Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Side 30
Margir láta sig dreyma umað ferðast og fá til þessinnblástur frá Instagram.
Samfélagsmiðillinn er líka góður til
þess að fylgjast með hvert fólk er í
raun og veru að ferðast og eru sumir
staðir meira áberandi en aðrir. Vef-
urinn Refinery29 fékk markaðs-
fyrirtækið Dash Hudson, sem sér-
hæfir sig í öllu sem viðkemur
Instagram til þess að skoða ferða-
árið sem er að líða og finna út hverj-
ir voru 40 vinsælustu áfangastað-
irnir á Instagram á árinu 2018.
Niðurstöðurnar eru fengnar með því
að skoða bæði þá staði sem fólk hef-
ur merkt inn á myndir og líka lyk-
ilorð. Athygli vekur að Reykjavík er
í áttunda sæti á þessum lista enda
tekur vefurinn fram að svo virðist
sem allir og amma þeirra hafi verið
að ferðast um Portúgal og Ísland á
árinu. Lissabon í Portúgal er í 25.
sæti.
Áhugavert er að allar Norður-
landahöfuðborgirnar ná inn á
listann, Osló er í 16. sæti, Kaup-
mannahöfn í 19., Stokkhólmur í 33.
og loks Helsinki í 40. sæti.
Sívinsælar og sígildar borgir eru á
listanum eins og New York, London,
París og Róm og það eru aðeins stór-
borgir sem komast ofar en Reykja-
vík en til viðbótar við þessar fjórar
eru aðeins Toronto, Barcelona og
Sydney ofar á listanum en höfuð-
borg Íslands. Allur listinn er birtur
hér til hliðar.
Skugghliðin á ferðalögum
á Instagram
Ljóst er að Instagram hjálpar til við
að kynna nýja áfangastaði fyrir fleiri
ferðalöngum og hefur þetta greini-
lega virkað vel fyrir Ísland. Á sam-
félagsmiðlinum fær fólk að kynnast
nýrri menningu og löndum í gegnum
augu annarra. Þetta getur auðvitað
verið til góðs en líka getur verið
hætta á því að of margir fari að
sækja á staði þar sem land er við-
kvæmt.
Einn af þeim stöðum þar sem
ferðamönnum fjölgaði mjög hratt
eftir að áhrifavaldar á Instgram fóru
að merkja staðsetninguna þar er
vatnið Delta í Grand Teton-
þjóðgarðinum í Wyoming í Banda-
ríkjunum. Að því er fram kemur í
The New York Times bað ferða-
mannaráðið á svæðinu nýverið
ferðamenn um að hætta að merkja
staðsetninguna nákvæmlega
inn á Instagram til þess að
reyna að varðveita betur
skógana og vötnin á svæð-
inu. Fyrir nokkrum árum
lögðu aðeins einn eða tveir
ferðamenn það á sig á dag að
ganga upp að Delta-vatninu
en þetta er um 15 km leið.
Núna eru þetta um 145
manns á dag og eru margir
til dæmis að taka trúlof-
unarmyndir. Mikil umferð er
um áður óþekkta slóða á
svæðinu og eru þeir að eyð-
ast og þjóðgarðurinn hefur
vart efni á að halda þeim við.
Víða er kvartað yfir ferðamönnum
að taka sjálfur. Í Hong Kong hefur
verið vinsælt að taka myndir við fé-
lagslegt húsnæði, í óþökk íbúa. Sól-
blómabóndi í Kanada þurfti nýlega
að banna gesti eftir að ferðafólk olli
skemmdum á engjum hjá honum.
Ljóst er að gestir Louvre eyða meiri
tíma í að mynda sjálfa sig við Monu
Lisu en að skoða þetta þekkta mál-
verk.
Hætta er á því að viðkvæmir stað-
ir spillist þegar staðsetning er merkt
inn á mynd. Til dæmis er fólk beðið
um að merkja alls ekki nákvæma
staðsetningu þegar það tekur mynd-
ir af nashyrningum í þjóðgörðum í
Suður-Afríku því það geti hjálpað
veiðiþjófum.
Mikið álag hefur verið á svæðinu í
kringum Roys Peak við Wanaka-
vatn á Nýja-Sjálandi. Það er þriggja
tíma ganga á toppinn sem verð-
launar fólk með frábærri fjallasýn.
Fyrir lok árs munu um 73 þúsund
manns hafa gengið þessa leið, sem
er 12% meira en árið áður.
Þetta er ekki ólík þróun og sú sem
hefur verið hér á Íslandi og deila
Nýsjálendingar ýmsum áhyggjum
með Íslendingum. Gilbert Van Ree-
nen, landslagsljósmyndari frá svæð-
inu, sagði í samtali við Guardian að
myndirnar sem birtust á Instagram
með merkinu #royspeak segðu ekki
sannleikann. Ferðamenn væru að
taka áhættu og stefna lífríkinu í
hættu, aðeins til þess að ná hinni
fullkomnu sjálfu. Roys Peak er með
fimm stjörnu einkunn á TripAdvisor
og þar ráðleggja sumir ferðalangar
fólki að leggja af stað klukkan þrjú
um nótt til að reyna að sleppa við
mestu umferðina.
Sveitarfélagið stækkaði bílastæð-
ið við tindinn á síðasta ári og setti
upp salerni, til þess að ná stjórn á
fjöldanum, en fólk frá svæðinu segir
að það hafi aðeins hvatt fleiri til að
koma.
Instagram virðist komið til að
vera en áskorunin fyrir komandi ár
er að dreifa álaginu og passa upp á
að fólk stefni ekki sjálfum sér eða
viðkomandi stöðum í hættu við
myndatökuna.
Ferðalaga-
árið á
Instagram
Reykjavík er í 8. sæti yfir áfangastaði ársins 2018
á Instagram, samkvæmt markaðsfyrirtækinu
Dash Hudson sem greindi staðina sem fólk hefur
merkt inn á myndir auk lykilorða.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Frá @flashman á Twitter en þar segir að mynd-
in endurspegli samfélag 21. aldarinnar.
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018
FERÐALÖG
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Láttu fagfólkið á
Húðfegrun
sjá um þína húð
á nýju ári!
1. New York, Bandaríkjunum
2. Toronto, Kanada
3. London, Bretlandi
4. París, Frakklandi
5. Róm, Ítalíu
6. Barcelona, Spáni
7. Sydney, Ástralíu
8. Reykjavík, Íslandi
9. Berlín, Þýskalandi
10. Tulum, Mexíkó
11. Amsterdam, Hollandi
12. Santorini, Grikklandi
13. Honolulu, Bandaríkjunum
14. Balí, Indónesíu
15. Dúbaí, Sameinuðu arabísku
furstadæmunum
16. Osló, Noregi
17. Vín, Austurríki
18. Bangkok, Taílandi
19. Kaupmannahöfn, Danmörku
20. Hanoí, Víetnam
21. Mumbai, Indlandi
22. Singapúr
23. Kýótó, Japan
24. Maldívur
25. Lissabon, Portúgal
26. Zürich, Sviss
27. Hong Kong
28. Búdapest, Ungverjalandi
29. Cartagena, Kólumbíu
30. Sjanghæ, Kína
31. Moskva, Rússlandi
32. Dubrovnik, Króatíu
33. Stokkhólmur, Svíþjóð
34. Prag, Tékklandi
35. Dublin, Írlandi
36. Luang Prabang, Laos
37. Marrakesh, Marokkó
38. Istanbúl, Tyrklandi
39. Höfðaborg, Suður-Afríku
40. Helsinki, Finnlandi
Topp 40