líf eftir Góbí-hlaupið Eftir gott ár á hlaupum og mögnuð afrek liggur beint við að spyrja El- ísabetu hvort sé hægt að ná lengra á hlaupunum. „Já, þú getur alltaf fundið eitthvað meira. En það þarf ekki endilega að snúast um kílómetrafjöldann. Það er alveg hægt að setja sér spennandi markmið. Það er alveg líf eftir Góbí,“ segir hún og hlær. Og hún er til í að deila markmiðum ársins 2019 með lesendum. „Ég ætla að fara í áskorun í Hong Kong 6. febrúar. Mér finnst þetta tilvalið markmið þegar maður er stigin upp- úr Góbí-þokunni. Þetta heitir Hong Kong Four Tra- ils Ultra Challenge. Þetta er ekki keppni, þetta er bara áskorun fyrir fólk sem vill gera eitthvað sem það heldur að sé ómögulegt.“ Hlaupnar eru fjórar lengstu gönguleiðirnar í Hong Kong, hver á eftir annarri, alls 298 kílómetrar. „Það er engin umgjörð. Maður þarf algjörlega að sjá um sig sjálfur og þarf að rata. Maður má bara fá að- stoð á milli leiða, alveg þangað til maður byrjar á næstu gönguleið. Þetta er mjög nördalegt en vel þekkt áskorun í hlaupasamfélaginu í Asíu. Svona ákveðið fyrirbæri sem maður er búin að heyra um lengi. En þetta er ekkert rosalega vinsælt því þetta er soldið glórulaust. Hug- myndin er að þú ljúkir þessu ekki nema þú náir að gera þetta á 60 klukkutímum eða minna,“ segir hún en engri konu hefur tekist að ljúka þessu innan tímamarkanna. Alls eru 30 manns skráðir til leiks í þessa áskorun í ár og Elísabet er þegar byrjuð að undirbúa sig. „Það sem er skemmtilegast við þetta er þessi heimavinna, að undir- búa þetta ferðalag. Ég fæ ekki tæki- færi til að hlaupa þessar leiðir áður, en hef reyndar hlaupið eina af þess- um leiðum í aðra áttina. Þarna er mjög sérstakt og flott landslag, mikið af tröppum og brekk- um. Ég þarf að vinna mikla heima- vinnu varðandi rötun og landafræði. Þú gerir þetta ekki nema vera búin að sjá þetta algjörlega fyrir þér. Þannig að það sé sem minnst sem kemur á óvart. Ég verð að ná að æfa rökrétt þann- ig að það skili sér.“ Hún segir að helsta áskorunin vegna þessa hlaups felist í raun í und- irbúningnum og þeirri staðreynd að hann fari allur fram á Íslandi, óra- vegu frá Hong Kong. Hlaupin eru fyrirferðarmikil hjá Elísabetu en þegar hún er ekki á hlaupum starfar hún sem aðjúnkt í næringarfræði við Háskóla Íslands ásamt því að halda hvatningarfyrir- lestra fyrir fyrirtæki og hópa. Hún er einnig þjálfari og einn af eigendum Náttúruhlaupa. Náttúruhlaup bjóða, líkt og nafnið gefur til kynna, nám- skeið í því að hlaupa í náttúrunni, ut- an vega. Elísabet heldur utan um hóp sem stefnir að því að taka þátt í Lauga- vegshlaupinu næsta sumar og ætlar auk þess að fara með 20 manna hóp í hlaupaferð til Frakklands næsta sumar þar sem hlaupið verður um- hverfis Mont Blanc. „Hlaupin taka mjög mikið pláss en á sama tíma er maður að reyna að bæta sig á öðrum sviðum. Stærstu markmiðin verða hlaupatengd á næsta ári en maður reynir að bæta sig á öðrum sviðum líka. Líkaminn aðlagast álaginu og maður nær lengra og lengra í öllu sem maður er að gera. Það er stórt markmið hjá mér að sinna Náttúruhlaupunum og Laugavegsnámskeiðinu vel og hjálpa öðru fólki að ná sínum markmiðum. Hugmyndin með Náttúruhlaup- unum er að ná að draga fleiri með sér í þetta. Kenna fólki að njóta hreyf- ingar úti og leyfa því að kynnast því að ferðast og hreyfa sig. Hlaupaferð- irnar eru skemmtilegar, þetta þarf ekki alltaf að vera keppni.“ Náttúruhlaup eru að hefja sjötta starfsárið sitt en Elísabet sjálf hefur stundað utanvegahlaup í tíu ár. „Maður sér alveg stórkostlega aukn- ingu í áhuga á þessari tegund af þjálf- un. Þetta er svo góð hreyfing og þú ert að sameina svo margt, að vera úti í náttúrunni, hreyfa þig frjálslega, skoða landslag, þetta er svo fjöl- breytt. Meira eins og að dansa en að hlaupa. Við erum að ná til fólks sem hefur kannski aldrei hlaupið áður, sem er að taka sín fyrstu skref og hefur jafn- vel ekki verið að hreyfa sig mikið áð- ur. Laugavegshóparnir mínir síðustu tvö ár hafa mestmegnis verið fólk sem byrjaði bara í þessum utanvega- hlaupum fyrir nokkrum árum en hafði ekki endilega hlaupið mikið fyr- ir það.“ Hún segir það ánægjulegt að sjá hversu mikið þessi tegund hlaupa hafi þróast á síðastliðnum áratug en myndi samt vilja sjá fleira yngra fólk. „Eitt sem við myndum vilja sjá væri yngra fólk, háskóla- eða jafnvel menntaskólafólk. Það væri gaman að fá fleira fólk undir þrítugu til að mæta á æfingar hjá okkur.“ Markmiðið um að ljúka áskorun- inni í Hong Kong tekur drjúgan tíma hjá Elísabetu þessa dagana og svo verður að koma í ljós hverju fram vindur með aðrar keppnir á árinu. Elísabet vill þó ekki setja of mikinn fókus á kílómetrafjölda og keppnir. Ferðalögin og það að sjá heiminn skiptir hana meira máli. „Ef ég gæti myndi ég vilja hlaupa alls staðar í heiminum, sjá hvernig er að hlaupa á mismunandi stöðum. Það er það skemmtilegasta við þetta, að fá tæki- færi til að sjá heiminn á hlaupum.“ Elísabet í miðri Góbí-eyðimörkinni. ’ Ég hélt kannski áður að markmiðin skiptu ekki svona miklu, en þau skipta öllu máli. Þau gera þetta skemmtilegt. Fasteignir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.